Leita í fréttum mbl.is

Sæti 8E og 8D hjá Flugleiðum

eru upplifun sem enginn ætti að þurfa að þola bótalaust. Þau eru við neyðarútgang 757 vélarinnar.

Á þeim eru ýmsar takmarkanir til að tryggja umferð út, ekki hægt að halla stólbökunum, takmarkanir á drykkju,farangri á gólfi og svo framvegis, Þarna trekkir köldum gusti þannig að farþeginn hríðskelfur vafinn inn í mörg teppi að reyna sofa.

Við hjónin vorum líklega aldursforsetar í vélinni til Orlando á föstudaginn. Og auðvitað var okkur úthlutað þessum sætum og engin skipti möguleg.  Þarna skulfum við á níunda tíma og gátum lítið hreyft okkur eða hallað. Við höfum  sosum lent í þessu happdrætti áður með svipuðum árangri án þess að kvarta.

Þetta eru alger skítapláss sem enginn skyldi láta bjóða sér á langflugi og mjög ósanngjarnt af Flugleiðum að selja þessi sæti á sama verði og önnur.

Við höfum verið tryggt Flugleiðafólk í gegn um árin. En  ætlum ekki í fleiri flug með félaginu nema tryggt sé að okkur verði ekki holað niður í þessi sæti.

Við komumst samt heilu og höldnu til Orlando og allt gekk vel. Trump er við góða heilsu og vinsældir og er að gera réttu hlutina sem er fyrir öllu. Sólin skín og allt er upp á það besta. Umferðin streymir eftir áttbreiðum götunum, ekki nokkur maður á gangi né á hjóli og engir strætóar að flækjast fyrir umferðinni. Það væri fróðlegt fyrir Hjálmar og Dag B. að koma hér og horfa á öll mislægu gatnamótin sem liggja hér þvers og kruss á mörgum hæðum. Brýrnar úr einingum og raðað upp eins og Legokubbubbum.

Af hverju skylduþeir halda að allt sé bara della hér í Ameríku?

Jæja, sætin 8E og 8D eru gleymd þegar sólin skín.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Halldór.

Fyrst vil ég óska ykkur hjónum góðra stunda hjá hjá Trump og vinum, en í öðru lagi þá verð ég að láta í ljós undrun mína á því að eins víðsýnn og vís karl eins og þú sért enn að ferðast með þessu lággjaldafélagi sem Icelandair er og ekkert annað, þó það þykist vera alvöru áætlanafélag.

Ef þú flýgur t.a.m. með Delta, þá er innifalið heitur matur og drykkur og auðvitað heyrnartæki með í pakkanum, eins og vera ber á þessu verði.

Jónatan Karlsson, 11.2.2018 kl. 17:26

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sæll Halldór. Alveg sammála þér um að þetta eru ömurlega leiðinleg sæti. Hinsvegar er það nú þannig að þegar þú kaupir miðan á netinu er þér boðið að velja sæti. Aldrei klikkað hjá mér. Alltaf góð sæti.

M.b.kv. í sólina.

Sigurður Kristján Hjaltested, 11.2.2018 kl. 18:12

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Meirihluti sveitarstjórnarmanna á höfuðborgarsvæðinu er fylgjandi Borgarlínunni, einnig fjölmargir sjálfstæðismenn.

Og að sjálfsögðu viltu ekki að Miklabraut verði sett í stokk frá Snorrabraut upp fyrir gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, þannig að Miklabrautin liggi undir Kringlumýrarbrautina og gatnamótin verði því mislæg.

Og því eru fjölmargir sjálfstæðismenn einnig fylgjandi.

Miklabraut í stokk - Myndband

Þorsteinn Briem, 11.2.2018 kl. 19:38

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Jæja Halldór. Nú ert þú komin með eftirfylgju

Ómars Ragnarssonar á þina síðu.

Eins og alltaf með hans komment, ekkert

varðandi pistilinn.

Sigurður Kristján Hjaltested, 11.2.2018 kl. 20:23

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hvað hefur hann Steini Briem eiginlega verið að drekka???? Þessi færsla fjallaði bara ekkert um borgarlínuna........

Jóhann Elíasson, 11.2.2018 kl. 20:24

6 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Flugleiðir eru alltaf mitt fyrsta val. Undanfarin ár hef ég sjálfur valið á netinu hvar ég sit, og vel þá auðvitað bestu sætin. Klikkar ekki.

Bestu kveðjur til ykkar!


Ágúst H Bjarnason, 11.2.2018 kl. 20:28

7 identicon

Illa liðin mannvitsbrekka kaupir ódýrasta miða á lægsta farrými hjá fyrirtæki sem mannað er að stórum hluta fólki af erlendu bergi brotnu. Gáfnaljós sem iðulega skrifar gegn kjarabaráttu starfsmanna fyrirtækisins og útlendingum. Kvartar þegar honum eru úthlutuð léleg sæti og neitað um að skipta. Ég hefði teipað séníið á vænginn. Húrra Icelandair!

Gústi (IP-tala skráð) 11.2.2018 kl. 22:49

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Nú! Ertu væng?

Helga Kristjánsdóttir, 12.2.2018 kl. 01:59

9 Smámynd: Einar Karl

"Umferðin streymir eftir áttbreiðum götunum, ekki nokkur maður á gangi né á hjóli og engir strætóar að flækjast fyrir umferðinni."

Hljómar eins og paradís á jörð. Það ætti að gera þig að heiðursfélaga í Samtökum um mannlausan lífsstíl.

Einar Karl, 12.2.2018 kl. 16:04

10 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Umferðarteppur fara eftir því hvað hver maður, sem er á ferð eftir takmarkaðri lengd vegar eða götu, tekur mikið lengdarrými.

Reiknaðu út hve mikið rými hver farþegi í strætó tekur á götunni og hve mikið rými hann myndi þurfa, ef hann væri einn á ferð á sínum 10 fermetra bíl. Segðu síðan að það sé sparnaður í rými á götunum að hafa enga strætóa. 

Hámarkslengd á rútum er 15 metrar, og hver rúta getur rúmað allt að 70 manns. 

Hver maður tekur rúmlega 0,4 metra. 

Ameríski einkadrekinn er 5 metra langur og rúmar mest fimm í sæti. En meðaltalið er 1,1 maður sem þarf 10 sinnum meira lengdarrými en farþegi í fullri rútu.

Segjum að það séu fimm um borð í drossíunni og þá tekur hver maður einn metra af götunni.   

Ómar Ragnarsson, 12.2.2018 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband