Leita í fréttum mbl.is

Hælisleitendur

eru mál semhelst er ekki rætt á Íslandi. Björn Bjarnason fer til Danmerkur til að athuga hvað þeir eru að hugsa:

" Venja er í Danmörku eins og hér að forsætisráðherra flytji þjóðhátíðarræðu, á dönsku tala menn um grundlovstale og að þessu sinni kaus Lars Løkke Rasmussen að gera útlendingamálin að umtalsefni. Þau ber hátt í dönskum stjórnmálum og verða vafalaust meðal helstu kosningamálanna að ári. Í Danmörku leggja forystumenn stóru flokkanna áherslu á að skerpa og herða útlendingalöggjöfina og sporna við straumi þeirra sem fara ólöglega yfir landamærin. Þá vilja þeir að tekið sé á málefnum hælisleitenda af röggsemi og þeir séu fluttir úr landi sem hefur verið brottvísað.

Í ræðunni sagði Løkke að ríkisstjórnin vildi að komið yrði á nýju hæliskerfi til að draga úr þrýstingi á ytri landamæri Evrópu og auðvelda baráttuna við þá sem hafa fé af fólki fyrir að smygla því til álfunnar.

Forsætisráðherrann sagði að hann og danskir embættismenn hefðu rætt við fulltrúa stjórnvalda hóps evrópskra ríkja með „svipuð viðhorf“ um hvernig mætti koma á slíku kerfi.

Kjarni þessa nýja kerfis yrðu „sameiginlegar móttöku- og brottvísunarmiðstöðvar“. Hælisleitandi sem kæmi til Danmerkur yrði fluttur í miðstöð í öðru landi og umsókn hans afgreidd. Þaðan yrði hann sendur á brott yrði honum hafnað. Miðstöðvunum yrði valinn staður í löndum án sérstaks aðdráttarafls í augum hælisleitenda. Það flýtti fyrir að þeir sneru aftur til síns heima."

Hér er stór stjórnmálarmur, mikið eitthvað píratalið sem fæstir nenna að reyna að skilja, sem hefur hátt og vill helst að tekið sé við öllum. Sama þótt þeim hafi verið snúið frá öðru Schengen landi í gæt, hér skulu þeir settir hér á hótel,vasar fylltir af peningum, þeim fenginn  lögfræðingur og þeim sjálfum beitt á íslenskan almenning. Ef þú ert ekki sammála þá ertu rasisti og nasisti og berð móralska ábyrgð á helförinni.

Hér eru hælisleitendur helst tabú vettvangur sem Helga Vala og píratastóðið á fyrir sig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband