Leita í fréttum mbl.is

Forkastanleg vinnubrögð

eru Styrmi Gunnarssyni hugleikin varðandi meðferð Alþingis á Persónuverndarlögum ESB sem á að keyra í gegn á síðasta degi þingsins. 

Það ískrar í forstöðumanni Persónuverndar Helgu Þórisdóttur af þrá yfir því að geta sektað og sektað alla þá sem henni eru ekki þóknanlegir. Hún fær að ráða tugi lögfræðinga til að fylgja eftir ofsóknum  á hendur almenningi,Sýnir þessi kona ekki mörg einkenni hættulegs valdafíkils?

Styrmir skrifar svo:

"Svo virðist sem Alþingi ætli að ljúka störfum í dag eða í kvöld og þá m.a. með því að samþykkja persónuverndarlöggjöf ESB.

Verði það gert yrði um að ræða forkastanleg vinnubrögð þingsins.

Nú þegar hafa tveir aðilar lýst þeirri skoðun, að samþykkt umræddrar löggjafar kunni að vera brot á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Þetta eru Arnaldur Hjartarson, aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands og laganefnd Lögmannafélags Íslands.

Hvernig stendur á því, að þingið ætlar að afgreiða mál af slíkri léttúð, sem svo alvarlegar athugasemdir hafa verið gerðar við af þar til bærum aðilum?

Þar að auki hafa sveitarfélög, ríkisstofnanir og hagsmunasamtök flestra helstu atvinnuvega landsins gert svo alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð þingsins, að með ólíkindum er að þingmenn ætli að hafa þær að engu.

Nú þegar hefur Heimssýn, samtök sjálfstæðissinna, beint tilmælum til forseta Íslands um að hann staðfesti væntanlega lög ekki með undirskrift sinni. Það mundi þýða að málinu yrði vísað til þjóðarinnar til endanlegrar afgreiðslu.

Jafnframt hefur Heimssýn gefið til kynna að samtökin muni hugsanlega fara með málið fyrir dómstóla.

Getur verið að þeir sem nú sitja á Alþingi séu tilbúnir til að gera þetta bráðum 1100 ára gamla þing að eins konar stimpli, sem skrifstofuveldið í Brussel geti notað að vild sinni? "

Er ekki óhætt að leggja eyrun við þessum orðum manns sem er ekki fæddur í gær?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn - stærsti og öflugasti flokkur ESB innlimunarsinna.  Leppflokkur alræðissinnanna í Brussel. 

Og fylgið?  Það mun minnka og minnka og bráðlega fara vel undir 20%.  Það er skiljanlegt, m.a.s. Halldór og Styrmir sjá nú loksins það sem þeim hefur æ fleiri orðið augljóst sem yfirgefið hafa svikaflokkinn. 

Allt þetta hófst undir forsæti Davíðs Oddssonar í Viðeyjarstjórninni og mátti vera þá strax augljóst í hvað stefndi.  Ný-frjálshyggjuarmurinn, Thatcher/Blairisminn tók öll völd, það endaði með hruni haustið 2008, með Davíð Oddson sem seðlabankastjóra, grátlegt fyrir ykkur að þurfa að kyngja þessum staðreyndum.  Kominn tími til að vakna inn í martröð raunveruleikans:  Bjarni Ben er helmingi meiri ESB innlimunarsinni en DOddsson.  Þetta er búið, þið voruð einfeldningar sem tilbáðu DOddsson og fylgduð Bjarna eins og sauðir.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.6.2018 kl. 08:58

2 identicon

Peningastefnunefndin?  Illugi Gunnarsson, sá hinn sami og skrifaði evru tilbeiðslugreinina með Bjarna, rétt fyrir hrun, á tíma DOddson sem seðlabankastjóra.

Fulltrúi yfirkommisaranna í Brussel?  Árni Páll Árnason, skipaður af Guðlaugi Þór.

Sjálfstæðisflokkurinn - Helsti ESB sinna flokkur landains um rúmlega tveggja áratuga skeið, hrunskeiði þessa svikaflokks.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.6.2018 kl. 09:09

3 identicon

Grotnandi flokkur

   ÆÆ ósköp held ég að vinur minn Halldór Jónsson eigi bágt með að horfast í augu við staðreyndir dagsins í dag.  Gamli góði Sjálfstæðisflokkurinn er að grotna niður innanfrá og aumingjaskapur flokksins er slíkur að hann leggst flatur undir fámennan kommunistaflokk.

  Alllt það sem gerði flokkinn að því sem hann var, er horfið. Það er í rauninni vart skiljanlegt að nokkur í dag vilji setja atkvæði sitt á ónýtan innangrotnandi Sjálfstæðisflokk. Er þetta er skrifað eru sjálfstæðisþingmenn að framselja vald ( persónuvermdarlög ) til Evrópusambandsins.  Þetta gera þingmenn Sjáfstæðisflokksins á 100 ára fullveldisári Íslands og þar til viðbótar  brjóta þeir stjórnarskrá Íslands.

Eðvarð L. Árnason (IP-tala skráð) 12.6.2018 kl. 11:57

4 identicon

Það er vert að vitna hér í grein sem Eðvarð skrifaði fyrir landsfund flokksins 2013.  Ég hef engu við hans góðu varúðarorð að bæta, þau eru sígild orðin og allt var þetta fyrirséð, en flokksforustan skellti skollaeyrunum við varúðarorðum hans og fleiri, og flokkurinn er vissulega grotnandi, rotnandi sem hræ-gamma hræ.  

Minni á, að það kemur, miklu fyrr en síðar, aftur til nýrra kosninga:

Í dag spyr fólk hvað annað á förnum vegi: Hvað ætlar þú að kjósa í komandi kosningum? Svör eru oft á þennan veg: „Ég veit ekki. Ég er ekki ánægður með neitt af þessum framboðum. Ég ætla ekki að kjósa. Ég ætla að skila auðu.“ Þarna eru hugsanlega atkvæðin sem koma til með að ráða úrslitum. En hver er vegvísirinn til þessara atkvæða?

 

Margir þeir fulltrúar sem koma til með að sitja komandi landsfund Sjálfstæðisflokksins vita í hjarta sínu hvað þarf til. Þeir vita að hagsmunir flokksins þurfa að vera ofar sérhagsmunum einstaklinga, eða sérhagsmunahópa. Kjósendur vilja sjá slíkt í verki. Nýja vegvísa til endurreisnar Íslands.

 

En hvernig ?

 

1. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að fara í róttækar aðgerðir til leiðréttingar á stöðu heimila sem eru mörg komin að fótum fram. Mætti gera þetta til dæmis með því að færa vísitölu verðtryggðra lána í meðaltal þess sem hún var fyrir hrun og þessa dags?

 

2. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að vilja að þjóðin fái að kjósa um framhald aðildarumsóknar að ESB.

 

3. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að hætta þjónustu sinni við Landssamband útvegsmanna. Stór hluti þeirra kjósenda sem finna atkvæði sínu ekki stað nú vill ekki þá skilyrðislausu þjónustu sem leiðtogar flokksins hafa boðið þjóðinni upp á um langt árabil hvað óbreytt kvótakerfi varðar.

 

Í könnunum hefur komið fram að 86% krefjast breytinga varðandi stjórnun sameiginlegrar sjávarauðlindar þjóðarinnar. Verði ekki opnað á einhverjar málamiðlanir varðandi þessa hagsmunaþjónustu flokksins við kvótakerfið finnst ekki vegvísir að atkvæðum þessara mörgu kjósenda.

 

Niðurlag:

 

Komandi landsfundur þarf að kjósa sér nýjan formann til þess að sókn flokksins beri nægilegan árangur. Hvað sem segja má annars um núverandi formann þá stóð hann til dæmis ekki undir væntingum varðandi Icesave þegar hann stóð með Jóhönnu og Steingrími gagnvart þeirri erlendu fjárkúgun sem beitt var gegn íslensku þjóðinni.

 

Íslenskir kjósendur sætta sig heldur ekki við ásakanir um vafninga sem tengjast hruninu. Því miður er núverandi formaður flokksins bendlaður við það með réttu eða röngu. Hversu góður sem Bjarni Benediktsson annars kann að vera og hversu saklaus sem hann kann að vera, þá skiptir það ekki máli í kosningabaráttunni framundan. Það verða allt of margir sem ekki kjósa flokkinn þess vegna.

 

Leiðtogi flokksins getur ekki, – ekki sjálfs sín vegna heldur Sjálfstæðisflokksins vegna – haft slíka fjötra sér um fót á leið inn í kosningabaráttuna um vegvísa fyrir þjóðina til framtíðar.

 

Sjálfstæðisflokkurinn og þjóðin líka hafa hreinlega ekki ráð á að fá aftur vinstristjórn í vor.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.6.2018 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband