Leita í fréttum mbl.is

Ríkisvæðing stjórnmálanna

er orðinn hlutur sem afleiðing af ábyrgðarlausri framgöngu stjórnmálaflokka á Alþingi í sjálftöku á opinberu fé.

Í stað þess að flokksmenn eigi alfarið að standa straum af sinni stjórnmálastarfsemi með frjálsum framlögum  eins og í öðrum félögum þá eru þeir sammála um og í aðstöðu til að setja sogrör í ríkiskassann til að sjúga fyrir sjálfa sig og sína.Afleiðingin er smáflokkakraðak sem býður fram í þeim eina tilgangi að krækja sér í peninga og þægilegri innivinnu.

Það eru falsrök að þetta sé gert til að koma í veg fyrir spillingu með því að peningaöfl kaupi flokka sér til fylgis. Það á að ríkja algert frelsi á auglýsingamarkaði í markaðsþjóðfélagi. Vilji Soros kaupa Pírata til fylgis við sig þá má hann það eins og Landsbankinn styrkti Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna, sem ekki skilaði neinum peningum eins og Bjarni gerði. Markaðsfrelsi á að ríkja. Ef enginn vill kaupa þína vöru þá er það þitt vandamál en ekki mitt eða ríkisins.

Valur Arnarson skrifar eftirtektarverða greiningu á vanda íslenskra stjórnmála á blogg sitt í dag.

Þar kemur  þessi stjórnmálavandi fram. En það sem fólk gerir sér ekki ljóst er að hann er bein afleiðing af samspillingunni sem blasir við á Alþingi í dag. Flokkarnir þar urðu sammála um að stórhækka framlög til sín úr ríkissjóði. 

Glundroðinn í stjórnmálunum orsakast beinlínis af grímulausri samtryggðri sjálftöku stjórnmálaflokkanna á opinberu fé.

Valur skrifar:

"Það merkilegasta við eftir-hruns árin, er þörf fólks á vinstri væng stjórnmálanna til að stofna nýja stjórnmálaflokka, og reyna með blekkingum að aftengja þá uppruna sínum. Besta dæmið er auðvitað Besti flokkurinn í Reykjavík, þar sem fullt af Samfylkingarfólki kom saman og þóttist vera nýtt afl sem hefði myndast í tómarúmi – án nokkurra skýringa. Við þekkjum svo frasana um að breyta eigi stjórnmálunum og taka við góðum hugmyndum jafnt frá vinstri sem og hægri, vegna þess að þær skilgreiningar séu í raun úreltar.

Hvað gerðist svo með Besta flokkinn ? Fólk, þvert á pólitískar skoðanir, keypti blekkingarnar, og stökk á vagninn, merkti x við Æ í þeirri trú að nú væru hlutirnir að breytast. En hvað gerðist ? Krakkarnir í Besta flokknum hlupu beint í faðm Samfylkingarinnar – auðvitað – vegna þess að þaðan komu þau öll. Besti flokkurinn bjó svo til myndband á fyrstu mánuðum valdatíðar sinnar, þar sem gert var grín að öllum, sem voru ekki í kratabandalagi Samfó og Besta. Þar fóru fyrirheitin um betri vinnubrögð í stjórnmálunum.

Það er nánast hægt að segja það sama um Pírata. Ef það voru einhverjir fyrrum Sjálfstæðismenn eða Framsóknarmenn í Pírötum á upphafsárum flokksins, þá hafa þeir auðvitað allir yfirgefið flokkinn – sem er samansafn af allskonar vinstra öfgaliði, og þá sérstaklega í forystunni. Píratarnir stukku ekki fullmótaðir úr tómarúmi frekar en Besti flokkurinn, sem síðar varð Björt framtíð en nú hafa þau flest hlaupið heim í Samfylkinguna.

Það versta við þessa þróun, er að stjórnmálaöfl, án nokkurs alvöru baklands, komast til þannig áhrifa, að þau sjálf ráða illa við hlutverk sitt. Málefnafátækt einkennir slík bandalög, þar sem ekki er þekking þar innan um til þess að móta skoðanir eða stefnur í hinum ýmsu málum. Við getum tekið Besta flokkinn sem dæmi en þau eltu Samfylkinguna í blindni í stefnu þeirra um flugvöllinn, án þess að búa yfir einhverri þekkingu um málefnið eða hafa tekið samræðu við fagstéttir og er hægt að nefna flugmenn í því samhengi, sem búa margir hverjir yfir dýrmætri reynslu og þekkingu á þessum málum.

Við sjáum það sama á þingi, þar sem þingflokkur Pírata situr hjá í mörgum og jafnvel mikilvægum málum. Píratar sátu t.d. hjá í atkvæðagreiðslu um búvörusamninginn og vitið til, þeir munu sitja hjá þegar gengið verður til atkvæða um þriðja orkumarkaðspakka ESB.

Er þessi þróun til þess fallinn að styrkja lýðræðið ? Svarið við því er auðvitað nei. Flokkar sem koma fram undir fölskum forsendum, blekkja kjósendur til fylgis við sig með því að lofa breyttum vinnubrögðum á þingi og í sveitastjórnum, en eru svo verri en þeir sem gagnrýndir eru, gera ekkert annað en að grafa undan lýðræðinu. Lýðræðið snýst um að kjósendur hafi raunverulegt val, og það sé skýrt fyrir hvað flokkar í framboði standa.

Píratar hafa t.d. sýnt af sér einstakan óheiðarleika með því að þykjast geta unnið með öllum fyrir kosningar, en eftir kosningar byrjað að hlaupa í skotgrafir og útiloka flokka á forsendum sem standast engin rök. Ef Píratar geta ekki unnið með Sjálfstæðisflokknum vegna embættisfærslna Sigríðar Á. Andersen, þá geta þeir ekki unnið með Samfylkingunni vegna framgöngu þeirra gagnvart öryrkjum í borginni. Staðreyndin að Píratar hafa ekki gengið úr meirihlutanum í borginni kristallast í því að afstaða þeirra til Sjálfstæðisflokksins er fyrirsláttur einn.

Staðreyndin er að allir í hinu nútíma pólitíska litrófi eiga sér uppruna einhversstaðar úr hinu gamla flokksskipulagi. Píratar eru á vinstri væng þess litrófs, og þeir sem greiða þeim atkvæði sitt eru að stuðla að því að hér verði vinstri stjórn eftir kosningar."

Valur sér vandamálið sem er samhlaup sveimhuga við kosningar sem byggjast á því að komast í ríkispeninga ef nægilega margir vinglar finnast til að kjósa "eitthvað  annað".

Við sitjum uppi með smáflokkakraðak tækifrærissinna á Alþingi þar sem hentistefna ræður ríkjum. Alþingi hefur sjálft búið þessar aðstæður til og er rétt að byrja með stórhækkun fjártökunnar til flokkanna.

Vandamálið byrjaði í ríkisvæðingu stjórnmálanna þar sem framboðin eru orðnir tilberar á þjóðarlíkamanum sem sjúga ríkispeninga í samspillingu allra flokka á Alþingi sem þá ekki verða notaðir í annað þarflegra. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Skortur á samtali fjölgar framboðum, segir Björn Bjarnason og Valur Árnason fjallar um svipað efni gér á blogginu og svo Halldór Jónsson um ríkisvæðingu stjórnmálanna. Allir hafa þessir ágætu menn rétt fyrir sér. 

Enn þegar Alþingi ákvað að kosta öll framboð, án þess að biðja okkur sem borgum um leyfi, þá setti það verulega niður.  Margir flokkar treysta ekki líðræðið svo sem sannast hefur víðar en hér, enda þingið á stundum nánast óstarfhæft sökum óvita skapar og vitleysis gangs þingmanna ýmissa gorkúluflokka.

Vænti þér bata og biðst velvirðingar á mínum misskilningi. Kveðja að austan.

Hrólfur Þ Hraundal, 24.4.2018 kl. 11:35

2 identicon

Það er þannig með flísarnar að allir sjá þær, en fæstir sjá stóra bjálkann, bara flísarnar.  En ég bo'ða þér ljósið Halldór minn:  Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn, því miður, stærsti tilberinn, æðsti strumpur tilberanna.  Tek annars undir hvert orð í pistlinum, vildi bara benda á stærsta tilberann. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.4.2018 kl. 13:14

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Er þetta ekki í takt við aðra aumingjavæðngu samfélagsins, nafni?.

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 25.4.2018 kl. 19:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband