Leita í fréttum mbl.is

ICBM

var mér tamt hugtak fyrir svona hálfri öld síðan. Þá starfaði ég hjá Almannavörnum á hápunkti kalda stríðsins þegar hættan af kjarnorku árás Rússa á Ísland var raunveruleg.Við héldum þá að aðeins Keflavíkurflugvöllur væri á skotmarkaskrá en kunningi minn fékk það staðfest í Moskvu að Reykjavík var einnig ákveðið skotmark fyrir held ég 2 megatonna bombu.

Þá var engin leið til að verjast ICBM (Milliheimsálfaflugskeyti) þegar þau voru komin á loft. Það er heldur ekki hægt svo vitað sé enn þann dag í dag)

Árin liðu og nú er hættan ekki lengur talin koma mest frá Rússum.

Nú eru óvitar komnir með eldspýtur. Kim Jong Un er einræðisherra Norður Kóreu. Hann sá hvernig fór fyrir Saddam Hússein. Með því að hóta kjarnorkuárás á Bandaríkin sér hann leið til að sér verði ekki steypt af stóli. Fleiri slík óargadýr munu geta fylgt á eftir víða um heim, til dæmis í Íran, Pakistan eða Kína.

Nái hann Kim að skjóta bara einu ICBM á loft sem er miðað á Bandaríkin líða ekki margar mínútur þangað til að kjarnorkustyrjöld er hafin. Mörg megatonn verða líklega óhjákvæmilega á leiðinni til Norður Kóreu. Það er ólíklegt að Bandaríkin bíði með gagnárás eftir að hafa horft á eftir ægilegu tjóni á sínu landi og fólki. 

Mikið af þeim sprengingum verða jarðsprengingar en aðrar loftsprengingar og hugsanlega neutronusprengingar. Þær fyrstnefndu þyrla banvænu geislavirku úrfelli upp í háloftin sem munu drepa flest kvikt á stórum svæðum í kring um gereydda Norður Kóreu. Vandamálin af rotnun dauðs lífmassa milljóna manna eg dýra eru ófyrirsjáanleg. Mannfjöldinn sem ferst verður ekki talinn í milljónum heldur stóru margfeldi af því fljótlega og dýralíf ekki í minni fjölda. Skordýrin, vírusar og sóttkveikjur munu hinsvegar líklega lifa af í miklum mæli. 

Eftir þetta mun fylgja sólarlaus kjarnorkuvetur í marga mánuði  með fimbulkulda sem mun drepa milljónir í viðbót úr harðrétti og hungri.

Slíkur er máttur þessa eina manns Kim Jong Un og meðreiðarsveina hans til að tortíma. Og hann hugsar líklega ekki öðruvísi en Adolf Hitler sem sagði í Apríl 1945 að Þýskaland væri ekki vert þess að fá að lifa án sín og skipaði að öllu skyldi eytt áður en landið yrði hernumið. Albert Speer hætti lífi sínu með þvi að segja honum á lokadögunum að hann myndi ekki hlýða þessari skipun.Og Adolf lét gott heita. Hvað finnst Kim Jong Un sinni útför og endalokum hæfa? 

Hættan af Kim er raunveruleg því að þessi maður er ekki eins og fólk er flest.

Hann á ICBM Hwasong-4 sem nær til Bandaríkjanna á hálftíma frá skoti. Líklega óstöðvandi hafi Bandaríkjamenn ekki þegar vald yfir tölvukerfum hans sem hugsanlegt er þó ekkert sé um það vitað með vissu.

Það getur liði langur tími þar til að jörðin rís aftur upp iðjagræn eins og lýst var í Ragnarökum Surtsloga. Jafnvel hundruðir ára. Offjölgunarvandamál mmannkynsins hefur þó allavega vikið til hliðar um stund.

ICBM er sem fyrr rauunveruleg ógn sem vofir yfir yfir mannkyninu öllu eins og var fyrir hálfri öld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Einar Hansen

Maður sér stundum í bíómyndum, þegar einhver söguhetjan tekur hnífin sinn og kastar að flugu.  Eða byssu-slyngari, tekur byssuna og skýtur tvær flugur með einni kúlu.

Að halda að Íslandi hafi einhvern tíma, verið "skotmark" Rússa ... er maður ekki alveg heill í kollinum.

Örn Einar Hansen, 9.1.2018 kl. 14:39

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei Bjarni þetta er staðreyn.  Vinur minn hitti manninn sem var yfir trailernurm sem stýrði flauginni sem var miðað a Reykjavik og talaði við hann. Honum fannst það ekkert merkilegt en svona var það.

Halldór Jónsson, 9.1.2018 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband