Leita í fréttum mbl.is

Fáránlegt

er það af forsætisráðherra að fara með lúkurnar ofan í ríkiskassann til að borga fólki utan úr bæ  fyrir ráð um það hvernig eigi að fá fólk til að elska Alþingismenn sem eru búnir að glata allri tiltrú kjósenda fyrir aulahátt, illt innræti, sérgæsku og siðferðisbresti.

Al Capone gaf fé til mannúðarmála og mörgum varð minna í nöp við hann fyrir. Hann fór ekki fyrst ofan í vasann hjá þiggjendunum til að gefa þeim féð aftur eða skar rófuna af hundunum til að gefa þeim að éta eins og nú á greinilega að gera.

Hver á að bæta laskaða ímynd íslenskra stjórnmálamanna aðrir en þeir sem hafa dregið hana niður í svaðið? Geta keyptir ímyndarfræðingar lagað stöðuna nægilega svo þeir sjálfir geti haldið áfram að sukka og darka í svínaríi? Eru það bara gömlu og reyndu stjórnmálamennirnir eins og Katrín sjálf sem bera uppi álit almennings? Bera nýliðar á þingi enga ábyrgð á áliti  almennings á Alþingi? Munu störf þeirra engu breyta?

Er þetta ekki aldeilis fáránleg ráðstöfun?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég get lagfært óvinsæld Alþingismanna fyrir ekki neina fjármuna greiðslu og gert það með einni stuttri setningu.

Alþingismenn standið þið við kosningarloforðin og ég garentera að vinsældir ykkar muni batna.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 7.1.2018 kl. 19:10

2 identicon

Sammála. Það hefði ég nú haldið. Þetta er gjörsamlega glatað lið allt saman, í borgarstjórninni líka. Það getur enginn breytt ímynd manns nema maður sjálfur. Þetta hefur láðst að kenna þessum krökkum, sem eru á Alþingi. Þeir eru teljandi á fingrunum inná Alþingi í dag, sem gera sér grein fyrir, til hvers þeir eru þar. Hinir eru þar, virðist vera, "af því bara" og af því að það er gaman að prófa það svo sem einu sinni að vera inná þeirri stofnun, sem á að heita sú virðulegasta í þjóðfélaginu. Hins vegar gleymir þetta fólk því, að þessi stofnun krefst virðingar þeirra, sem starfa þar inni, og sömuleiðis fyrir þeirri þjóð, sem hún á að þjóna með störfum sínum þar. Það vantar mikið á það. Öllu virðist fara aftur, því miður, og ekki gott að segja til um, hvað þarf til þess að endurheimta virðingu þeirra sjálfra fyrir stofnun sinni en ekki síður störfum sínum fyrir þá stofnun. Þar í liggur vandinn. Svo er það annað, sem gerir þetta erfitt, og það er, þegar fólk situr varla meira en eitt kjörtímabil þar inni, og nær þá varla að kynnast Alþingi eða þeim kröfum, sem störf þar inni heimta, og fólk heldur, að það sé hægt að hlaupa í þetta eins og önnur störf, og enginn vandi sé að sinna, og það sé hægt að sinna þeim störfum eins og öðrum, sem er ekki. Þegar svo er hugsað, þá fer allt í steik, og Alþingi setur niður. Það þarf að breyta þessum hugsunarhætti hjá fólki, svo eitthvað vit verði í hlutunum. Annað gengur ekki. Hvort nefnd einhverra ímyndarfræðinga geti gert eitthvað í þeim málum, er svo annað mál. Ég stórefast um það, því að þetta liggur líka í uppeldinu. Fólk þarf að vita, hvert það er komið, þegar það kemur inn á Alþingi, en það virðist vanta mikið á það, því miður. Á meðan fólk gerir sér ekki grein fyrir stöðu Alþingis í þjóðfélaginu, og hagar sér samkvæmt því, þá er ekki gott við það að eiga. Svo mikið er víst.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 7.1.2018 kl. 19:25

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Já takk bæði þið hafið rétt fyrir ykkur.

Guðbjörg, þú sérð þetta ansi skýrt sem Katrín þyrfti að tileinka sér í framhaldinu. Það getur enginn byggt upp hennar orðspor nema hún sjálf. Það gerir enginn fyrir hana né annan Alþingismann.

Halldór Jónsson, 7.1.2018 kl. 23:09

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Þegar þingmenn, að maður tali nú ekki um forsætisráðherra/dömu Íslands,  þurfa að setja af stað starfshóp, til að finna leiðréttingu á almenningsálitinu á sjálfum sér, er illa komið fyrir viðkomandi.

 Þessi andskotans þvæla gerir ekkert annað en draga álit og traust almennings, á þessum aumu launþegum almennings, í boði Kjararáðs, á kostnað almennings að engu. Vona að þetta þríeyki núverandi stjórnar, sem ekkert virðist ætla að standa fyrir, annað en status Q, riði til falls sem fyrst. Helst strax.

 Þrettándinn rétt liðinn og afborganir af lánum þegar hækkað um formúu og fjármagnseigendur og ríkið kætast, með hundruða milljóna auknar greiðslur af lántakendum og bíleigendum. Allt á kostnað almennings. Afrakstur launabaráttu þurrkaður út með einu pennastriki, í nafni "Global Warming" og annars andskotans rugls.

 Djöfull sem sósíalismi andskotans er kominn upp margar hæðir í Valhöll. Hélt í einfeldni minni, sem sannur Sjálfstæðismaður, að kratar væru komnir þangað helst til langt, en sé nú að Lenín er farinn að nálgast efstu hæðina og verður sennilega í sólbaði á þakinu í sumar.

 Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að vera, undir núverandi stjórn. Vinstri Grænir eru búnir að vera, undir núverandi stjórn. Ráðherrastólar hafa blindað forsvarsmenn þessara flokka og hent þeim í ruslflokk. Enginn starfshópur getur þar lagað neitt.

 Framsóknarmaddaman situr eftir eins og portkona, sem ávallt býður betri kjör fyrir samfylgdina. Raðgreiðslur, paypal eða "what ever". Bara eitthvað, fyrir stól eins og hinir.

 Andskotinn sjálfur.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 8.1.2018 kl. 04:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418132

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband