Leita í fréttum mbl.is

Góð tíðindi af vændi

berast í kvöld frá lögreglunni. Íslendingar stunda þessa bráðnauðsynlegu atvinnugrein með sóma. Vondu tíðindin eru hinsvegar þau að vændi er ólöglegt hérlendis að hluta. Það má ekki kaupa vændi þó það megi selja það sem þá útilokar auðvitað alla heiðarlega starfsemi þar sem einhverri skynsemi yrði við komið.

Þessar kellingar í Me-too sem eru síkvartandi yfir káfi og klípum gamalla graðra kalla fá færri árásir ef þetta er leyft. Það vita Þjóðverjar og fleiri þjóðir til dæmis og þar er vændi lögleg atvinnugrein sem það auðvitað á að vera sem sú elsta í heimi. Hér væri miklu meiri nauðsyn á að lögleiða vændi heldur en hassneyslu  til dæmis og heilsufarslega og skattalega hollra fyrir samfélagið að gera svo.

Ef að athugasemdatröllin  ætla að búa til einhvert kyntröll úr mér fyrir að skrifa um þetta þá bendi ég þeim á að kallar á níræðisaldri eru yfirleitt ekki í bráðri þörf fyrir svona starfsemi þó að þeir vilji beita skynsemi á tíðindi af þessum málaflokki sem af öðrum í þjóðfélaginu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Nokkrar konur eru að reyna að koma því inn hjá kynsystrum sínum að það sé ekki við hæfi að þær séu graðar.cool

Mikið nær að kenna þeim að svara fyrir sig og benda þeim á að daður býður upp á viðbrögð.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 22.11.2017 kl. 12:52

2 identicon

"Þér hafið heyrt, að sagt var: 'Þú skalt ekki drýgja hór.' En ég segi yður: Hver sem horfir á konu í girndarhug, hefur þegar drýgt hór með henni í hjarta sínu. Ef hægra auga þitt tælir þig til falls, þá ríf það úr og kasta frá þér. Betra er þér, að einn lima þinna glatist, en öllum líkama þínum verði kastað í helvíti. Ef hægri hönd þín tælir þig til falls, þá sníð hana af og kasta frá þér. Betra er þér, að einn lima þinna glatist, en allur líkami þinn fari til helvítis."

- Jesús Kristur

Hróðvitnir (IP-tala skráð) 22.11.2017 kl. 19:14

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ef menn tækju þetta alvarlega Hróðvitrir þá værum við öll eineygð og einhent eða jafnvel alblind og handalaus. Líka þú. Svona tala bara þeir sem telja sig heilagari en heilagt til að bægja sjónum frá eigin brestum. ;)

Jón Steinar Ragnarsson, 24.11.2017 kl. 06:54

4 identicon

"Gefið ekki hundum það sem heilagt er, og kastið eigi perlum yðar fyrir svín. Þau mundu troða þær undir fótum, og þeir snúa sér við og rífa yður í sig"

- Jesús Kristur

Hróðvitnir (IP-tala skráð) 24.11.2017 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband