Leita í fréttum mbl.is

Ætlum við að standa í lappirnar?

eða láta  ESB kúga okkur til að flytja inn fjölónæmar bakteríur frá Evrópu með hráu kjöti?

Af hverju stöndum við ekki í lappirnar einu sinni og látum ekki kúga okkur?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það er í raun ekki verið að kúga okkur

en við höfum frjálst val

um það hvort að við viljum vera aðilar að EES.

Ég myndi t.d. vilja sjá forseta íslands meta það hvort að vegi þyngra hjá honum kostir eða gallar aðildarinnar að EES-samnningnum?

Jón Þórhallsson, 17.11.2017 kl. 12:45

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæll kæri Halldór.

Má til með að senda þér þessa slóð, þó þessi þráður sé ekki um þetta málefni, en þú hefur skrifað um það af viti áður :

.

http://www.dv.is/frettir/2017/11/17/ovida-er-byssueign-meiri-en-i-sviss-samt-sem-adur-er-litid-um-vodaverk-med-skotvopnum/

.

.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 17.11.2017 kl. 12:49

3 identicon

 Við skulum vona, að formennirnir þrír, sem sitja nú yfir stjórnarmynduninni hafi rætt þetta á fundum sínum og reyni að finna lausn á vandanum. Öll eru þau og flokkar þeirra í reyndinni á móti ESB-aðild, og sjálfsagt ekkert alltof hrifin af þessu arna. A.m.k. á ég eftir að sjá og heyra, hvort Sigurður Ingi og Lilja annars vegar og Haraldur Benediktsson mundi vera hrifin af þessum innflutningi, og á svo sem ekki von á, að Kata eða aðrir í VG hrópi húrra fyrir því heldur. Ég er a.m.k. að vona, að þau muni láta skoðun sína í ljós á þessu, þegar þau hafa klárað stjórnarmyndunina, því að það er eitt af því, sem bíður þeirra að taka afstöðu til þessa, eða athuga, hvað hægt er að gera í málinu, áður en skaðinn er skeður, þegar þau hafa lokið við stjórnarmyndunina. Við skulum sjá til, hverju fram vindur varðandi þetta mál.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2017 kl. 14:18

4 identicon

Það er víst ekki nóg að segja fjölónæmar bakteríur í kjöti frá Evrópu. Rétt eins og það nægir heldur ekki að segja að Íslenska kjötið sé laust við hormóna og sýklalyf. Þó það sé sagt á mjög sannfærandi hátt og með miklum tilfinningahita. Þá bara nægir það ekki þegar rannsóknir sýna að Evrópska kjötið er laust við fjölónæmar bakteríur og lyfjanotkun í Íslenskum landbúnaði eftirlitslaus og órannsökuð. Fullyrðingarnar duga skammt þegar pappírar og pappírsleysi fella þær. Þegar Evrópska kjötið er með alla pappíra stimplaða og vottaða en hið Íslenska selt á undanþágu frá heilbrigðisreglum.

Svo er spurning hvenær Íslenskir bændur ætla að drattast inn í tuttugustu og fyrstu öldina og hætta að miða framleiðsluna við hvað þótti gott 1950. Til dæmis er furðulegt að ekki skuli vera til ferskt lambakjöt nema nokkra daga á ári.

Ufsi (IP-tala skráð) 17.11.2017 kl. 15:03

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Skárri eru það nú kröfurnar! Eftir stórkostlegar framfarir í ræktun landbúnaðarafurða í landinu, hafandi fávizku ESb reglugerðir vofandi yfir sér að tefja fyrir ennþá betri árangri. Sjáum svo hvort ný stjórn sér ekki þægilega möguleika á hagsæld Íslands samhliða ræktun láðs og lýðs.   

Helga Kristjánsdóttir, 17.11.2017 kl. 16:18

6 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hvernig getur það verið kúgun að veita fólki sjálfsákvörðunarrétt um það hvað það lætur ofan í sig?

Þorsteinn Siglaugsson, 17.11.2017 kl. 20:34

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Er það þitt einkamál Þorsteinn ef þú gengur um í þjóðfélaginu með smitandi berkla eða mislinga? Þetta snýst um lýðheilsu.

Halldór Jónsson, 17.11.2017 kl. 23:00

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Ufsi, þú ferð með rangar upplýsingar.

Halldór Jónsson, 17.11.2017 kl. 23:00

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Við erum í kúgunarsambandi og spurningin snýst um það hvort við viljum vera áfram í þessu kúgunarsambandi Jóns Baldvins og félaga. 

Bretar eru á leið útúr Evrópusambandinu og ætla ekki að sækja um aðild að EES. Bretar gengu aldrei í Schengen vegna þess að Schengen var smíðað til þess að hægt væri að aka yfir landamæri innan svæðisins án eftirlits. 

En svosem Bretar vissu sjálfir og mögulega fleiri, að þá er Bretland eyja og þess vegna þurftu þeir ekkert á Schengen að halda. 

Það virðist hinsvegar hafa farið framhjá þeim sem tróðu okkur í þetta Schengen að Ísland er líka eyja.      

Hrólfur Þ Hraundal, 18.11.2017 kl. 08:18

10 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Herðum eftirlit með lofthelginni og snúum fljúgandi fuglaketi við á vorin. Gæsin er sérlega útsmogin þegar kemur að hýsingu sýkla. Aðrir gerlar eru velkomnir flugleiðina.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.11.2017 kl. 14:11

11 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Heldur þú í alvöru að fólk fái berkla eða mislinga af því að borða mat frá útlöndum? Ef svo væri, hvers vegna tekur þú þá ekki að berjast fyrir því að landinu verði lokað, engum útlendingum hleypt inn í landið og engum Íslendingum hleypt út úr því? Sér er nú hver vitleysan!

Þorsteinn Siglaugsson, 19.11.2017 kl. 14:40

12 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ef vandinn væri bara berklar og mislingar, Þorsteinn, væri hann sannarlega ekki stór.

En svo er því miður ekki. Vandinn liggur annarsvegar í stóraukinni hættu á ónæmi við fúkklyfjum hjá mannfólki, staðreynd sem þegar er vöknuð víða erlendis.

Hinsvegar er síðan vissa að íslenskur bústofn hefur ekki sömu varnir gegn landlægum sjúkdómum, sjúkdómum sem eru undirliggjandi.

Það gæti auðveldlega lagt af íslenska bústofna.

Þá fer lítið fyrir valinu?!

Gunnar Heiðarsson, 19.11.2017 kl. 16:17

13 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Átti að standa "erlendis" á eftir undirliggjandi.

Gunnar Heiðarsson, 19.11.2017 kl. 16:19

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég held að Að sé ástæða til að hlusta á það hvað Margrét Guðnadóttir segir.

Gæsirnar eru ekki aldar upp á búum þar sem bakteríurnar búa.

Halldór Jónsson, 20.11.2017 kl. 07:10

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Himar þjóðrinar í EES gea það sem þeim sýnist í þeim málum sem þeim hentar. Bara við hlýðum öllu í blindni af því að þingmenn okkar virðast ekki geta lesið fyrirmælin eða skilið það að Ísland er fullvalda ríki-sovereign state innan EES

Halldór Jónsson, 20.11.2017 kl. 07:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418160

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband