Leita í fréttum mbl.is

Hverjir eiga að ráða?

hér á Íslandi, hælisleitendur eða við.

Eru ekki einhverjir hælisleitendur hreinlega týndir hérlendis? Höfum við algera yfirsýn yfir þennan málaflokk?

Svona er ástandið í Noregi:

"

Mik­il umræða hef­ur verið í norsk­um fjöl­miðlum í vik­unni um um­deild um­mæli Sylvi List­haug, ráðherra inn­flytj­enda- og aðlög­un­ar­mála (FrP), sem lét hafa það eft­ir sér að tíma­bært væri fyr­ir Nor­eg að víkja mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu til hliðar og loka þá 1.600 hæl­is­leit­end­ur, sem synjað hef­ur verið um hæli, inni þar til þeim er komið úr landi.

„Ég tel að við eig­um að láta reyna á þessa [alþjóða]sátt­mála. Einkum og sér í lagi mann­rétt­inda­sátt­máli Evr­ópu er áskor­un fyr­ir þá mögu­leika sem hvert land hef­ur til að tryggja ör­yggi eig­in borg­ara,“ sagði List­haug í sam­tali við NRK og vitnaði í ný­lega at­b­urði í Barcelona. Ráðherra benti á að frá því í janú­ar 2015 hefðu 564 látið lífið í hryðju­verk­um í Evr­ópu. „Þetta er fólk sem kær­ir sig koll­ótt um eigið líf og annarra. Það drep­ur sjálft sig og aðra. Til að mæta þessu þurf­um við að grípa til nýrra aðgerða og ein af þeim er að hafa stjórn á því hverj­ir eru í Nor­egi,“ sagði List­haug að lok­um."

Norðmenn hafa áhyggjur þrátt fyrir að þeir séu miklu skilvirkari en okkar yfirvöld sem hafa ekki verið talin sérlega skilvirk í afgreiðslum með þeim afleiðingum að hælisleitendur hrúgast upp með tilheyrandi vandamálum. Hér úir og grúir af þessu fólki innan um almenning. Fólk er hinsvegar ekki spurt hvað því finnist um þetta fyrirkomulag.Það er elítan úr 101 sem ræður för.

Það eru 25.000 útlendingar við vinnu hérlendis. Það er ekkert nema ágætt. En það á að vera okkar val hverjir fá að koma hingað í atvinnuleit. Ekki val einhverra úti um víða veröld sem eru ekkert endilega að leita sér að vinnu heldur að betri tilveru með kost og logi á okkar kostnað.Það er ekki það sem okkur vantar mest.

Það eru ekki almennir íslenskir kjósendur ráða för í innflytjendamálum landsins  heldur einhver óþekktur hópur sérsinna.Nafnlaus og andlitslaus hópur.

Hverjir eiga annars að ráða málum á Íslandi úr því að Alþingi gerir það ekki?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Við eigum að taka upp franska KOSNINGAKERFIÐ hér á landi þannig að  FORSETI ÍSLANDS  hverju sinni leggi af stað með stefnuna  í þessu máli eins og öðrum málum og standi eða falli með sinni stefnu.

Þannig að öll ábyrgð og boðleiðir yrðu skýrari frá A-Ö.

Jón Þórhallsson, 27.8.2017 kl. 12:54

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það er hugsanlea betra að hafa 1 mjög hæfan einstakling á toppnum sem að helgar sig sínu starfi allan sólarhringinn og hefðiraunerulegt umboð til að að höggva á allskyns óvissuhnúta heldur en að vera með 60 manns að rífast inni á alþingi og allir alltaf óánægðir.

Jón Þórhallsson, 27.8.2017 kl. 15:54

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Það er einfalt að loka landamærum Íslands og hleypa engum inn nema hann hafi áritun. Ef einhver vill sækja um hæli þá er ekkert annað en að fara í viðkomandi sendiráð og sækja um.

Þetta er ekki flókið en eins og Halldór segir þá erum við að tala um ósýnilegan hóp elítunnar sem nær einhvernvegin völdum hér á landi.

Valdimar Samúelsson, 27.8.2017 kl. 16:08

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

Væri það ekki bara þjóðráð að halda bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða okkar hefðbundu kosninugm;  um það hvort að fólk vilji vera áfram í Schengen eða að bakka þaðan út?

Jón Þórhallsson, 27.8.2017 kl. 16:53

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góður Halldór, vel upplýstur að vanda og snarpur.

But the wets will not be convinced !

Nú er farið að kalla þá anti-fattista á Facebók!

Það er vel við hæfi.

Jón Valur Jensson, 27.8.2017 kl. 17:34

6 identicon

Alveg er ég til í þjóðaratkvæðagreiðslu um Schengen og við bætum líka við spurningu um að hefja viðræður við ESB eins og okkur hefur verið lofað.

Svo bara svona ykkur til upplýsinga þá er Bretland ekki í Schengen en það hefur ekki stöðvað hryðjuverk þar.

Og einnig ef þið hafið ekki ferðast lengi þá eru landamæri á íslandi með vopnaðri lögreglu sem hefur fulla heimilt til að stöðva hvern sem er sem þykir óæskilegur inn í landið...

SAT (IP-tala skráð) 28.8.2017 kl. 10:08

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Er það ekki latte lepjandi kaffihúsalýður 101 Reykjavík sem að ræður? Líka þekktur undir Góða Gáfaða Fólkið.

Auðvitað á Ísland ekki að vera í Schengen og ef á að Kjósa um áframhaldandi veru eða brottför úr Schengen, því ekki að skella inn áframhaldandi veru eða bröttför úr EES í leiðini?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 28.8.2017 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband