Leita í fréttum mbl.is

Er Pútín líklegur?

til að hafa fyrirskipað morð á manni og dóttur hans sem ekki skiptir pólitísku máli lengur?

Á þessum tíma er Pútín að starfa að því að endurreisa skaddað álit Rússlands alþjóðlega með því að standa fyrir heimsmeistarakeppninni? Leggur í óheyrilegan kostnað til þessa markmiðs. 

Sýnist manni líklegt að það sem hann hefði þurft á að halda við þessi tímamót að lenda í svona máli?

Datt þeim sem gerðu árásina það í hug að enginn myndi taka eftir þessu? Af hverju völdu þeir að nota vopn sem mátti rekja beint til Rússlands? Er ekki flóknara að nota svona tveggja þátta gas sem getur strádrepið fólk í umhverfinu heldur en að nota byssu. Fara laumulega en ekki velja opinberan stað?

Finnst mönnum líklegt, að þrautreyndur leyniþjónusturefur eins og Pútín hugsi ekki um svona hluti ef hann þarf?

En ef maður vildi koma höggi á Pútín persónulega vegna kosninganna?

Ef ríki vildi koma viðskiptalegu höggi á Rússland? Hvaða ríki væri líklegt?

Í fyrsta lagi samkeppnisríki í olíuframleiðslu. Í öðru lagi samviskulaust einræðisríki.

Hvaða ríki þjáist mest núna vegna samkeppni Rússlands?

Saudí-Arabar standa frammi fyrir því að þegnarnir þurfi að fara að vinna í fyrsta sinn  í heila öld.Til þess verði að reka erlent verkafólk úr landi.

Myndu Bandaríkin standa að svona máli? Þeirra hagsmunir eru að olíuverð hækki. Sömu hagsmunir og Rússlands og Sáudanna.Eru Bandaríkin líkleg til svona mála með forseta sem öll spjót standa ? Venezúela með fjallheimsk og skítblönk kommúnistastjórnvöld?

Sama gildir um Noreg og Bretland. Þeirra hagsmunir eru hækkun á olíu.En þau eru lýðræðisríki sem ekki standa í svona málum.

Ég get ómögulega komið auga á annað en að óvinir Pútins og Rússlands fremur en hann hafi staðið að þessu þaulskipulagða ódæðinu sem er til þess sniðið að setja rjúkandi byssu í hendur Rússlands.

Ísland hefur hagnast á þessu þegar þar sem íslenskir ráðamenn munu ekki fara á boltann.

Er ekki  Pútín manna ólíklegastur?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Ég hef eina spurningu handa þér sem enginn vill svara: Hver telur þú að hafi látið myrða Alexander Litvinenko? Hver er ástæðan fyrir mikilli upphefð morðingjanna í Rússlandi?

Einar Sveinn Hálfdánarson, 28.3.2018 kl. 15:30

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég man ekki lengur hvernig aðstæður voru þá? Hverjir stóðu til að hagnast mest eða hvaða nauðsyn bar til að stúta honum?

Halldór Jónsson, 28.3.2018 kl. 17:59

3 identicon

Litvinenko lifði nógu lengi til að upplýsa allt um það hverjir voru á ferðinni. Hann var njósnari sem "sveik". Hljómar kunnuglega.

Annar morðingjanna var gerður að þingmanni í Dúmunni. - Vituð þér enn eða hvað?

Einar Halfdanarson (IP-tala skráð) 28.3.2018 kl. 19:05

4 identicon

Ég hef enga trú á að Pútín hafi gert þetta. Þetta fólk hefði einfaldlega horfið ef hann hefði viljað það. Þú sást hvað gerðist fyrir hanns helstu andstæðinga í kosningunum.

Þetta gæti líka alveg verið tækifæri sem Bretland hafi gripið til til að beina athyglinni frá Brexit og klúðrinu í kringum það.

Emil (IP-tala skráð) 28.3.2018 kl. 19:44

5 identicon

Hlutirnir virðast vera þróast alveg einsog vopnaframleiðendur heimsins höfðu vonast eftir

Grímur (IP-tala skráð) 28.3.2018 kl. 21:45

6 Smámynd: Jónatan Karlsson

Venju samkvæmt ert þú skýr og rökréttur í skoðunum þínum Halldór, en samt fylgir þú þeim Bjarna og Gulla í ósómanum og undirlægjunni.

Án gríns, er þá ekki líklegt nú þegar öldurnar tekur aðeins að lægja, að næsta atlaga gegn Rússum verði miskunarlaust hrinnt í verk, sem gæti t.d. verið sprenging um borð í vestrænni þotu yfir Rússlandi?

Jónatan Karlsson, 28.3.2018 kl. 23:17

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þótt þetta sé óupplýst mál er engin furða að Pútín sé grunaður um tengsl við málið. Vel getur verið að tengslin séu ekki bein, heldur séu einhverjir af hans mönnnum "licenced to kill" hæfilega marga til þess að í því felist fælingarmáttur. 

Enginn af andófsfólki gegn Pútín veit hver verður næstur og hvaða aðferð verði notuð. 

Efnin sem voru notuð gegn Skripal og Litvinenku auka fælingarmáttinn vegna þess hve erfitt er að verjast þeim. 

Ómar Ragnarsson, 29.3.2018 kl. 00:23

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Erfitt að Verjast þeim? Bretar brugðust það fljótt við að halda mætti að þeir gjörþekktu eitrið.

Helga Kristjánsdóttir, 29.3.2018 kl. 05:02

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Einar S

Geturðu ekki sett söguna af morðingjum Litvínenko fram í nokkrum línum, Hver græddi á þeirri framkvæmd? Ég er alls ófróður um þetta mál og svo eru líklega fleiri.

Leyniþjónustur hafa kannski of frítt spil innanhúss til að framkvæma hluti sem reynast svo pólitískt óheppilegir,  maður þekkir ekki til hvernig þessir 007 starfa og hvað þeir mega.

Af hverju er verið að nota svona flóknar aðferðir eins og póloníum og eiturgas þegar hægt er að leigja morðingja eins og Mafían gerir til að skjóta mann og enginn veit neitt, ekkert hægt að rekja, sérstaklega ef annar er svo fenginn til  að drepa þann fyrsta. Bara peningar. Hver stóð á bakvið morðið á  sænska forsætisráðherranum Palme ? Var það nokkurntímann upplýst til fulls?

Ég er ekkert hrifinn af þvi að Gulli og Bjarni séu að taka afstöðu í þessum málum eða refsiaðgerðumgegn Rússum Jónatan en hvað get ég gert sem óbreyttur flokksmaður þeirra sem aldrei er spurður né mark á tekið?

Ég er ekki sammála þinni hroðalegu sýn, ég sé ekki tilganginn enda væri þá komið annað siðferði á kreik en ég held að sé ríkjandi í lýðræðisríkjum.

Halldór Jónsson, 29.3.2018 kl. 09:06

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Og talandi um vandamál Breta vegna Brexit? Það eru ekki Bretar sem eru í vandamálum, þaðer ESB Fiskimið Breta tapastg ESB, þeir eru í klessu út af því. Bretar veita þeim smá aðslögun eins ogvið gerðumí þorskastríðunum en svo er sambandið fisklaust og allt í smalli. Við græðum og Bretar, Norðmenn og Rússar og þeir sem geta veitt. Fiskur hækkar en vandamálinaukast í ESB.

Halldór Jónsson, 29.3.2018 kl. 09:10

11 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Uppfinningamaður eitursins byr í bandaríkjunum og fullyrðir að aðeins þurfi að lesa bók hans um eiturgas til að gera þetta.

Hversvegna myndu rússar akkúrat nota eitur sem er einstakt og beintengt þeim? Væru ekki aðrar aðferðir skárri.

Þessi njósnari var dæmdur fyrir rúmum 20 árum og sendur til Síberíu í 18 ár, en sat aðeins 4, þegar rússar höfðu fangaskipti. Hversvegna akkúrat nú við kosningar í rússlandi og korteri fyrir heimsmeistara mótið fannst Pútin það upplagt að drepa þennan algerlega ómerkilega fyrrverandi njósnara?

Döttir hans býr í Moskvu og kíkti á kallinn á um tveggja manaða fresti. Var það ekki upplagt að kala henni heima?

Nú koma fréttir af því að tilræðið hafi ekki verið gert á torginu á pöbbnum eða restúrantinum, sem hafa verið í sóttkví í nokkura daga morandi í eiturefnabarbapæbbum. Nú á þetta hafa átt sér stað á heimili þeirra, sem er safehouse í ofanálag. Íbúar í húsinu og nágrannar hafa verið upplýstir um að engin hætta stafi af þessu, enda hefur engum orðið meint af.

Þetta setur spurningamerki um lögregglumanninn sem kom fyrst að þeim á bekknum og veiktist. Það er útilokað að það geti hafa gerst enda sýnt að læknir sem sinnti þeim óvarinn á bekknum í hálftíma hafði ekki meint af heldur.

Auðvitað er þetta múgæsing og pólitískt blekkingarmál. Ekkert hefur sannast.stærsta eiturgasverksmiðja og rannsóknarstofa í hernaðarskyni í allri evrópu er aðeins sjö mílum frá tilræðisstaðnum í Salsoury, sem vekur einnig spurningar. Það apparat hefur nú fengið 48 milljón punda aukafjármagn í kjölfar þessa.

Eru efasemdir manna eitthvað undarlegar? Ég hefði haldið ekki.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.3.2018 kl. 09:25

12 Smámynd: Örn Einar Hansen

Það er hægt að koma með ásakanir frá vinstri til hægri.

Þegar Schwarzkopf réðist á Írak, myrti hann fleiri hundruð þúsund mans á braut sem hét "highway of death", stór hluti af þeim voru almennir borgarar.  Fleiri kílómetra löng bílalest af dauðum líkum.  Þegar G.W.Bush réðist inn í Írak, á þeim forsendum að þar væru "eiturvopn", myrti hann þúsundir barna "Children of Fallujah".  Utanríkisráðherra Bandaríkjana kom þá fram í sjónvarpi og sagði að þó svo að 500 þúsund börn hefðu látist í Írak, þá væri það bara gott mál.  Þegar Bandaríkin réðust inn Írak, Líbíu og önnur ríki mið-austurlanda, var aldrei talað um "flóttafólk". Var enginn sem flúði sprengjuregnið, eða var um svo mikla "nákvæmni" að ræða að sprengjurnar fóru framhjá almennum borgurum.  Annað má sjá af myndum, og þarf engan sérfræðing til að sjá þær ...

https://www.google.se/search?q=dead+bodies+lying+around+in+iraq&client=firefox-b&dcr=0&tbm=isch&source=iu&ictx=1&fir=-f0lN7OKbw8BTM%253A%252CkR39huWOi1cDQM%252C_&usg=__Yxu-IFvRH_4bldP7rnJgLavzMoc%3D&sa=X&ved=0ahUKEwjq5KGEm5LaAhVRhaYKHWemDl4Q9QEIMDAD#imgrc=-f0lN7OKbw8BTM:

Hræsni á Íslandi, er með afbrigðum ... hefur mönnum kanski dottið í hug að spyrja hvað standi að baki ásökununum? Nei, ekki fremur en menn veltu fyrir sér miljónum dauðra manna í mið-austurlöndum, eða að mið-austurlönd væru lögð í rúst.

Allt gott mál, hjá þessum "gáfuðu" Íslendingum, sem vilja vera í partý hjá Hitler, og Stalðin ... og vilja ekki vera með "leiðinlega" kallinum, sem mótmælir og klagar.

Rússar eru "gyðingar" nútímans ... það þarf engra sannana við, allt er Rússum að kenna.  Íslendingar eru nasistar nútímans, engra sannana þarf við ... bara benda fingur í áttina að gyðingum, og allir vita hver sökudólgarnir eru.

Íslendingar eru almennt auvirðulegt fólk, sem finnst maður þurfi að fylgja liði með "skemmtilega" fólkinu. Morðingjunum, sem myrtu miljónir manna í Vietnam ... May Lay er sjálfsagt gott mál hjá Íslendingum.  Þrælahald bretans, þar sem þeir seldu miljónir manna í þrældóm, er sjálfsagt enn betra mál ... svo maður tali ekki um, Ópíum og eiturlyf, þar sem bretar villdu lögleiða sölu eiturlyfja, eftir að hafa verið valdir að dauð miljóna Kínverja fyrir tilstylli eiturlyfjasölu, og sjóræningjaháttar.

Bretar eru einnig ábyrgir fyrir hundruða manna dauðsfalli á Íslandi, sem hafa bara horfið og aldrei gefið skýringu á hvarfi þeirra.

Þetta er náttúrulega allt, bara gott mál ... hjá Íslendingum.  Mikklu meira fjör að vera í partýinu, heldur en að vera með "leiðinlega" kallinum.

Ekkert af því sem ég segi hér, er sagt til að bera af Rússum að þeir hafi framkvæmt verknaðinn ... heldur þarf sannana við, áður en ásakanir eru hafðar í frammi.

Nema, þegar Gyðingar og Rússar eru annarsvegar ... þá þarf engra sannana við, bara benda fingur á ljóta kallinn.  Leiðinlega gaurinn ... allir vita ... allir vita ...

Saurlýðurinn veit ... allt.

Örn Einar Hansen, 29.3.2018 kl. 19:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband