Leita í fréttum mbl.is

"Áramótaandvarp

Lífið er óslitin óreiða frá fæðingu til dauða. Stjórnlaus hraðlest hörmunga, áfalla og vonbrigða. Ferðin er þó góðu heilli vörðuð gleðistundum og fallegum augnablikum. Leiðarljóssglætum í myrkrinu.

Flokkunarþörf mannkyns kallaði yfir okkur annars fullkomlega óþörf tímamótin. Með þeim reynum við að hólfa tilveruna niður í sekúndur, mínútur, daga, mánuði og ár. Fyrst og fremst til þess að afmarka þjáningar okkar og annarra.

Og auðvitað að auðvelda lánardrottnum að halda utan um vorar skuldir. Ég meina, hvers virði væri verðtryggingin ef engin væru mánaðamótin? Fátt er meira niðurdrepandi en að standa eins og glópur á áramótum, ímynduðum kaflaskilum, og rifja upp liðnar hörmungar síðustu 365 daga. Í meginatriðum er þetta alltaf eins. Ár eftir ár. Á árinu sem er að líða var saklausu fólki slátrað í tilgangslausum stríðum, hryðjuverkamenn völtuðu yfir börn, mæður og feður á gleðistundum, limlestu og drápu. Hér heima rákum við börn í leit að betra lífi út í óttann og óvissuna og rifumst um alls konar fáránlega dellu eins og himinn og jörð væru í húfi. Á næsta ári verður þetta allt endurtekið, ýmist nákvæmlega eða með tilbrigðum.

Í byrjun síðasta árs settist sturlaður ruddi að í Hvíta húsinu. Við erum samt hérna enn. Hann verður heimsbyggðinni áfram til ama og óþæginda allt næsta ár og gott betur. En við munum halda áfram. Að hatast, æðrast og gráta en elskumst líka, hlæjum og gleðjumst. Stundum. Lífið er nefnilega þrátt fyrir allt stórkostlegt kraftaverk og er fyrir einhvern óskiljanlegan galdur þess virði að lifa því. Alveg óháð því hvort við reynum að hólfa það niður í daga, vikur, mánuði og ár.

Vituð ér enn eða hvat?"

Þetta skrifar einhver Þórarinn Þórarinsson í Fréttablaðið í dag sem ég veit sem betur fer engin deili á hver er og langar ekki að vita. Hvaðan þessari vinstrisinnuðu mannvitsbrekku kemur viska til að úrskurða Bandaríkjamenn fífl upp til hópa sem kusu þennan mann í Hvítahúsið reyni ég ekki að skilja.  Hvaðan kemur þessi óendanlega viska til að stjórna heiminum betur en Donald Trump eins og svona skrif lýsa?

Maður getur stundum andvarpað yfir fáfræði heimsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418198

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband