Leita í fréttum mbl.is

Búsæld í Barentshafi?

að því að Magnús Þór Hafsteinsson upplýsir.

Magnús segir:

"Norskir sjómenn og útgerðarmenn kvarta líka þessa dagana. Frá og með morgundeginum lækkar verð á þorski til sjómanna í Noregi um tuttugu prósent. 

 
Þetta er niðurstaða úr samningaviðræðum norska fisksölusamlagsins (Norges Råfisklag)og samtaka fiskkaupenda. Norska sjávarútvegsblaðið Kyst og Fjord greinir frá þessu í dag. Sjá hér. 
 
Formaður norska fiskimannasambandsins (Norges Fiskarlag) kvartar og kveinar sem von er. Það sem skilur þó norska sjómenn og útgerðarmenn frá þeim íslensku er að norskir geta líkast til brosað gegnum tárin.
 
Þorskkvótinn í Barentshafi verður nefnilega aukinn um fjórðung á næsta ári - heil 25 prósent eða um 250 þúsund tonn. Það er mokveiði í Barentshafi og því líklega ódýrara að stunda veiðar en nokkru sinni fyrr. Þar verða veidd minnst milljón tonn af þorski á næsta ári, mesta veiði í 40 ár. 
 
Það verður áhugavert að fylgjast með því hvort stóraukið framboð úr Barentshafi og þetta mikla verðfall á þorski í Noregi muni ekki einmitt setja þrýsting á fiskverð á Íslandi?
 
Og svo er heldur ekkert veiðigjald í Noregi..."
 
 
Hvað er það sem gerir það að verkum að menn veiða næstum eins og þá lystir í Barentshafi og fiskigengdin vex ár frá ári?
 
Getur verið að fæðuskortur vegna offjölgunar hjá þorskinum á Íslandsmiðum sé valdur að þessu? Hefur ekki Jón Kristjánsson verið að segja okkur að við veiðum of lítið og fiskurinn svelti þessvegna?  Vanveiði en ekki ofveiði hafi verið vandamálið á Íslandsmiðum?
 
Að minnsta kosti er skondið að veiðin í Barentshafi vex meðan ekkert gengur hjá okkur þrátt fyrir áratuga stranga veiðistýringu.
 
Aflinn hjá okkur er mestan part svona fjórðungur af jafnstöðuþorskafla fyrri tíma. Eru það kannski bara bankarnir sem eru að stýra veiðinni til að halda uppi veðandlögum sínum í kvótanum en ekki ofveiðin?  Af hverju má ekki ræða kenningar Jóns Kristjánssonar og svo kenningarnar um geymslu fiskjar í sjónum?
 
Búsældarfréttir úr Barentshafi vekja spurningar hjá leikmönnum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Sæll Halldór, 

Hér ert þú að vitna í bloggfærslu mína frá því 2012. 

Mbk, MÞH

Magnús Þór Hafsteinsson, 2.12.2017 kl. 16:20

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Er ekki ástandið gott ennþá?

Halldór Jónsson, 3.12.2017 kl. 16:31

3 Smámynd: Halldór Jónsson

www.isa.is/user/is/news/view/17/23/0/117

+

 

 

segir að þorskvóti  ÍSlendinga  hafi verið aukinn í Barentshafi um 1200 tonn af slægðum þorski.

Halldór Jónsson, 3.12.2017 kl. 18:04

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Einhver truflun í kerfinu. Þeð er verið að segja að þorskvkóti Íslendinga hafi verið aukinn í Barentshafi um 1200 tonn af slægðum þorski núna í ár.Það er ekki minnkun þó að MÞH hafi verið með frétt frá 2012. 

www.isa.is/user/is/news/view/17/23/0/117

 

Halldór Jónsson, 3.12.2017 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband