Leita í fréttum mbl.is

Ingimundur í Heklu

eins og hann heitir ávallt í mínum huga er fallinn frá. Nánast jafnaldri minn.

Kynni okkar Ingimundar hófust fyrir einhverja tilviljun. Viđ vorum ađ tala saman út af einhverju öđru sem ég man ekki lengur hvađ var. En ţá barst í tal flug sem höfđum báđir greinilega áhuga á og hann spurđi umsvifalaust um ţađ hvort ég vildi ekki koma í hóp manna sem vćru ađ kaupa Skymaster C337 til landsins og vćru ađ setja hana á skrá međ nýjum mótorum og skrúfum.

Ţar međ voru örlögin ráđin held ég 1977. Ég fór á fund međ Ingimundi ţar sem fyrir voru menn sem ég ţekkti lítiđ til en áttu sumir eftir ađ verđa áhrifavaldar í mínu líf og stórvinir. Ţarna voru fyrir  Ingimar Sveinbjörnsson, Friđrik Pálsson, Ţorsteinn Ţorsteinsson, Björn Emilssson og Jón E.B, Guđmundsson minnir mig en Gunnar Sveinbjörnsson var fjarstaddur. Ég vissi nú varla hvernig  ţessi vél liti út. Og greinilegt var ađ ţetta var dýrt fyrirtćki fyrir blankan mann eins og mig og eiginlega galiđ ađ vera ađ ţessu.

Ég  endađi međ ţví ađ elska ţessa  vél meira en nokkurn dauđan hlut og fljúga henni í nćrri ţúsund klukkustundir  ţar til ađ ađ ég varđ ađ selja hana eftir hruniđ 2008. Eftir ţađ datt eiginlega botninn úr fluginu hjá mér enda orđinn talsvert eldri. „Ég hef selt hann yngra Rauđ..“.orti hann Páll Ólafsson

 Var hún annars dauđur hlutur? Ég er  hreint ekkert alltaf viss um ţađ eins og rithöfundurinn Richard Bach sem átti samtal um nótt viđ svona Skymaster vél.Ég átti ţađ til ađ kyssa hana á nefiđ ţegar ísinn var ađ bráđna af henni í flugskýlinu eftir lendingu.

En hópurinn ţessi sem ţarna var mćttur átti ţađ sameiginlegt ađ eiga ekki peninga til alls sem međ ţurfti. Ingimundur hafđi mikla forystu um fjármál hópsins og útvegađi lán fyrir tryggingum og fleiru. Og ţađ vantađi líka fljótlega flugskýli sem ţurfti ađ byggja. En ţetta tókst allt međ tímanum.

En ţarna byrjađi ósvikin vinátta okkar Ingimundar. Hann var svo hjartahlýr mađur sem fađmađi vini sína ađ sér og ţau fađmlög urđu strax gagnkvćm og vináttan ósvikin. Friđbert endurskođandi hans var nú ekki par hrifinn af mér eđa neinu sem viđkom ţessari flugvél ţví hann hafđi allt á hornum sér og var óspar á ađ segja ađ hann Ingimundur hefđi ekki ráđ á ţessu og ţyrfti endilega ađ hćtta.

 En Ingimundur var tryggur félagsmađur lengi ţar til ađ hann fékk nóg og seldi sinn hlut.Í hans stađ kom Hinrik Thorarensen og ekki var hann mér minna happ en margt annađ í lífinu, slíkur öđlingur sem hann var. Ţađ urđu međ tímanum ýmis eigendaskipti í hópnum en svo fór ađ síđustu áratugina átti ég vélina einn sem var auđvitađ erfitt og ósanngjarnt gagnvart fjölskyldunni sem lét sig blessunarlega hafa ţađ.

En áđur hafđi ég fengiđ ţann heiđur ađ fljúga fyrir Ingimumd  ýmsa túra. Sá eftirminnilegasti var ţegar hann bađ mig ađ fljúga međ vin sinn Benny nokkurn Goodman til Blönduóss. Ţar tók Ingimundur mynd af okkur Benny og sendi mér seinna áritađa  og er ţessi dýrgripur í hávegum hjá mér. En Benny var hálfguđ hjá okkur strákunum upp úr miđri öldinni.

Svona er heimurinn stundum  lítill og Benny sagđi viđ mig ţegar hann steig út á Blönduósi međ klarinettkassann í hendinni:“Nice little plane“ og virtist ekkert hafa spáđ í ađ hann var ađ fljúga međ reynslulitlum hálfvita sem var nýskriđinn úr atvinnuflugskólanum. En Ingimundur hafđi traust á mér og lét mig hiklaust fljúga sér ţegar svo bar undir.

Ingimundur stóđ í stórframkvćmdum á Ţingeyrum og fól mér ađ teikna ţar lagnir í mikiđ bćndahús og tókst ţađ held ég sćmilega og stendur ţađ ađ minnsta kosti enn.

 Samskipti okkar voru talsverđ á ţessum árum og vináttan óx og fađmlögum fjölgađi. Aldrei bar skugga á í okkar samskiptum. En hann var samt ófeiminn ađ segja sínar skođanir og hann hellti sér yfir mig fyrir slćman umgang  í malarnáminu á Esjubergi sem fór í hans fínustu og ég átti alveg skiliđ.

Árin liđu og Ingimundur vann mikiđ starf fyrir  Sjálfstćđisflokkinn okkar sem fjármunasafnari áđur en stjórnmálaflokkar voru gerđir ađ ölmusuţegum og ríkistilberum af tillitssemi viđ kommana sem ekki gátu bjargađ  sér  sjálfir og voru í bráđri útrýmingarhćttu sem gjaldţrota stjórnmálaflokkar.Er skömm okkar Sjálfstćđismanna mikil fyrir ađ hafa tekiđ ţátt í ţessu.En viđ vorum sjálfbjarga vegna stćrđarinnar og samheldninnar.

Ingimundur varđ svo sendiherra í Ţýskalandi og hittumst viđ ţar. Ţar var sama fölskvalausa vináttan af hans hálfu en svo hellti hann sér endurtekiđ´yfir mig vegna frágangsins í námunum sem var kannski ekki fullkominn ţó bestnađ hefđi. Eftir ţetta sáumst viđ sjaldnar en ávallt fagnađi hann mér sem besti bróđir viđ ţau tćkifćri.

Og nú er hann fallinn frá eins og flestir sem komu ađ eigendahópi TF-SKY og ég veit ekki hvar hún sjálf er niđurkomin lengur,. En blessuđ sé minning Skćjarans sem fćrđi mér svo óendanlega mikiđ af sćlustundum og uppeldi.Og  svo ekki  síst af vináttu góđra manna eins og Ingimundar Sigfússonar.

Ţađ er eitt af ţví dýrmćtasta sem menn eignast í lífinu utan fjölskyldu sinnar er kunningsskapur og vinátta viđ góđa menn. Ingimundur í Heklu var ţeirrar gerđar ađ hann stendur upp úr ásamt međ nokkrum öđrum slíkum.

Einn af ţeim sem ég kynntist fyrir tilstilli Ingimundar ţetta kvöld var Ingimar Sveinbjörnsson flugstjóri. Einn af reyndustu flugmönnum landsins og prófdómari í blindflugi sem mörgum stóđ ógn af. Sá mađur tók mig ađ sér í fluginu á Skćjaranum og af honum lćrđi ég eiginlega allt ţađ litla sem ég lćrđi um flugiđ á nćrri fjórum áratugum. Endalaust ţolinmóđur viđ tregan nemandann sem flaug međ hrömmunum og fílshreyfingum ţegar Ingimar hrópađi upp yfir sig ađ međhöndla vélina eins og fallega konu. En námiđ hafđist af og mér tókst ađ ljúka blindflugsprófinu ţó sjálfstraustiđ  vćri ekki upp á marga fiska.Enda hófst ţá flugnámiđ fyrir alvöru og lauk aldrei   

Ađrir viđstaddir urđu allir vinir mínir ćvilangt. Ingimundi í Heklu fć ég ţví seint fullţakkađ ađ hafa bođiđ mér á fundinn góđa fyrir svo margt löngu, slíkrar  gćfu sem ég varđ ađnjótandi í framhaldi af ţessu kvöldi.

Hann Ingimundur í Heklu kemur mér gjarnan í huga ţegar ég heyri góđs manns getiđ.

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband