Leita í fréttum mbl.is

Berufsverbot?

eða svipting atvinnuþekkingar virðist vera efst á baugi hjá þeim sem djöflast á Róberti Árna.

Maður þessi beitti engan ofbeldi, nauðgaði engum heldur keypti sér það sem hann gat keypt.Sem ekki var sjálfsagt við hæfi.

Hann er stöðugt milli tannanna á góða fólkinu vegna þess að hann er lærður lögfræðingur og má aftur vinna á þeim vettvangi. Hann mætti til dæmis rukka alveg eins og að dæma í sakamálum. Nei, hann skal skila ærunni aftur og vera hrakinn allstaðar.

Annar maður nauðgaði fósturdóttur sinni nær daglega til fullorðinsára. Hann fékk líka uppreisn æru um leið og Róbert Árni. Hans nafns er hvergi getið. Fæstir vita hver hann er eða hvað hann má gera og ekki gera. Öllu góða fólkinu virðist sama um það. Er hann betri eða verri en Róbert Árni?

Gyðingar sættu Berfufsverbot(sviptingu atvinnuréttinda) í þriðja ríkinu. Er góða fólkið hér eitthvað betra?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nöfn á þeim sem níðast á fjölskyldumeðlimum eru almennt ekki birt vegna þess að þá hverfur nafnleynd þolanda. En í þessu tilfelli skilst mér að þolandinn hafi gefið leyfi á því að birta nafnið á honum Hjalta Sigurjóni Haukssyni þannig að það hefur víða birst.

Þín skoðun á gjörðum Róberts Downey ber ekki vott um hátt siðferðisstig.

Jói (IP-tala skráð) 30.8.2017 kl. 10:32

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvaðan kemur þér viska til að meta þitt siðferðisstig hærra en mitt?

Það sem ég er að segja að það er munur á því að kaupa vændi eða nauðga með ofbeldi. En þér finnst það að jöfnu eða hvað?

Halldór Jónsson, 30.8.2017 kl. 13:28

3 identicon

Ertu gersamlega galinn og skyni skroppinn? Lestu þetta sem þú hefur skrifað hér að ofan og skammastu þín.

Halldór (IP-tala skráð) 30.8.2017 kl. 14:41

4 identicon

Þú hefur sjúkan huga Halldór líkt og margir félagar þínir í Flokknum. Báðir þessir menn hafa verið í umræðunni undanfarið, báðir eru nauðgarar og hvorugur iðrast gjörða sinna eins og fram hefur komið. En þér finnst það í góðu lagi augljóslega.

Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 30.8.2017 kl. 15:26

5 identicon

Leikstjórinn sem kom fyrir nefndina í dag er sjálfsagt fullur samviskubits yfir að hafa brugðist dóttur sinni en aumt er að allt brennimerkja alla sem honum líkar ekki við

Faðir (IP-tala skráð) 30.8.2017 kl. 17:02

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Fyrir þau siðferðisséní, eins og td. dulnefnið Jóa, sem hafa stærð til að fordæma mig fyrir hugleiðingar þá má vekja athygli á því sem Páll Vilhjálmsson bloggkonungur skrifar:

"Umræðan um uppreisn æru dæmdra manna er í eðli sínu ekki pólitísk og alls ekki flokkspólitísk. Kjarni umræðunnar er hvort og þá hvernig dæmdir menn fái á ný réttindi sem þeir glötuðu vegna dóms.

Þótt umræðan sé ekki pólitísk í venjulegum skilningi orðsins eru á henni margir fletir, sem sjálfsagt er að ræða og meta. Eins og gert er með fjölda frétta og færslna á bloggi og samfélagsmiðlum.

Það er alþingis að setja lög um þetta málefni eins og önnur. Hér var prýðisgott tækifæri fyrir þingmenn að sýna þjóðinni að löggjafasamkoman gæti unnið samhent að úrlausnarefni sem varðar meginreglur, prinsipp.

En þegar þingmenn og þingflokkar æða fram með sína flokkspólitísku útgáfu af lagabreytingum um uppreisn æru vinna þeir málinu tjón. Ekki síður staðfesta þeir orðsporið, sem loðir við þingið, að þingheimur er í varanlegum skotgrafahernaði.

Öllum ætti að vera augljóst að flokkspólitísk niðurstaða í þessu máli getur aldrei orðið almenn niðurstaða, sem byggir á sanngirni og réttsýni. 

Lagabreytingarnar, sem verða samþykktir, munu ekki á nokkurn hátt breyta högum þeirra sem þegar hafa fengið uppreisn æru. Lögin verða ekki afturvirk. Þingmenn ættu að koma sér upp úr skotgröfunum, horfa til framtíðar og setja almannahagsmuni ofar flokkspólitískum stundarhag."

Ærunni verður ekki náð af þeim sem hafa fengið hana aftur, alveg sama hvað andskotast er á útvarpi Sögu eða á Facebook. Lög verða ekki afturvirk. Halldór IP mætti velta því fyrir sér þar sem hann er ekki galinn að eigin áliti. Sigurður Helgi ætti nú að fara að skrifa eitthvað um sjálfan sig og fleira á bloggsíðuna sina sem hann hefur að öllu líkindum bara stofnað til að henda skít í aðra sem hann grunar um að vera Sjálfstæðismenn. 

Halldór Jónsson, 30.8.2017 kl. 17:20

7 identicon

Mergur málsins er sá, að sá sem gengst ekki við brotum sínum og sýnir með því einhverja iðrun ætti ekki að geta fengið uppreist æru. Þessu þarf að breyta í lögunum. Hins vegar er það rétt að ekki er hægt afturkalla orðinn gjörning skv. lögum, því miður. 

Og þrátt fyrir að þolandi Downey sé með sterkt bakland og hafi kosið að taka þennan slag í fjölmiðlum þá rýrir það með engu móti alvarleika brota Hjalta. 

Dóttir (IP-tala skráð) 31.8.2017 kl. 10:28

8 identicon

Tvær athugasemdir við færslu þína Halldór.

    • Þú segir:
      "Maður þessi beitti engan ofbeldi, nauðgaði engum heldur keypti sér það sem hann gat keypt." en sleppir aðalatriðinu, nefnilega að hann hafi keypt barnungar stúlkur. Það breytir öllum forsendum málsins.

    • Svo skal böl bæta... með því að benda á viðbjóðsleg brot Hjalta Sigurjóns Haukssonar.

    Ragnar Þórisson (IP-tala skráð) 31.8.2017 kl. 10:56

    9 Smámynd: Pétur Harðarson

    Það er ekki eins og þessir barnaníðingar hafi dottið í það einu sinni og framið smá barnaníð. Þeir eru alvarlega sjúkir og Róbert var ekkert minna skipulagður og einbeittur í sínum brotum en hinn viðbjóðurinn.

    Þú ert alvarlega siðblindur í þessu máli Halldór Jónsson. Það má vel vera að þetta sé meiri Sjálfstæðisblinda en er jafn skammarlegt fyrir því. Það væri réttast af þér að fjarlægja þennan pistil.

    Pétur Harðarson, 31.8.2017 kl. 11:24

    10 Smámynd: Gissur Örn

    Maður sem misnotar börn hefur ekkert að gera í starfsgrein sem gefur honum færi á að nálgast þau. Samanburður þinn við atvinnubann gyðinga er eins ógeðfelldur og mörg önnur skrif þín þar sem þú ert algerlega siðferðis snauður. 

    Ég er nokkuð viss um að atvinnufrelsi Róberts væri þér ekki svona ofarlega í huga ef hann hefði "keypt" sér munnmök af 14 ára barnabarni þínu. Ef svo er þá ertu enn ógeðfeldari maður en ég hélt. Og hef ég lesið blogg þitt af og til í mörg ár.

    Gissur Örn, 31.8.2017 kl. 11:29

    11 identicon

    Margt aumt, ómerkilegt og mannfjandsamlegt hefur þú skrifað en hérna held ég að þú hafir náð botninum. Þið Róbert getið sullað saman í botnfallinu.

    Halldór (IP-tala skráð) 31.8.2017 kl. 12:36

    12 identicon

    Sæll Halldór

    Það lítið mál að framkvæma ofbeldi með peningum, það er gert út um allan heim daglega. Það hefur verið kalla "afstætt ofbeldi" af heimspekingum. Það var afstætt ofbeldi þegar Davíð Oddsson sett SÍ á hausinn, þjóðin fékk reikninginn en Davíð fór á pólitískt kennitöluflakk.

    Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 31.8.2017 kl. 14:56

    13 Smámynd: Halldór Jónsson

    Ég held að ég nenni ekki að munnhöggvast við þá Mökkurkálfa af Góða fólkinu sem skrifa siðferðisvottorð á mig og Sjálfstæðisflokkinn í athugasemdadálkinn og þora ekki að koma fram nema undir dulnefnum sínum, svo og svo Ip Tala etc.

    Svona kommatittir sem þykast vera á einhverju háu siðferðisplani eru ekki svaraverðir enda málflutningurinn fyrirlitlega ómerkilegur og órökrænn. 

    Halldór Jónsson, 31.8.2017 kl. 22:24

    14 Smámynd: Sigurður Haraldsson

    Ættir að skammast þín Halldór!

    Sigurður Haraldsson, 31.8.2017 kl. 23:53

    15 Smámynd: Halldór Jónsson

    Jæja Sigurður, þú ert ekki að villa á þér heimildir: 

    "Vinn hjá Flokki fólksins að hugsjón. Þjóð með þjóð gegn flokksræði, lygum þess og sjálfsdýrkun. Berjumst gegn fátækkt og mismunun.

     

     

    Halldór Jónsson, 1.9.2017 kl. 07:45

    16 Smámynd: Halldór Jónsson

    Hvort þú ert að afla flokki Ingu Sæland fylgis með þínum sleggjudómum veit ég ekki. En þú er auðvitað frjáls að því.

    Halldór Jónsson, 1.9.2017 kl. 07:46

    17 Smámynd: Pétur Harðarson

    Ég pósta undir nafni og með mynd. Þér er óhætt að munnhöggvast við mig. Ætlarðu að hugleiða það sem ég skrifaði hér fyrir ofan og fjarlægja þennan pistil?

    Pétur Harðarson, 1.9.2017 kl. 09:33

    18 identicon

    Það þarf að breyta lögum um hverjir geti fengið uppreista æru.

    Lögfræðingar sem fremja morð og níðast á börnum eiga ALDREI að fá að starfa sem lögfræðingar aftur, þó þeir hafi afplánað dóm vegna brotsins. Það sama ætti að gilda um t.d. lækna sem brjóta gróflega gegn sjúklingum sínum og kennara sem misnota börn.

    Dagný (IP-tala skráð) 1.9.2017 kl. 13:08

    19 identicon

    Þetta eru með viðbjóðslegri skrifum sem ég hef lesið. Mundi ráðleggja þér að fara til geðlæknis Halldór ef ég héldi að það þjónaði tilgangi. En líklega ertu ólæknandi.

    Hulda Lilliendahl (IP-tala skráð) 2.9.2017 kl. 16:57

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Halldór Jónsson
    Halldór Jónsson

    verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

    -ekki góður í neinu af þessu-

    Heimsóknir

    Flettingar

    • Í dag (18.4.): 0
    • Sl. sólarhring: 9
    • Sl. viku: 57
    • Frá upphafi: 0

    Annað

    • Innlit í dag: 0
    • Innlit sl. viku: 51
    • Gestir í dag: 0
    • IP-tölur í dag: 0

    Uppfært á 3 mín. fresti.
    Skýringar

    Eldri færslur

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband