Leita í fréttum mbl.is

Árangur Trumps

í samanburði við Obama-stjórnina er þessi skv. samantekt Fox-News:

 

  • 250 þúsund ný atvinnutækifæri urðu til í desember 2017 (það mesta á 9 mán. tímabili)
  • Uppsagnir með minnsta móti síðan 1990
  • Atvinnuleysi það lægsta í 17 ár
  • 2,1 milljón ný störf sköpuð í valdatíð Trumps 
  • Framleiðsla í Bandaríkjunum er nú sú mesta síðan 2004
  • Matarmiðar með minnsta móti í 7 ár, hefur fækkað um 2 milljónir manns síðan Trump tók við
  • Opnað fyrir olíuborun á hafssvæðum sem lið í að Bandaríkin verði óháð öðrum með orku
  • Einfaldara regluverk, fyrir hverja nýja lagagrein eru 16 gamlar skornar niður.
  • Yfir 3% hagvöxtur tvo ársfjórðunga í röð

Árangurinn ofan kom í ljós ÁÐUR en skattaniðurskurður ríkisstjórnar Donald Trumps upp á 1,5 billjónir dollara var ákveðinn.

Til samanburðar má bera árangur Trumps við afrekaskrá Obama:

  • Lægsta vinnuframboð síðan 1970
  • Um 95 milljónir manns misstu atvinnuna
  • Minnsti hagvöxtur síðan 1940
  • Minnsta eignarhald á húsnæði í 51 ár
  • Um 13 milljónir fleiri Bandaríkjamenn á matarmiðum
  • Um 43 milljónir Bandaríkjamanna í fátækt

Hversvegna kusu Bandaríkjamenn Trump en ekki Hillary og Demokratana? Svarið er einfalt. Fólk var uppgefið á sósíalistunum. Þeir lofa bara út í loftið eins og Dagur Bé. þegar han boðar auknar íbúðabyggingar eftir einhver ár, bara ekki núna.

Verður það sama uppi á teningnum á Íslandi eða höldum við áfram að trúa dellunni í Degi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristmann Magnússon

Hver trúir Fox News.  Þeir eru snillingar í Fake News 

Kristmann Magnússon, 28.1.2018 kl. 18:55

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Vert að geta þess sem vel er gert.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 28.1.2018 kl. 19:10

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Obama tók við embætti nokkrum mánuðum eftir mesta efnahagshrun í marga áratugi. Þúsundir fyrirtækja fóru á hausinn í kjölfar óstjórnar George W. Bush í átta ár. 

Meira að segja var risinn Generel Motors á hausnum og þurfti að fara í gjörgæslu.  

Ómar Ragnarsson, 28.1.2018 kl. 19:21

4 identicon

Árangurinn að ofan kom í ljós áður en skattaniðurskurður ríkisstjórnar Donald Trumps upp á 1,5 billjónir dollara til hinna efnameiri var ákveðinn. Enda koma afleiðingar hans ekki fram fyrr en í Ágúst á þessu ári.

Og árangurinn að ofan kom í ljós áður en flest það sem Trump hefur gert hefur haft merkjanleg áhrif. Árangurinn að ofan er dæmi um það að Trump tók við góðu búi, hvernig hann spilar úr því á eftir að koma í ljós.

Til dæmis má benda á það að þó 250 þúsund ný atvinnutækifæri hafi orðið til í desember 2017 þá hafa ekki skapast færri störf á árinu síðan 2013 og fjárlagahallinn ekki verið  meiri.

Það er auðvelt að búa til fallega mynd þegar öllu óþægilegu er bara sleppt. Og það er enginn skortur á vitgrönnu fólki sem tekur svona upptalningu gagnrýnislaust og trúir eins og um vandaðan fréttaflutning væri að ræða en ekki hálfsannleik og útúrsnúninga.

Gústi (IP-tala skráð) 28.1.2018 kl. 19:24

5 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Gleymum því ekki, að það var Clinton sem afnám höftin

2005, sem voru sett á 1929, eftir hrunið sem varð þá.

Það var sett á svo að banka og fjármalafyrirtæki gætu ekki

leikið sama leikin aftur. Svo varð raunin.

Allt í boði demókrata.

Þægilegt alltaf, þegar kemur að vitgrönnu fólki

sem aðhyllist demkókrötum eða vinsri slagsíðum,

hversu auðvelt er að gleyma því sem þessi stefna

til vinstri kostar okkur.

Flott hjá þér Gústi nafnlausi, að reyna búa til

sannleika úr raunveruleika sem átti sér stað.

Þegar heimsagan er skoðuð, kemur alltaf í ljós,

að það eru vinsri öfl aem alla tíð hafa skapað

vesöld og örbyrgð.

Nægir að benda Gústa á, að eitt af hans uppáhaldslöndum,

þar sem þessir vesalingar komust til valda, er

Venúsela. Eitt ríkasta land í Suður-Ameríku, komið algjölega

botninn vegna þessa fólks.

Og hverjum kenna þeir um...???

Jú, ákkurat. Vinsri manna siður, öllum öðrum en þeim.

Lesa söguna Gústi. Sovétríkin sálugu, Austur Þýskaland,

tala nú ekki um Norður Kóreu sem þig dreymir að flytja til.

Allt gjörsamlega rúið og búið vegna þessara draumóra

að allir skulu hafa það jafn slæmt.

Allir þessir tímar, sem vinstri og kommúnistar hafa komist til

valda, hefur alltaf verið undanteknigalaust byggt á lygi.

Örbyrgð, fátætk, hungur og allt í klessu.

Það er árið 2018, og allt þetta vonlaiusa lið, sem ennþá

reynir að ljúga sig til valda,fer á ruslahauga mannkynssögunar.

Þeirra verður minnst, sem fólks, sem vildi að allir

hefðu það jafn slæmt.

Donald tók ekk við góðu búi. Hann tók við ömurlega

lélegu ástandi og er að snúa því við.

Hann hefur þor og dug og það er eitthvað

sem demókratar haf aldrei haft.

Sama á við pólitíkusa hér heima.

Sigurður Kristján Hjaltested, 28.1.2018 kl. 23:00

6 identicon

Já Sigurður, þjófnaður og sjálftaka hægrimanna, rán á bönkum innanfrá og skefjalaus rányrkja er vinstrimönnum um að kenna. Þeim var nær að trúa loforðum hægrimanna um að þeim væri treystandi til að sjá um eftirlit og skynsama stýringu markaðarins sjálfir. Vinstrimenn áttu að vita það að loforð hægrimanna eru einskis virði ef peningar eru í spilinu og heiðarleika þeirra hvergi að finna.

En það var ekki Clinton sem var búinn að sitja á forsetastól í 6 ár þegar efnahagshrunið varð. Og Davíð Oddson sló met í setu sem forsætisráðherra rétt fyrir hrun, og ekki er hann vinstri maður. Eini pólitíkusinn sem hlaut dóm fyrir aðkomu að hruninu var heldur ekki vinstri maður. Og útrásarvíkingarnir held ég að hafi ekki verið kommar.

En vinstrimönnum er um að kenna, þeir eru sekir --- ef það að skjóta ekki hægrimenn á færi þegar tækifæri gefst er glæpurinn.

Gústi (IP-tala skráð) 29.1.2018 kl. 01:12

7 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"En vinstrimönnum er um að kenna, þeir eru sekir --- ef það að skjóta ekki hægrimenn á færi þegar tækifæri gefst er glæpurinn."

Leftistar hafa oft gert það - Sovétið gerði ekkert annað, þess vegna, A: var engin fólksfjölgun þar allan sovéttímann, B: þeir komu jarðefnaauðugasta landi jarðar á hausinn.

Rauðu Khmerarnir gerðu það, og landið er enn 3ja heims ríki fyrir vikið.

Nazistar gerðu það, og eru frægir fyrir (þá sumir þræti fyrir.)

Leftistar eru krimmar.  Illir inn að beini.

Ásgrímur Hartmannsson, 29.1.2018 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband