Leita í fréttum mbl.is

Kratísk sýndarmennska

birtist glöggt í viðtali við meiraprófsnemann Björtu Ólafsdóttur. Þar er þessi kona að reyna að sveipa sig einhverjum hugsjónablæ vegna þess að faðir Bjarna Benediktssonar skrifaði uppá meðmæli fyrir meiraprófsbílstjórann sem var kynferðisglæpamaður hvað sem hann nú hét. Maðurinn var að reyna að f+a vinnu og Bensi vorkenndi honum.

Vonandi er fólk að sjá tilgangsleysi í þessu pólitíska upphlaupi Bjartrar sem er gersamlega úr tengslum  við ríkisstjórnarstarf hennar eða þessara bjálfa úr Bjartri Framtíð. Þeir  þykjast hafa einhverjar hugsjónir eins og Björt heldur fram. En ég kem ekki auga á annað en upphlaup og tilraunir til keilusláttar sem engan tilgang hafa nema að reyna að slá ryki í augu einhverra. 

Það tókst alls ekki á næturfundinum sem þetta lið hélt og vonandi hættir svoleiðis að virka á nokkurn mann. Pólitík er nefnilega langhlaup og list þess mögulega. Þetta er starf sem miðar að því að bæta hlutina en ekki að sprengja og eyðileggja eins og gjarnan er háttur hins ábyrgðarlausa  krataisma, sem Benedikt sálugi Gröndal kynnt svo eftirminnilega í mín eyru. Kratisminn hefur yfirleitt enga  pólitíska staðfestu hefur heldur aðeins upphlaup, sýndarmennsku og ábyrgðarlaus yfirboð á sinni dagskrá.

Eins og Ingibjörg Sólrún stundaði í R-listanum þegar hún keypti fylgilag Alfreðs Gíslasonar við hvaða verði sem var bara til að klekkja á Sjálfstæðisflokknum sem hún tjáði jafnan á innsoginu í hneysklun sinni og hatri.  Nú borga reykvískir kjósendur kostnaðinn af egóflippi Alfreðs sem hélt að hann væri spámaður í málefnum Orkuveitunnar.

Og Ingibjörg Sólrún sýndi sama ábyrgðarleysið þegar hún sprengdi hrunstjórnina hans Geirs, stökk frá borði eins og rotturnar gera þegar skipið þarf að láta úr höfn í hættuför. Hún bjargaði sjálfri sér kannski í land en það verða fáir Sjálfstæðismenn sem treysta krötum aftur í neinni pólitískri mynd, þeirra óhreinlyndi er með þeim hætti að enginn getur átt náttstað undir exi þeirra.

Þeirra er aldrei nema kratísk sýndarmennska og gott að þeir eru hvergi nærri nýrri ríkisstjórn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 3418197

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband