Leita í fréttum mbl.is

Fyrir Sjálfstæðismenn

eingöngu er pistill Vilhjálms Bjarnasonar, sem formaður Sjálfstæðisflokksins persónulega svipti þingsæti sínu á aðalfundi Kjördæmisráðs.Þetta átti þá að vera svo rosalega sniðugt fyrir kynjajafnréttið að það varð að skipta á Villa og konu og eyðileggja heilagt prófkjörið sem hafði sett Villa Bjarna í sitt sæti.

Og hverju hefur þetta svo skilað spyr Vilhjálmur?

"Flestir dægurlagatextar eru algerlega merkingarlausir. Textarnir eru settir saman fyrir melódíuna, í hæsta lagi að textinn verði einhvers konar lýsing á ástum karls og konu. Textinn um Sumarliða, sem var fullur, er mjög umhugsunarverður, raunar vekur mun fleiri spurningar en hann svarar því hann svarar engu.

„Ég veit allt! Ég get allt!

Geri allt miklu betur en fúll á móti!

Ég kann allt! Ég skil allt!

Fíla allt miklu betur en fúll á móti!

Smíða (þjóðar)skútu, skerpi skauta,

bý til þrumu ost og grauta!

Haltu kjafti!!“

Óánægja veldur ógleði í huga fólks. Ánægjuefni geta verið margvísleg. Það sem er verst með óánægjuna er að ef óánægjuefnið hverfur verður ekki ánægja. Miklu heldur að ástandið verði „fúll á móti“. Auðvitað verður ánægja alltaf eftirsóknarverð og því er nauðsynlegt að vita hvað það er, sem veldur ánægju. Það getur verið að bið eftir lyftu valdi óánægju. Hin augljósa lausn er að bæta við annarri lyftu. Það er verkfræðilegt vandamál og lausnin dýr. Lausnin kann að vera sú að setja spegil við lyftudyr. Þá hverfur óánægjan því þá hittir sá sem bíður „fúlan á móti“. Þá skiptir einnig máli hvort sá er bíður tilheyrir neikvæðum eða jákvæð- um hópi. Það er tiltölulega einfalt að átta sig á hvort tiltekinn homo sapiens tilheyrir vinstri hlið eða hægri í upptalningu hér að neðan;

Nei           Já

Ekki          Jú

Kalt          Heitt

Hálftómt      Hálffullt

Þeir, sem mynda setningar í talmáli þar sem orð úr vinstri hlið koma fram, eru í raun óánægðir án þess að ná því nokkru sinn að verða ánægðir. Þeir verða aðeins „fúll á móti“ ef óánægjuefni hverfur. Þeir, sem svo er komið fyrir, eiga að vera í stjórnarandstöðu eins og vinstriflokkum fer best og skaða minnst.

Fylgi flokka

Sá er þetta ritar hefur um langt skeið velt fyrir sér hví stjórnmálaflokkur, sem hefur haft Whiskey-styrkleika í fylgi, stefnir hraðfari í Port-styrkleika í fylgi. Slíkt er að sjálfsögðu með öllu óviðunandi. Stjórnmálaflokkur, sem hefur haft forgöngu um að fella niður tolla og vörugjöld af heimilistækjum og fatnaði, hefur ekki náð vopnum sínum. Óánægjuflokkur, sem er vanur stjórnarandstöðu, barðist mjög gegn þessum breyttu aðstæðum til bættra lífskjara. Tollar og vörugjöld voru greinilegt óánægjuefni en við hvarf þeirra varð ekki ánægja. Í versta falli varð „fúll á móti“.

Fjöldafylgi

Til þess að stjórnmálaflokkur nái fjöldafylgi þarf ánægjuefni. Þannig dugar lítt að tala um jákvæðan greiðslujöfnuð eða afgang á fjárlögum. Svo virðist sem sameining gegn ímynduðum óvini sé líkleg til fjöldafylgis. Nærtækt dæmi er stjórnmálamaður sem kaupir kröfur á þrotabú, í von um fjárhagslegan ávinning. Sá hinn sami talar um kröfuhafa sem „hrægamma“, sem hann þó tilheyrir sjálfur. Síðan tekst honum að sameina hóp að baki sér gegn þessum „hrægömmum“ og nær fjöldafylgi og heldur landsfund sem líkist trúarsamkomu. Fjöldafylgi sem er byggt á ímynduðum óvini eða óánægju hefur þó reynst fallvalt og svo verður vonandi áfram. Fjöldafylgi, sem er byggt á traustum kjósendum, er eftirsóknarvert fyrir stjórnmálaflokk, sem vill að tekið sé mark á sér. Þá þarf að stýra eftir stjörnum en ekki eftir því hvernig vindar blása hverju sinni. Það kann að vera að í slíkum flokki þurfi málamiðlanir. Hvaða ávinningi skilaði það fyrir Sjálfstæðisflokkinn að standa að þings- ályktunartillögu um afturköllun aðildarumsóknar að Evrópusambandinu? Máli sem lá í dvala! Ávinningurinn var Viðreisn! Var nú þörf á því?

Ósamrýmanleg markmið

Hvernig er hægt á sama tíma að berjast fyrir auknum jöfnuði og að menntun verði metin til launa? Hvernig er hægt að berjast fyrir réttlæti og jöfnuði á sama tíma og þeir sem hafa lagt á sig byrðar í fortíð fá aðeins refsingar og skerðingar í framtíð? Hvernig er hægt að útskýra það fyrir venjulegu fólki að „óverðtryggð“ lán séu með hærri ávöxtun en verðtryggð lán? Ávöxtun verðtryggðra lána er ákveðin með hlutlægum mælingum í nútíð en ávöxtun „óverðtryggðra“ lána er ákveðin með væntingum inn í framtíð auk varúðarálags. Eða eru „óverðtryggð“ lán til? Ef þau eru til, hvað þá með greiðslur úr lífeyrissjóðum? Skerðast ekki bætur vegna slíks óréttlætis sem felst í gjafvöxtum?

Ánægjuefni

Það á að vera markmið í stjórnmálum að skapa ánægju og von. Þannig á stjórnmálamaður að tala við þjóð sína með ávarpi en ekki andvarpi. Verkefni framtíðar eiga að vera ánægjuefni innan samrýmanlegra markmiða. Vissulega verða stjórnmálamenn að hafa persónutöfra til að verða trúverðugir. Ráðherrar eiga ekki að nota sína málaflokka til að bæla niður óánægju, heldur til að skapa ánægju.

Stytting biðlista í læknisaðgerðir sem lina kvalir er leið til að bæla niður óánægju. Kvalinn kjósandi er aldrei ánægður kjósandi. Sá, sem hefur beðið lengi eftir aðgerð en er sinnt að lokum, verður aðeins „fúll á móti“ þegar upp er staðið.Biðraðir eru kommúnismi.

Sá er þetta ritar var um tíma kjörinn fulltrúi. Á þeim tíma spurði hann sig stundum hvort áherslur í málefnum, sem Flokkurinn hafði á sinni könnu, væru réttar! Og ekki síður hvort rétta fólkið væri í framvarðarsveit. Tekið skal fram, að sá er þetta ritar tók aldrei þátt í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra eða eldhúsdagsumræðum. Ef til vill ekki rétti maðurinn?

Það kann að vera að Flokkurinn þurfi naflaskoðun því Port-styrkleikafylgi er ekki ásættanlegt. Og verða „fúll á móti !"

 

Niðurlag

Það er ekki það að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki glæsilegasta fólkið og best máli farið.Flokkurinn bara gengir ekki neitt.Ég spyr mig að því hvort forystuliðið hreinlega nenni ekki að útbreiða grunngildi flokksins heldur einblína á karpið á Alþingi og klakningu reglugerða á vegum EES? 

Ég heyrði ræðu hjá Hildi Björnsdóttur sem er 2. maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þar heyrði ég talað um Sjálfstæðisstefnuna í fyrsta sinn í langan aldur. Hvað skilur þann flokk frá öðrum flokkum og hefur hann upp úr karpinu um spillingu einstakra manna. 

En eins og Bjarni Benediktsson hefur sjálfur sagt, þá eru flokkar ekki kosnir út á það sem þeir hafa gert heldur hvað þeir ætla að gera.

Þar sem Bjarni Benediktsson hefur höfuð og herðar yfir alla aðra þingmenn hvað glæsileika varðar og rökfimi í málflutningi sem snýr hvern þeirra meðaljón auðveldlega niður, þá getur maður spurt sig af hverju flokkurinn nær bara púrtvínsstyrkleika?

Er talað nógu skýrt um það, hvað flokkurinn ætlar að gera og hvers vegna?

Er það  einskis metið það sem hann hefur gert?

Er flokksforystan  með rangar áherslur og það þurfi að gera breytingar?

Þetta er fyrir Sjálfstæðismenn eingöngu og asnaskrif í athugasemdum frá vinstrimönnum eru frábeðin.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef við horfum á Reykjavík þá virðist skipta öllu máli að áætlanir séu frábærar, skiptir engu hvort þær rætast. 

Kjósendur virðast hafa lítið minni.

Sjálfstæðismenn hafa almennt verið frekar hógværir að lýsa yfir eigin ágæti og skortir kannski að þeir bjóði upp á spennandi skýrar lausnir?

Emil (IP-tala skráð) 11.5.2018 kl. 10:33

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Alla vega erum við ekki að koma þeim til skila

Halldór Jónsson, 11.5.2018 kl. 17:10

3 identicon

Sæll Halldór vinur minn.

Áróður og áherrslur á vanefndir ríkjandi meirihluta borgarstjórnar eru alveg skelfilegar.Það þyrftri að birta 20 atriða auglýsingu um þau málefni sem lofað var fyrir 4 árum, en voru svikin,dreifa þessum staðreyndum í öll hús. Það er eins og vanti einnig að hampa einhverri framtíðarsýn. Hún er ekki fyrir hendi í þeirri ömulegu eyðileggingarsýn að koma fyrir 70.000 manns með því að rífa niður atvinnuhúsnæði, sem fyrir er og flytja þau til fjallahéraða og ætlast svo til að borgarlínan lysi vandann varðandi flutninga fólks. ! Þvílík vitleysa!!

Helgi Bjarnason (IP-tala skráð) 12.5.2018 kl. 01:44

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Helgi, hvernig gerði Davíð það, birti lista yfir það sem hann kom í amkvæmd.Nú mætti búa til lista yfir það  sem Dagure hefur svikið og freifa í hús.

Halldór Jónsson, 12.5.2018 kl. 06:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418213

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband