Leita í fréttum mbl.is

Frítekjumarkið í hundraðþúsund

er stefna Sjálfstæðisflokksins sagði Bjarni Benediktsson á þúsundmanna fundi á Hilton á laugardaginn.

Bjarni boðaði til þessa fundar sem upphaf kosningabaráttunnar sem verður ekki nema 34 daga löng frá deginum í dag.

Sigríður Andersen byrjaði fundinn með því að fara yfir galdrabrennumál undanfarinna vikna.Hún fór yfir það að ekkert hefði komi fram í málflutningnum sem leiddu einhverjar gildar ástæður stjórnarslitanna í ljós. Hún gerði einnig málefni hælisleitenda að umtalsefni og sagði að það þyrfti að vinna að því að koma í veg fyrir að þetta fólk misnotaði velvild Íslendinga til að ná til sín fjármunum og hlunnindum á röngum forsendum.Að þessu yrði að vinna.

Ráðherrarnir Guðlaugur Þór,Þórdís Kolbrún og þingmaðurinn Páll Magnússon ávörpuðu einnig fundinn og mælist þeim öllum vel í brýningum til flokksmanna um að duga nú sem best í baráttunni framundan.

Bjarni Benediktsson flutti snarpa tölu og sagðist hafa heyrt að erlendur fráttamaður hefði spurt hvort dómsmálaráðherrann væri ekki örugglega faðir forsætisráðherrans á Íslandi? Slík væru áhrif þeirra frétta sem stjórnarandstaðan væri að dreifa um víða veröld af stjórnmálaþróun á Íslandi, Hann tiltók að flokkurinn myndi setja heilbrigðismálin í forgang og gefa kjörum aldraðra og öryrkja sérstaka athygli. Flokkurinn myndi stefna að því að frítekjumarkið yrði hækkað í hundraðþúsund. Á næsta ári myndi verða byrjað á meðferðarkjarna Landspítalans og myndi flokkurinn styðja þær framkvæmdir með ráðum og dáð.

Bjarni fór yfir umræðuna og sagði flokkinn myndi svara öllum ásökunum sem kæmu að neðan úr ræsunum  uppi á yfirborði af heiðarleika og því sem satt væri og rétt. Stuttur tími væri til kosninga og ekki væri hægt að halda Landsfund eins og ráðgert hefði verið. Bjarni kom einnig inn á innflytjendamálin og sagði að það hefði verið athugað að taka upp áritanir til Íslands sem myndu geta breytt stöðunni í málaflokknum.

Góður rómur var gerður að máli Bjarna og stóðu fundarmenn ítrekað upp til að klappa honum lof í lófa. Bjarni lauk máli sínu með því að segja að þegar hann stigi niður af ræðupallinum þá væri hann að stiga fyrstu skrefin inn í kosningabaráttuna sem hann svo gerði.

Kosningabarátta Sjálfstæðisflokksins er þar með hafin og má fullyrða að góðri stemningu hafi verið náð upp með þessum fundi þar sem frítekjumarkið verður loks lagfært úr 25.000 krónum í hundraðþúsundin sem löngu tímabært er en mörgum finnst samt væri betur afnumið með öllu eins og í Finnlandi til dæmis.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hefur verið fullyrt að þessi niðurfærsla á frítekjumarkinu hafi verið pólitísk mistök, ríkissjóður hafi ekki grætt krónu á því. Þess vegna af færa það aftur upp í 100 þúsund kosti ríkissjóð ekki krónu. Þetta er frekar tilfinningamál sem auðvelt er að blása út pólitískt en varði í raun tiltölulega fáa en samt nógu marga. Ekki er ástandið gott varðandi leigutekjur aldraðra, þær mega ekki nema krónu án skerðingar á ellilífeyri, þetta gæti varðað mun fleiri en er ekki talað um, væntanlega vegna þess að fólk kann að bjarga sér.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 24.9.2017 kl. 11:06

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sammála þér Örn vinur

ég held að best sé að aldraðir vinni og greiði skatta af því og að þannig verði hagur ríkisins mestur. Ekkert frítekjumark. Svo er mér sagt að sé  í Noregi og Finnlandi.Það er fáránlegt að hér sé ekki hægt fyrir gamlingja að selja gamlan sumarbústað án þess að tapa bótunum. 

Halldór Jónsson, 24.9.2017 kl. 11:55

3 identicon

Ææ. Kæri Halldór hverju lofaði Bjarni Ben. í bréfi 22.april 2013 


Frambjóðandi kom  á sveitabæ  og var að falast eftir atkvæði. Spurði frambjóðandinn hvað hann gæti gert fyrir bónda kæmist hann á þing. Bóndi svaraði að sig vantaði veg heim að bænum. Frambjóðandinn lofaði vegi kæmist hann á þing . Hann komst á þing. Fjórum árum síðar kom hann á bæinn aftur og hitti bónda. Nú spurði hann bónda hvað hann gæti gert fyrir hann.. Bóndi svaraði að hann vantaði veg heim að bænum. Þingmaðurinn sagðist sjá um það. Bóndi spurði þá þingmanninn, Fæ ég þá tvo vegi  

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 24.9.2017 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3417961

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband