Leita í fréttum mbl.is

Aumingja íhaldið

í Borginni.

Það eru ömurleg örlög fyrir Eyþór Arnalds að hljóta sömu örlög og sá ágæti Halldór Halldórsson á undan honum. Alveg sama hvað sá maður sagði og lagði til af skynsamlegu viti, Dagur og hyski hans hlustuðu ekki á hann, voru á móti öllu sem hann sagði ef hann þá sagði eitthvað, sýndu honum algera fyrirlitningu og tómlæti. merkilegt að hann mætti samt vel og var alltaf að reyna. Sama máli gegndi um Kjartan og Mörtu, gersamlega fryst úti. Þau dóu öll eiginlega niður úr hreinum leiðindum og tilgangsleysi.

Nú bíður þetta hlutskipti 8 manna Borgarstjórnarflokks Eyþór Arnalds. þeir gættu alveg eins myndað tvær tveggja manna Bridge-sveitir  og æft sig á Borgarstjórnarfundum þegar glærusýningar Dags og Hjálmars standa sem hæst. Eyþór gæti kannski tekið sellóið með og spilað einhverja frumsamda róandi Borgarlínukantötu fyrir sig og sitt fólk?

Málið er að ekkert vitrænt kemur á borð Borgarstjórnar næstu 4 ár sem tekur því að vera að fara í pontu og tala á móti af skynsemi. Þeir talar aðeins Seifur sjálfur sem allt veit mærður og hallelújaður af heilaþvegna liðinu í kring um hann.

Það verða aðeins fluttar tillögur um meiri fjandskap við einkabílinn og umhverfi hans, tillögur um aukinn lóðaskort og meiri húsnæðisvanda. Meiri þrengingar að flugumferð, engin flugstöð verður byggð þó að Sigurður Ingi sé með derring við hávelborinheitin.

Það skal stefnt að lokun vallarins á næstu árum með Ríkið byggir nýjan Flugvöll í Hvassahrauni fyrir Dag samkvæmt því sem hann lagði til í Rögnunefndinni á sinni tíð. Þar tókst honum að niðurlægja og prakka til  hið mætasta fólk til þess að ræða flugvallarmál við staðfastan flugböðulinn sjálfan sem var auðvitað mættur með niðurstöðuna áður en fyrstu fundur í nefndinni var haldinn. 

Áframhaldandi fjandskapur við einkaflugið og mannvirki þess á Reykjavíkurflugvelli verður í forgrunni og fram haldið að rukka lóðagjöld af þeim og vatnskatta þó ekkert sé svo látið í té opinberlega, lóðasamningar, frárennsli eða vatn.

Borgarlínan verður Alfa og Ómega alls sem andann dregur.

Er einhver ástæða til að vera að munnhöggvast við þetta lið. Mér er það stórlega til efa eftir að hafa fylgst náið með málflutningi Dags B,. í gegn um árin. Dagur er algerlega rökheldur í hvaða máli sem er. Vi alene vider er hans lyndiseinkunn.

Það er illa farið með mikla starfskrafta Eyþórs Arnalds á sviði stjórnunar sem nú verða ekki nýttir. Er þetta yfirleitt leggjandi á hann og aðra sem í Borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna sitja?

Ég segi nú bara eins og mér finnst:

Aumingja Íhaldið í Reykjavík!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eyþór gæti byrjað að þjarmað að Degi fyrir algjört athafnarleysi varðandi persónuverndarmál einso skýrt kemur fram hér  https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/06/13/segja_2_ar_nauman_adlogunartima/

ekki einu sinni hefur Dagur nennt að tilnefna neina af silkihúfunum í ráðhúsinu sem persónuverndarfulltrúa þó það hafi öll önnur sveitarfélög séð sóma sinn í að gera fyrir löngu

Borgari (IP-tala skráð) 13.6.2018 kl. 17:35

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég er sammála þér, Halldór, það er ömurlegt að fá þarna nokkurn veginn sama liðið til að stýra málum í Reykjavík, með sinni enalausu vanrækslu, en ofstjórn um ýmislegt, t.d. um flugmál, sem einmitt nú eru í mikilli hættu (en þau pössuðu sig á því að minnast ekkert á flugvallarhatur sitt, létu yfirlýst bílahatrið duga!).

Rögnunefndin var eins ófagleg og vitlaus og hún gat verið, með þennan mjúkmálga charlatan innanborðs, og lagði til flugvallarstæði á vitavonlausum stað, í Hvassahrauni sunnan Hafnarfjarðar, þar sem flugskilyrði eru við ýmsar aðstæður og veðurlag afleit, eins og Þorkell Á. Jóhannesson flugmaður hefur sannað í greinarskrifum, og svo bættist við, að þetta er vatnsverndarsvæði!

Ég gæti haldið hér áfram um ýmis mál, en gef mér ekki tíma til að sinni, leyfi mér bara að minna á enn eitt hatrið, sem þessi gervimeirihluti (með 46,35% atkvæða kjósenda) er haldinn, en það er Sjálfstæðisflokkshatrið. Og þess geldur Eyþór og hans félagar, sem hefðu getað komið þarna fersk og vinnufús til starfa. En þess í stað kemur þetta Borgarlínulið, sem á ekki eina einustu milljón fyrir sinni 70 milljarða "Borgarlínu", sem ekkert venjulegt fólk vill við umhugsun. Kona, sem hringdi inn í þátt Péturs lögfr. Gunnlaugssonar í morgun, lýsti því vel, hvílíkur hringlandaháttur það yrði að taka skutlur og Borgarlínu til og frá stöðum til að koma börnum á leikskóla, koma sér í vinnuna, aftur heim og ná í börnin og gera innkaup í verzlunum, tómt rugl ! Og Dagur vissi ekki einu sinni, aðspurður á kynningarfundi, hvort þessar skutlur ættu að ganga á 5 eða 15 mínútna fresti eða yfirhöfuð neitt um það!

Jón Valur Jensson, 13.6.2018 kl. 17:53

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

... með sinni endalausu vanrækslu, (d-ið bilað á tölvunni!)

Jón Valur Jensson, 13.6.2018 kl. 17:55

4 identicon

"Það er gott að búa í Kópavoginum"

   Svo sagði góður maður á sínum tíma. Kæri Halldór þú átt að vera sæll og glaður verandi, búandi í djásni höfuðborgarsvæðisins, Kópavogi.  En því miður eiga margir Kópavogsbúar sök á því að gengi Eyþórs Arnalds varð ekki betra en raun varð í nýliðnum borgarstjórnarskosningum. 

   Sök Kópavogsbúa má rekja aftur til síðustu alþingiskosninga. Í hinu góða bæjarfélagi var fólk sem gekk til síðustu alþingiskosninga og settu atkvæði sín á  innansúran og innskemmdan Sjálfstæðisflokk. Stjórnmálaflokkur sem víngsast stefnulaus í tjóðurbandi VG og Sigurðar Inga framsóknarleiðtoga,getur engum verið gott til framdráttar. Vonandi hefur þú gamli vinur með alla þína menntun og visku, ekki sett atkvæði þitt á súran og innanskemmdan sjálfstæðisflokk.       

  Tilvist núverandi ríkisstjórnar brá fótum fyrir gengi Eyþórs Arndals og gerði framboð hans vanmáttugt. Nú geta þeir sem settu atkvæði sín á hinn innansúra Sjálfstæðisflokk nagað sig í handarbök, og ef fer sem horfir verður höfuðborgin svipt flugvelli sínum, en fær kannski eitthvað sem kallast borgarlína og áframhaldandi þrengingu gatna í staðinn Ekki má gleyma Sundabraut sem nú er eflaust kominn  í neðstu skúffu hins sæla hinum hjólandi Hjálmari, en hann af visku sinni sagði í útvarp að ekki væri þörf á Sundabraut..

  Allt þetta  og meira til er í boði þeirra sem eru í ólum hjá Kötu sem stundum er kennd við komma.

Eðvarð L. Árnason (IP-tala skráð) 13.6.2018 kl. 21:05

5 identicon

Heill og sæll Halldór!

Bið þig vænstan að lesa minnst þrisvar sinnum athugasemd Eðvarðs hér að ofan.  Og íhuga hans orð a.m.k. í 24 mínútur orð hans eftir hvern lestur.  Hvers vegna?  Vegna þess að þau tjá sannleikann.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.6.2018 kl. 22:16

6 identicon

Jæja, best ég segi það hreint og beint:

Vandinn heitir Bjarni Vafningur Benediktsson!

Aumingja Sjálfstæðisflokkurinn að hafa kosið formann sem enginn heiðarlegur og sjálfstæður maður getur kosið, nema afneita sjálfum grunngildum sínum.  Það er þversögnin Halldór minn, og þú veist það.  Hefur margoft skrifað pistla þar sem þú ert svo nærri því að segja (og það kemur að því): 

Hér með er ég genginn úr Sjálfstæðisflokknum.

Flokkurinn yfirgaf öll sín grunngildi og mig.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.6.2018 kl. 23:22

7 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hver er Símon Pétur, frá Hakoti?

Halldór Egill Guðnason, 14.6.2018 kl. 04:33

8 identicon

Ágæti Halldór Egill

Það eina sem skiptir máli eru orðin,

ekki hver segir þau.

Mestu skiptir að segja sannleikann.

Hingað til hefur Halldór ekki mótmælt honum.

En, ef Halldór biður mig um að hverfa,

þá mun ég ekki mæla hér lengur sannleikann

heldur láta mig héðan hverfa.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.6.2018 kl. 11:31

9 identicon

Aumingja Sjálfstæðisflokkurinn!

sem tapað hefur nær 1% fylgi á ári síðustu 25 árin,

eða allt frá því að Davíð Oddsson undirritaði EES samninginn,

upphaf hömlulausrar ný-frjálshyggju og pilsfaldakapítalisma

hér á landi, upphaf þjófræðis þeirra sem ríkishirðina skipa, samsekir og samtryggðir og kalla það, spottandi, lýðræði.

Aumingja Sjálfstæðisflokkurinn!

45% í 40% í 35% í 30% í 25% og brátt hrynjandi í 20% fylgi,

Aumingja Sjálfstæðisflokkurinn , sem gróf sér sína eigin gröf og enginn sjálfstæður og heiðarlegur maður vill lengur kannast við, skiljanlega, því allir fyrirlíta innst inni stórþjófa sem sölsa undir sig skattfé almennings og skammta sér launahækkanir langt umfram aðra, ekki af eigin dugnaði, heldur veiklyndi, þýfsku og vesældómi.  Menn á besta aldri, á ríkisframfæri og skammta sér sjálfir. Í kompaníi við Icesave Þistilfirðinginn sem Aumingja Sjálfstæðisflokkurinn gerði að forseta sínum og með dýralæknirinn sem hækju. 

Hvílík sjón og harmræn:

Aumingja Sjálfstæðisflokkurinn! 

Þeir sjá sem vilja

aðrir geta rýnt í fallandi fylgið

og enn aðrir geta afneitað sannleikanum, en

kært kvaddur að sinni Halldór minn.

Þinn vinur í anda

Símon Pétur, frá Hákoti.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.6.2018 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband