Leita í fréttum mbl.is

Silfrið

hjá Agli Helgasyni var um margt athyglisvert. Sér í lagi í  ljósi bréfs sem Egill ritaði árið 2009 til að vekja athygli á því hversu spillt Ísland væri í norrænum samanburði þá var athyglisvert hvernig hann telur sig umkominn að hóa saman misgreindu fólki til að ræða spillingu á Íslandi árið 2018 á yfirvegaðan hátt.

 

Þórhildur Sunna brást ekki væntingum með ræðuhöldum spillingu Bjarna Benediktssonar sem ætti umsvifalaust að fara fyrir Landsdóm vegna sinn  ávirðinga í Panamaskjölum,uppreisnarærumálum föður síns og Sigríðar Andersen og fleira tíndi hún til um þjófana í Sjálfstæðisflokknum eins og þennan Ásmund Friðriksson, sem aldrei öxluðu ábyrgð frekar en aðrir þingmenn sem ekki kæmu úr Pírataflokknum.

Hinsvegar missti hún sannfæringarkraftinn alveg þegar blaðamennirnir fóru að ræða hvernig Steingrímur J. Sigfússona hefði sogið almannafé vegna þess að skrá sig á Gunnarsstöðum en búa í Breiðholti í skuldlausu húsi og þegið hálf verkamannalaun mánaðarlega í áratugi fyrir eða þegar Jón Þór Ólafsson Pírati bjó í niðurgreiddri húsaleigu í stúdentaíbúðum á meðan hann þáði fullt þingfararkaup. Þá var loks hægt að ræða eithvað annað en yfirstandani spillingarmál Sjálfstæðisflokksins.

Jóni til lofs sagði annar blaðamaðurinn að hann hefði hætt tökunni þegar upp komst en Steingrímur héldi enn áfram á fullu. Sunna gerði ekkert með þær upplýsingar.

Spillingarþátturinn endaði frekar illa og ósannfærandi í því að spillingin myndi nokkurs staðar enda. Þetta væru allt þjófar sem ekki væru í sérstakri deild hjá Þórhildi Sunnu sem er greinlega réttlætisgyðjan endurborin með bundið fyrir öll skilningarvit enda vel uppalin af föður sínum Ævari Kjartanssyni réttlætispostula RÚV til margra ára.

Svo kom viðtalið við sjálfan Holu-Hjálmar.

Egill má eiga það að hann spurði Hjálmar beinna spurninga. En mér fannst Hjálmar vera annaðhvort greinilega vel undirbúinn og hafa svör á reiðum höndum eða vel lesinn í fræðum sem hann skilur samt takmarkað í.

Hann ræddi mikið´um skipulagið frá 2007 -2012 sem hann taldi mikið afrek og hefði það að markmiði að sannfæra fólk um að velja almenningssamgöngur í stað einkabílsins.

Hér kom í ljós sá ásetningur Hjálmars að fólk yrði neytt til að velja strætó eða Borgarlínu vegna þess að aðrir kostir yrðu bara ófærir vegna umferðartafa til dæmis í Ártúnsbrekkunni þar sem 120.000 bilar myndu standa fastir eftir örskamma stund. Til þess myndi hann og skipulagið góða sjá. Greinilega yrðu ekki um fleiri akreinar að ræða heldur myndi fólk frekar hætta að eiga erindi sem áður.

 

Hjálmar var aðspurður af Agli að vonum harmi sleginn yfir því að hafa verið felldur úr 3. sæti í það fimmta í einhverri uppstillingu hjá Samfylkingunni en bað fólk ekki örvænta samt um að hann myndi ekki koma sínum málum fram.

Áhorfendur voru skildir eftir með þá vissu að nýjar hugmyndir um nýja Borg þar sem iðnaður væri farinn á braut en hjólastígar og gangbrautir væru undirstaða fagurs mannlífs í þéttbýli  myndu taka við.

Hjálmar er búinn að skrifa bók þar sem framtíðarsýnir hans í skipulagsmálum eru tíundaðar og Egill veifaði ákveðið framan í áhorfendur. Væntanlega verður þessum sumarsmelli Hjálmars Sveinssonar,-sem Egill nefndi Holu-Hjálmar, gefinn gaumur í næsta Kiljuþætti þessa sama Egils á RÚV. 

Þetta Silfur var að vísu nokkuð brotakennt á köflum en Silfur samt. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Það er greinilega ekki gott þegar gyllinæðar springa um miðjar nætur.

Faðir Þórhildar Sunnu er ekki Ævar Kjartansson, heldur Ævar Örn Jósepsson fréttamaður hjá RÚV og að sjálfsögðu kommúnisti í augum öfgahægrikarla, eins og allir sem ekki eru nákvæmlega eins og þeir.

Nýlega var reist stórhýsi og hátæknisetur lyfjafyrirtækisins Alvogen á Vatnsmýrarsvæðinu, þar sem um tvö hundruð manns starfa, en það er að sjálfsögðu ekki iðnaður þegar öfgahægrikarlar eru annars vegar.

Þorsteinn Briem, 26.2.2018 kl. 03:49

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Samtök iðnaðarins:

"Mikilvægi hátækniiðnaðar fyrir atvinnulíf framtíðarinnar speglast í því að fimmtungur allra nýrra starfa sem urðu til í landinu á árunum 1990-2004 sköpuðust vegna hátækni.

Á sama tíma fjölgaði aðeins um 500 störf í stóriðju og fækkaði um fjögur þúsund í sjávarútvegi.

Í lok tímabilsins störfuðu 5% vinnuaflsins, 6.500 manns, við hátækni, 900 við stóriðju (0,7%) og ríflega 10 þúsund í sjávarútvegi.

Í hátækni eru 40% starfsfólksins með háskólamenntun og um 60% með háskóla- og iðnmenntun."

Þorsteinn Briem, 26.2.2018 kl. 04:04

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

12.1.2018:

"Það er frábært að sjá að nú þegar eru fyrirtæki í kvikmyndaiðnaði af öllum stærðum og gerðum að koma sér fyrir til framtíðar í Gufunesi," segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

"Þar er að verða til kvikmyndaþorp sem mun styrkja greinina enn frekar.

Við lögðum upp með þetta á sínum tíma og gaman að sjá það verða að veruleika.

Nú þegar hafa tvö fyrirtæki á vegum kvikmyndaiðnaðar keypt eignir á svæðinu og eru því ákveðin kjölfesta fyrir áframhaldandi þróun svæðisins.

Tvö önnur fyrirtæki  sem sérhæfa sig í ljósa-, hljóð- og myndbúnaði hafa fengið lóðarvilyrði í Gufunesi.

Það er því ljóst að mikil hreyfing er á þróun svæðisins en fyrirtæki Baltasars Kormáks hefur þegar hafist handa við að breyta gömlu Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi í kvikmyndaver sem verður eitt það stærsta sinnar tegundar í Evrópu."

Þorsteinn Briem, 26.2.2018 kl. 04:31

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ein smá leiðrétting við annars góðan pistil. Þórhildur Sunna er dóttir Ævars Arnar Jósepssonar sem, eins og nafni hans, er reyndar líka slímsetumaður á DDRÚV.

Ragnhildur Kolka, 26.2.2018 kl. 09:11

5 identicon

Flott hjá þér að uppnefna hann Ragnhildur.  Þetta sparar mér tíma og orku, því ég hafði í hyggju að leggjast lágt og níðast á persónu hans, en þú varst bara á undan.

Hilmar (IP-tala skráð) 26.2.2018 kl. 10:29

6 identicon

Þá rifjast það upp hjá mér þegar ákveðinn fréttamaður ríkisútvarpsins uppnefndi Sigurð Inga Jóhannsson hérna um árið og kallaði hann "þennan feita".

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 26.2.2018 kl. 11:25

7 identicon

Þórhildur Sunna var að vekja athygli á að það giltu ekki sömu reglur fyrir æðstu menn stjórnsýslunnar og fyrir almenning og hún hefur algerlega rétt fyrir sér með það. Ef rökstuddur grunur er fyrir því að lög og reglur hafi verið brotin er það rannsakað ofan í kjölinn og refsað harðlega ef sök sannast þegar um almenning er að ræða, en þó að grunur um brot sé til staðar, hversu vel sem hann er rökstuddur, þegar ráðherrar, þingmenn og æðstu stjórnendur eiga í hlut er ekkert gert með það, það er ekki einusinni rannsakað. Síðast þegar ég vissi er Steingrímur þingmaður, af hverju þarf Þórhildur að taka sérstaklega fram að hann sé hluti af þeirri elítu sem aðrar reglur gildi um en almenning?

Mál Jóns Þórs er náttúrlega algerlega sambærilegt við mál um ára(tuga)langa spillingu. Maðurinn var ekki á þingi þegar KONAN hans fékk úthlutað íbúð á stúdentagörðunum, þar sem tekjur maka skerða ekki rétt námsmanna til búsetu. Jú, jú auðvitað má setja út á að hann, verandi með góð laun sem þingmaður hafi ekki drifið í því að finna sér aðra íbúð um leið og hann var kosinn á þing, en ég er nú ekkert svakalega sannfærð um að það hefði verið þín fyrsta hugsun hefðir þú verið í hanns sporum. 

Dagný (IP-tala skráð) 26.2.2018 kl. 11:37

8 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sennilega er ástæðan fyrir (meintri) sjálftöku eins og rætt hefur verið hér að ofan, að hún er viðtekin venja í stjórnsýslunni og jafnvel hluti af starfskjörum.
Ekki nema von að einstakir þingmenn átti sig þá fyrst "þegar uppum þá kemst"; hvernig máttu þeir svosem vita betur? 

Kolbrún Hilmars, 26.2.2018 kl. 12:56

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Ævar þessi eða hinn? Báðir á RÚV og báðir ekki hægri menn. Sunna  er róttæk til vinstri. Er hún ekki báðum til sóma?

Halldór Jónsson, 26.2.2018 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband