Leita í fréttum mbl.is

Borgarlínan enn

er lofsungin af starfsmanni  Dags Bergþórusonar í Morgunblaðinu í dag Eyjólfi árna Rafnssyni. 

Hann segir svo:

"Á undanförnum vikum og mánuðum hefur talsvert verið rætt um verkefni sem heitir Borgarlína. Eins og oft vill verða, þegar nægar upplýsingar liggja ekki á lausu, færist slík umræða að einhverju leyti frá staðreyndum yfir í getgátur. Með þessu stutta greinarkorni vill undirritaður koma á framfæri nokkrum staðreyndum um verkefnið og greiða þannig fyrir áframhaldandi umræðu.

Hvað er Borgarlína?

Borgarlína er heiti fyrir samvinnuverkefni sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um hágæðaalmenningssamgöngur. Meðal sveitarfélaganna ríkir góð og þverpólitísk samstaða um að góðar almenningssamgöngur séu ein af grunnforsendum fyrir hagkvæmu og vistvænu samfélagi. Borgarlínan er mikilvæg til að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Talsverð vinna við verkefnið hefur farið fram í tæpt ár og staða þess er í meginatriðum sem hér segir:

Ákveðið hefur verið að efla almenningssamgöngur svo þær verði raunverulegur valkostur við einkabílinn.

Hágæðaalmenningssamgöngur eru byggðar á háu þjónustustigi sem m.a. felst í mikilli flutningsgetu, hárri tíðni ferða, áreiðanleika í ferðatíma, stundvísi, þægindum og góðum bið- og skiptistöðvum.

Miðað er við að Borgarlínan verði hraðvagnakerfi sem byggist á stórum lið- vögnum og að þeir geti flutt allt að 150 farþega í einu.

Núverandi kerfi strætó leggst ekki af en hlutverkið mun breytast og fyrst og fremst snúast um að koma farþegum að og frá Borgarlínu og þjóna einstökum hverfum sveitarfélaganna. Best þjónusta næst með því að Borgarlínan verði sem mest í sérrými, eða á sérstökum akbrautum, líkt og sjá má vísi að á Miklubraut frá Snorrabraut að Elliðaám.

Til þess að tryggja til langs tíma að uppbygging sérrýma verði markviss er mikilvægt að samræma skipulag sveitarfé- laganna. Að því er unnið með breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Þegar skipulagið liggur fyrir er hægt að hefjast handa við verkefnið sjálft.

Kostnaður við gerð innviða fyrir Borgarlínuna, þ.e. sérrými fyrir almenningsvagna, gatnamót, biðstöðvar og upplýsingakerfi, er metinn um 1,2 milljarðar króna á hvern km sérrýmis. Þau sérrými sem þegar hafa verið gerð styðja það kostnaðarmat og einnig erlendar kostnaðartölur úr sambærilegum verkefnum. Þar má m.a. nefna verkefni sem unnið er að á Stavanger-svæðinu í Noregi.

Enn á eftir að taka ákvörðun um hver heildarvegalengd kerfisins verður en hún er áætluð um 58 km samkvæmt skipulagshugmyndum sem nú liggja fyrir.

Heildarkostnaður er því metinn 65-70 milljarðar króna og hann mun dreifast á áratugi.

Farið verður í verkefnið í áföngum eftir því sem fjárveitingar og fjármagn leyfa og hafist handa þar sem þörfin er mest.

Borgarlína ein og sér, eða almenningssamgöngur yfirhöfuð, geta aldrei orðið hin eina sanna lausn í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu frekar en einkabíllinn. Samspil þessara samgöngumáta þarf til. Við lausn samgöngumála vilja kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu nýta fjármagn almennings sem best til að bæta flæði umferðarinnar. Að því er unnið af mikilli ábyrgð, í samstarfi við Vegagerðina og samgönguráðuneytið. Á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hefur verið lögð fram til kynningar tillaga um breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sem einkum felst í að marka legu samgöngu og þróunarása fyrir Borgarlínu.

Sjá nánar ítarefni um Borgarlínu á slóðinni: borgarlinan.is "

Þarna er sú dæmalausa ákvarðanataka Dags B. Eggertssonar um stofnun Borgarlínu lögð á borðið fyrir kjósendur.

Samkvæmt 1, Mósebók Dags er ákvörðunin gerð svona:

"Ákveðið hefur verið að efla almenningssamgöngur svo þær verði raunverulegur valkostur við einkabílinn."

Samkvæmt 2. Mósebók Dags B. Eggertssonar er ákvörðunin gerð svona:

"Miðað er við að Borgarlínan verði hraðvagnakerfi sem byggist á stórum liðvögnum og að þeir geti flutt allt að 150 farþega í einu."

Það sjá væntanlega allir hversu fáránleg öll þessi ákvarðanataka er og ólýðræðisleg, Bara Diktum einræðisseggsins Dags B. Eggertssonar og sem hann er búínn að fífla flesta sveitarstjórnarmenn í nágrenni sínu til að veita í það minnsta  varasamþykki fyrir.

Hann er búinn að ráða þennan Eyjólf uppá milljónir til að halda áfram með bullið sem allir sjá að mun aldrei virka.Borgarlína leysir engar flóknar ferðaþarfir almennings. Það blasir við öllu heilskyggnu fólki. Fólkið hefur valið einkabílinn sem sitt samgöngutæki enda það eina sem dugar. Einkabíllinn verður fólksins farartæki áfram þrátt fyrir skemmdarverk Dags á gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins og spellvirki hans við staðarval Sundabrautar.

Það er lífsnauðsyn fyrir alla framþróun umferðarmála höfuðborgarsvæðisins að koma þessum sjálfskipaða Móse Degi B. Eggertssyni frá völdum í kosningunum í vor og sjá til þess að enginn sveitarstjórnarmaður í nágrenninu komi nálægt samstarfi við Reykjavíkurborg um Borgarlínu færi svo slysalega að þessar hugmyndir lifi kosningarnar af sem vonandi verður ekki.

Einkabíllinn lifi en ekki Borgarlínan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sem dæmi um hvað Borgarlínan er varhugsuð er leggurinn upp í Mos.  Talið er að hann muni kosta um 10.000.000.000 króna, 10 milljarða amk. Það verður líklega flýting um þrjár mínútur úr Mos niður í Ártúnsholt. Vá! Raunkosnaður per farþega yrði þá kannski um 15.000 per ferð! Dæmi sem gengur ekki upp. Það er hvergi sagt fá þvi að til þess að taka Borgarlínu, nærri því hvar sem þú býrð, þarftu fyrst að taka strætó að henni. Svo er hún auðvitað ekki að fara þangað sem þú ert að fara, nei þá tekur þú aftur strætó. Sama heim aftur. Hefur verið gerð farþegaspá? Ég efast um það.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 9.12.2017 kl. 00:04

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Heimskan er svo gersamlega innbyggð í hugmyndina félagi Örn að engum nema Degi Bég og EssBirni hefði getað dottið þetta í hug. Ömurlegt að þurfa að eyða orku í að andmæla þessu bulli sem allir sjá í gegn um nema þeir og þeir hafa völdin-ennþá.

Halldór Jónsson, 9.12.2017 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband