Leita í fréttum mbl.is

LSG

segi ég núna eins og menn sögðu í gamla daga þegar þessi ríkisstjórn hefur litið dagsins ljós. Hún er býsna merkileg og eiginlega ótrúleg miðað við aldur  flokka og fyrri störf.Það hefur sannarlega verið törn að koma saman þessu málefnasamningi. Og nokkuð er ég viss um að Bjarni Benediktsson hefur ekki látið skutinn frýja skriðar með sinni lagni.

Það eru margir hægri menn sem þykjast vera í fýlu yfir að við Sjálfstæðismenn skulum eiga þátt í því að leiða kommana til valda. En verðum við ekki að vera raunsæ? Hvað annað var í boði miðað við þetta tilgangslausa smáflokkakraðak sem bægslast um á Alþingi?

Vildu menn heldur horfa framan í Píratattrýnin? Fannst mönnum þau eftirsóknarverð eftir að horfa á Assange þáttinn? Er þetta lið sem menn vilja sjá í Stjórnarráðinu? Menn lesi bara textann sem Sunna Ævarsdóttir lætur frá sér eftir stjórnarmyndunina. LSG að hún né hennar líkar eru hvergi nærri ríkisstjórn.

Fyrir mig lýsi ég ánægju minni með þessa niðurstöðu, ég held að hún hafi verið sú langskásta í stöðunni. Ég vildi bara að Framsóknarflokkurinn bæri gæfu til að sameinast á ný. það væri ómetanlegt framlag til stjórnmálalegs stöðugleika.En líklega geta smákóngar aldrei lifað tveir í einu.

Nú er spurningin hvort Þórunni og Guðríði í BHM tekst að kollvarpa hér stöðugleikanum eða hvort tekið verði á þeim með þeim tökum sem duga. Þjóðin á allt undir skynsamlegum "kjarasamningum " sem eru nú frekar sjaldgæft fyrirbrigði. Fólk getur ekki skilið það að núll prósent kauphækkun væri sú besta kjarabót sem þjóðin gæti fengið í formi gengishækkunar og verðbólguleysis.En það er víst lítil von. 

En LSG að þetta er í höfn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glatað tækifæri.

Tekin er við ný ríkisstjórn. Með tilurð þessarar ríkisstjórnar sem nú er tekin við, missir Sjálfstæðisflokkurinn tækifæri sem gat verið í augsýn. Í komandi sveitarstjórnarkosningum var tækifæri fyrir  Sjálfstæðisflokkinn  að endurheimta fylgi.  Tækifærið sem  var,  býðst varla næstu áratugina.  Eldri sjálfstæðismenn muna þá tíð þegar styrkur flokksins var á bilinu  40-50% í Reykjavík.  Sjálfstæðisflokkurinn hafði tækifæri  nú til að ná góðum árangri eftir 7 ára óstjórn núverandi meirihluta sem  staðið hefur fyrir  mikilli skuldasöfnun Borgarsjóðs.  Það gladdi marga borgarbúa þegar  nefndur  var maður, Eyþór Arnalds sem gæti verið öflugur  oddviti Sjálfstæðisflokksins. En nú er ótrúlegt  að  hann muni  gefa kost á sér eftir þá stöðu sem Bjarni Ben. er búinn að koma flokknum í.Með því að þvæla flokknum í samstarf við kommúnista, og kominn í samræðuhóp með Degi B. um Borgarlínu.  Í dag má setja samasem merki Katrín Jak, Steingrímur J.  Dagur B. Hjálmar á hjólinu. Bjarni Ben.

Þó öflugur frambjóðandi sem gæfi kost á sér fyrir Sjálfstæðisflokkinn yrði honum  ekkert ágengt.  Hann rækist á veggi. Veggi byggða af núverandi vinstri mönnum.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 1.12.2017 kl. 11:47

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir með þér Halldór að samstarf er betra en tvístrun.  

Hrólfur Þ Hraundal, 1.12.2017 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband