Leita í fréttum mbl.is

Breiðari og ódýrari Miklubraut

er hægt að byggja heldur en eftir hugmyndum sjónhverfingamannsins mikla, Dags B. Eggertssonar, sem að hætti krata segir aldrei sannleikann um daginn í dag heldur talar um framtíðina fögrum orðum.Og annar hver maður í Reykjavík trúir honum og er það merkilegast af öllu fyrir alsjáandi fólk.

Skýjaborg hans um 70 milljarða Borgarlínu og 30 milljarðs stokk undir Miklubraut er sett á áætlun á næstu 2 kjörtímabil. Þá er hægt að gera ekki neitt á því næsta án þess að svíkja nokkuð eins og 3000 íbúðir á því sem er að líða. Og bílunum fjölgar mikið á næstu árum. Fólkið vill greinilega bíla en ekki strætó eða hjól ef maður skoðar Morgunblaðið þar sem önnur hver heilsíða er bílaauglýsing. 

Hvernig er ástandið á Miklubrautinni?

Það er gott þar sem hún er þríbreið.

En það er eins og ef Dagur myndi vilja leggja vatnsleiðslu í átt að kvosinni. Hann hefði hana fyrst 3 tommu en mjókkaði hana svo sífellt og endaði í tommu við áfangastaðinn. Hvað myndi renna mikið í því röri? Til viðbótar setti hann svo þverunarkrana á pípuna á nokkrum stöðum, lokaði fyrir vatnið í aðalpípunni meðan hann léti heitt vatn renna þvert á hana til valdra hjólandi og gangandi gæðinga sem það vildu . 

Það er hægt án mikils aukakostnaðar að gera Miklubrautina þríbreiða alveg að Gamla kirkjugarði.

Það þarf að kaupa upp svona  100 íbúðir og rífa fyrir 5-10 milljarða. Það þarf að byggja mislæg gatnamót á Lönguhlíð og Kringlumýrarbraut fyrir kannski 10-20 milljarða.  Og það er hægt að innifela forgangsakreinar fyrir fleiri en 3 í bíl í stað Borgarlínu í þessu prójekti án mikils aukakostnaðar.

Það og leggja svo brautina á yfirborði hlýtur að vera ódýrara og fljótvirkara en hundraðmilljarða hugmyndir Dags um stokkinn og einhverja Borgarlínu sem leysir ekki vanda bíleigenda hið minnsta. Svo þarf að halda áfram Hringbrautina til sjávar sem er kannski  eitthvað flóknara.

Umferðarvandann að Landspítalanum  má leysta með margra hæða sjálfbærri Robótaparkeringu þar fyrir og við jafnvel við Háskólann Í Reykjavík líka.

Að sökkva Miklubrautinni og byggja jarðgöng fyrir hana með öllum þeim aukakostnaði í loftræsingu, slysavörnum sem af því leiðir finnst mér hljóti að vera dýrara en að keyra á yfirborðinu. Það yrði ekki gert svo í Ameríku þar sem milljónir manna ferðast um en ekki þessi hundraðþúsund eins og hér.

Breiðari og ódýrari  Miklubraut sem er þjóðvegur í þéttbýli  er það sem Reykvíkinga vantar núna frekar en skýjaborgir Dags B. Eggertssonar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þið hægriöfgakarlarnir í Kópavogi hafið greinilega engan áhuga á ykkar eigin sveitarfélagi.

Og helblár sonur NATO-Manga, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fylgjandi Miklubrautar í stokk, er að sjálfsögðu krati. cool

Þorsteinn Briem, 28.4.2018 kl. 11:42

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það er nú ekki málefnalegt að hjóla í manninn í staðinn fyrir boltann með fúkyrðum vegna faðernis. Ég hef áður greint frá skrefamælingu minni við flöskuhálsana sitt hvorum megin við Klambratún sem sýndu, að það þarf meira segja alls ekki uppkaup á svona mörgum íbúðum né jafn stórfellt niðurrif og talað er um. 

En það gleymist, að hver maður, sem er á hjóli, vélhjóli eða notandi almenningssamgangna, gefur eftir rými sitt í bílaumferðinni sem samsvara einum bíl. 

Og frá því að hugmyndir um stokk undir Miklubrautina komu fram fyrir aldarfjórðungi hafa tíu borgastjórar og margir mismunandi meirihlutar verið við völd.  

Ómar Ragnarsson, 28.4.2018 kl. 13:02

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Höfuðborgarsvæðið er eitt atvinnusvæði og til höfuðborgarinnar sækja tugþúsundir vinnu, skóla og þjónustu úr nágrannasveitarfélögum.  Ef einhver efast ætti sá að gera sér ferð að "landamærunum" morguns eða kvölds.
Af hverju ætti allt þetta fólk ekki að hafa eitthvað að segja um umferðarmálin í borginni?  Það hlýtur líka að fylgja að eftir því sem ferðin er lengri að heiman og á áfangastað verður erfiðara að ganga eða hjóla.  Höfuðborgin sjálf þarf að taka tillit til þess.

Kolbrún Hilmars, 28.4.2018 kl. 14:06

4 identicon

Þarf að gera trukkafær göng við Klambratún. Dugar ekki að gera þau nógu há fyrir fólksbíla. Þá þerf kannski ekki að fara dýpra en niður á fast og byggja örlítið upp, kannski einstefna í hvora átt uppi og niðri.

Aðalsteinn Geirsson (IP-tala skráð) 28.4.2018 kl. 15:38

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það hefur síður en svo verið erfiðara fyrir mig að fara alla leið austan úr austasta hluta Grafarvogshverfis vestur í bæ á létta "vespu"vélhjólinu mínu, sem eyðir aðeins 2,2 lítrum á hundraðið. 

Þvert á móti er ég ævinlega fljótari en bíll, og miklu fljótari þegar umferðin er sem allra mest. 

Ómar Ragnarsson, 29.4.2018 kl. 00:55

6 identicon

Afsakið. Það vantar spurningarmerki aftan við 2 fyrstu setningarnar hér að ofan.

Aðalsteinn Geirsson (IP-tala skráð) 29.4.2018 kl. 08:49

7 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ómar, ég efast ekki um að þú hafir rétt fyrir þér og sjálf nýt ég aldursins líka hvað varðar það að geta valið besta tímann fyrir heimilisaðdrætti.  Var reyndar að hugsa um unga fjölskyldufólkið sem er alltaf í tímahraki og hafa hvorki göngur eða hjólhesta sem valkost.

Kolbrún Hilmars, 29.4.2018 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband