Leita í fréttum mbl.is

Getur Ísland tapast?

með auknum áhrifum ungra stjórnmálakvenna í Sjálfstæðisflokknum sem vilja aukinn straum múslímskra hælisleitenda  og flóttamanna til landsins?Þær halda því blákalt fram að þetta sé nauðsynlegt fyrir aukin hagvöxt í landinu, stuðli að aukinni fjölmenningu og víðsýni á Íslandi og meira umburðarlyndi á alþjóðavettvangi.

Þær neita því að Islam sé stjórnmálaafl sem boði kynjabundið  misrétti og kvennakúgun heldur megi laga og sætta slík sjónarmið við okkar jafnréttissjónrmið.  Það verði aðeins að rökræða við þetta fólk til þess að allt falli í ljúfa löð í samlífi ólíkra menningarheima. Okkar heims sé skyldan til að ná sögulegum sáttum við hinn múslímska með nauðsynlegri eftirgjöf og málamiðlun.  Okkar sé skyldan því að við séum ekki eins formföst og eigum betra með að aðlagast vegna víðsýni og þróaðs kærleika kristinnar trúar.  Við getum þess vegna hugsanlega sæst á tímabundna upptöku sharíalaga vegna víðsýni kristinna lífsviðhorfa.

Ekki eru endilega allir flokksmenn sammála þessum viðhorfum þessara forystukvenna og halda því fram að dagar uppgjörsins á Vesturlömdum  muni koma eins og varð á Spáni í tíð Ferdínands og Ísabellu. Spurning er hvort Islamiséring Vesturlanda almennt muni ganga svo fyrir sig sem þessar ungu konur boða.

Þó má velta fyrir sér hvort uppgangur AfD í Þýskalandi og viðgangur slíkra þjóðlegra stjórnmálaafla sé ekki þróun sem muni skjóta rótum hér á Íslandi ef aðeins afneitum er í boði á vettvangi hefðbundinna stjórnmálafla eins og  Sjálfstæðisflokksins?  Geta menn neitað umræðum á grundvelli skilgreindra forboðinna viðhorfa?

Verða menn ekki að velta því fyrir sér hvort mögulegt sé að Ísland geti hreinlega tapast í þeirri mynd sem við nú þekkjum ef svo fer fram sem horfir? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ISLAMisering, er lítið annað en afturhvarf til miðalda. Ísland, er þegar tapað ... vegna þess, að ungar "konur" og "feministar" sjá ekki lengra en nef þeirra nær.

Trúarbrögð eiga hverki heima í nútíma samfélaga, en eins og saga mankyns kennir okkur, þá hefur mankynið þróast og síðan hörfað aftur til myrku miðalda ... og þetta er einnig á dagskrá í dag, með aðstoð "góða fólksins", feministum og góðum konum.

Það er lítið hægt að gera í þessu, við getum "reynt" að benda á báðar hliðar málsins.  En við getum bara bennt ... við höfum engin önnur öfl okkur til handagagns.

Að Íslendingar tapi landi sínu, og þjóðin hverfi í tímans tönn ... er sorglegt, en þetta vill þjóðin sjálf.  Hún getur sjálfum sér um kennt.

Kreppuannáll (IP-tala skráð) 10.12.2017 kl. 00:08

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hreyfing slíkra eins og Alterna í Þýskalandi er greinilega á góðri uppleið hér!

Helga Kristjánsdóttir, 10.12.2017 kl. 02:36

3 identicon

Menn velta því fyrir sér hvort mögulegt sé að Ísland geti hreinlega tapast í þeirri mynd sem við nú þekkjum. Að með tíð og tíma hverfi fordómafullir kvennhatarar, karlrembupungar, rasistar og gömul tröll sem eru eins föst í miðaldahugsun og verstu öfga múslimar. Já, menn velta því fyrir sér. En mannleysur velta því fyrir sér hvort mögulegt sé að Ísland geti hreinlega tapast í þeirri mynd sem engir nema fáeinir þröngsýnir afturhaldsseggir með einangrunaráráttu vilja halda því í.

Gústi (IP-tala skráð) 10.12.2017 kl. 03:41

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hvað er þetta vandlátur ,,að velta fyrir sér,er bara tegund af tjáningu.Allskonar seggir eru samfó okkur,líka þeir í fjölmenninu margir stórvarasamir eins og dæmin sanna. Bannsettans pjatt er þetta homo sapiens er bara eins og þú,er það ekki motto;? Íslands þúsund ár....

Helga Kristjánsdóttir, 10.12.2017 kl. 06:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418194

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband