Leita í fréttum mbl.is

"Fyrirspurnarlýðræðið"

verður konungi bloggaranna Páli Vilhjálmssyni að yrkisefni.

Raunar er fyrirsögnin tæmandi lýsing á hugtakinu sem er orðin staðreynd á Alþingi.Stofnunin er orðin gikkföst í gersamlega úreltum vinnubrögðum sem gera ekkert annað en að eyða afli þjóðarinnar "í hin smáu tökin".

Páll segir:

" Stjórnarandstaðan spyr ríkisstjórnina um alla mögulega og ómögulega hluti í þeirri von að fá einhverja mola til að deila á samfélagsmiðlum og bæta við svei attan. Ef vel tekst til taka fjölmiðlar upp molann og viðkomandi þingmaður fær sína 15 sekúndna frægð.

Fyrirspurnarlýðræðið er ekki til að upplýsa eða móta pólitíska stefnu heldur til að fjargviðrast.

Þingmenn þykjast hneykslaðir á slæmu orðspori Alþingis og minni kosningaþátttöku almennings. En upphlaupsmál þingmanna gera ekki annað en að veikja alþingi."

Þetta er nákvæm lýsing á niðurlæginu Alþingis með vaxandi uppgangi skrípaflokka eins og til dæmis Pírata. Óstjórntæka flokka sem hafa engan tilgang annan en að ná í sporslur til einstakra þingmanna sinna. Annar getur ekki tilgangurinn verið hjá flokki sem hefur enga tengingu við stjórnmál og getur því engu náð fram af sjálfsdáðum. Það er því von að slíkir flokkar óski sér bakhjarls frá stórum yfirþjóðlegum aðilum eins og gerist á Ítalíu þar sem ESB tekur völdin af kjörnum fulltrúum og útdeilir til sér þóknanlegra.

Til að auka við 15 sekúndna fræg þessa fólks birta ólíklegustu fjölmiðlar eins og  Morgunblaðið kafla úr fimbulfambi þessara aðila á miðopnu og auka þannig á niðurlæginguna. 

Það er makalaust ef Alþingi er um megn að bæta ráð sitt til aukinnar skilvirkni og nútímavæðingar í stað eflingar þessa fyrirspurnarlýðræðis.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband