Leita í fréttum mbl.is

Eldhuginn

prófessor dr. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur sem sestur er að í Stykkishólmi og búinn að opna þar eldfjallasafn er maður með ótrúlega fjölbreyttan feril að baki.

Hann hefur gefið út bókina "Eldur  niðri", 2011,  sem er einskonar króníka yfir starfsferil hans og líf. Ég hef verið að glugga í hana hérna í sólinni í Flórídu og satt að segja varð ég dolfallinn yfir því hversu gífurlegt starf maðurinn á að baki. Ég held að það sé talsvert langt frá því að Íslendingar geri sér almennt ljóst hversu merkt starf Haraldur á að baki í jarðvísindum og rannsóknunum allan heim.

Oft hefur hann farið í lífshættulega leiðangra eins og til fjallsins Tambora sem árið 1815 hafði heimsöguleg efnahagsleg áhrif um alla jörð. En þá gaus þetta fjall i Indónesíu stærsta sprengigosi sögunnar með þeim afleiðingum að uppskerubrestur varð um allan heim og fjöldi manna týndu lífi og eigum  í framhaldi af því. Lýsingar Haraldar á ferðunum þangað þó látlausar séu er beinlínis hrollvekjandi um þær hættur sem hann lagði sig í fyrir vísindin. En afraksturinn er að menn skilja eðli sprengigosa og gjóskuhlaupa miklu betur nú en fyrr. Og það sem er kannski mest ógnvekjandi er að Haraldur gefur í skyn að þetta geti gerst aftur og óvíst hvernig menn mun fást við afleiðingarnar sem geta orðið hungursneyðir og jafnvel styrjaldir um brauð.

Bók eldhugans  Haraldar Sigurðssonar "Eldur niðri"  er æsispennandi og magnað fróðleiksrit sem allir hafa gott og gaman af að lesa, svo ótrúlegan feril sem þessi maður á að baki


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo hafði hann rétt fyrir sér varðandi fyrirhugaða olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Hann sagði að ef hitastigullinn væri of hár þá væri að sjálfsögðu engin olía eða gas.

Það kom svo í ljós að þetta var allt of ungt svæði og stutt síðan að það var eldvirknisvæði til að þarna finndist einhver olía.

Þorsteinn Styrmir Jónsson (IP-tala skráð) 6.3.2018 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband