Leita í fréttum mbl.is

Stælar

Andrésar Inga og Rósu Bjarkar sem eru kjörin af kjósendum VG til að vinna að heillum þjóðarinnar eru með ólíkindum. Þetta fólk er með billegum stælum að vekja á sér athygli til að þvælast fyrir flokki sínum þegar hann ætlar að axla ábyrgð. Fyrir hvaða flokk eru þau kjörin á þing? Bera þau enga ábyrgð gagnvart flokki sínum? Ætla þau að hlaupa frá borði þegar þeim dettur í hug? Hverskonar uppeldi hefur þetta fólk fengið? Skilur það ekki hugstakið samábyrgð þjóðar og þings?

Þetta fólk styður formann sinn en er samt með þessa billegu auglýsingamennsku fyrir sjálft sig. Vekur vantrú almennings á heilindum stjórnarinnar og meirihluta hennar.

Vonandi uppsker þetta fólk eins og það sáir.Gjalda skaltu lausung við lygi. Stálhörku gegn stælum þessara þingmanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ég sé ekki annað,Halldór minn, en að þú sért bara hinn sælasti með að flokkur þinn sé farinn að kalla sér að kommúnismanum. Það er af sem áður var.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 30.11.2017 kl. 09:51

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Gaman væri að heyra hvaða álit þú hefur á þeim fimm þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem "voru smeð stæla" 1944 og lögðust gegn ríkisstjórn eigin formanns. 

Þau Andrés og Rósa hafa aðeins svarið eitt skyldu drengskaparheit þegar þau urðu þingmenn, "lögðu eið að stjórnarskrá Íslands" og þar með fara aðeins eftir eigin samvisku en ekki að fyrirmælum eins eða neins. 

Ómar Ragnarsson, 30.11.2017 kl. 10:35

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ómari þykir rétt að vekja athygli á skoðunum manna árið 1944 þegar umræðan snýst um 2017.

 

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.11.2017 kl. 11:42

4 identicon

Sæll Halldór -  sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Hingað til: hefur ekki þótt neinn sérstakur heiður að félags skap með Marx- Lenínistum / og því mætti spyrja, hvað valdi sinnaskiptum þínum, gagnvart fólki:: eins og Katrínu Jakobsdóttur og Steingrími J. Sigfússyni, t.d. ?

Þá vekur athygli nokkra - að Sigurður Ingi Jóhannsson og félagar hans ákveða, að velja flugdólginn Ásmund Einar Daðason til félagsmálanna:: mann, sem gárungarnir nefndu á sínum tíma, að hefði spúið (úðað) Rauðvíni nokkru yfir samferðafólk sitt í flugi, Rauðvíni:: sem Birgitta Jónsdóttir átti að hafa innbyrt í allt öðru flugi hér um árið, vestur um haf, um líkt leyti.

Stækka þau Andrés Ingi og Rósa Björk ekki: fremur en hitt, nái þau að gera sér loksins ljóst, hvers lags lánleysis mannskap þau hafi haft sér til fulltingis, til þessa jafnvel:: Halldór minn ?

Kyndug veröld - séu þeir Marx og Lenín orðnir einhverjir helztu mæniásar Sjálfstæðismanna, til viðbótar sjálfum Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, meira að segja.

Með beztu kveðjum engu að síður: af Suðurlandi /

e.s. Og beztu þakkir: sem ætíð, fyrir Sám fóstra. 

  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.11.2017 kl. 12:50

5 identicon

.... með vali Guðmundar Inga Guðbrandssonar: í stól Umhverfisráðherra, mega landsmenn gleyma fullnustugerð Kjalvegar / sem og löngu tímabærri hraðbrautinni, á milli Búðardals og Egilsstaða, svo ekki sé minnst á væntanlegt kjökur þessa drengs, gagnvart lúkningu vegarins um Teigskjarr (''Teigsskóg''), vestra.

ÓHH 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.11.2017 kl. 16:20

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Vissulega er góður bragu

Árni Gunnarsson, 30.11.2017 kl. 17:46

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ólag á tölvunni og læt þessu lokið í bili.

Árni Gunnarsson, 30.11.2017 kl. 18:00

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Sammál þér Heimir! En nú kom skemmtikrafturinn frábæri mér til að hlægja. Ég vil endilega vita hvað Halldór hugsar um þessa löngu liðnu tíð í dag,þótt hann hafi verið afskiptalítill 7 ára.

Helga Kristjánsdóttir, 1.12.2017 kl. 07:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418162

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband