Leita í fréttum mbl.is

Spellvirki á umferðinni

halda áfram undir stjórn nýja meirihlutans í Reykjavík. Á meðan þeysir Dagur til Rússlands til að horfa á fótbolta fyrir kjósendur sína og væntanlega á þeirra kostnað líka eins og í kosningabaráttunni fyrir Miklubrautarstokkinn.

Svona járnbúr eins og voru sett upp á Miklatúni í fyrra fyrir hundruð milljóna án þess að greiða fyrir umferð hafa þegar kostað örkuml. Nú á að bæta um betur og búið að hrúga upp svona búrum á afrein Miklubrautar á Reykjanesbraut.  Þau á að fylla af grjóti og slysagildrum og þar á greinilega að reyna að tefja fyrir bílaumferð sem mest má.

Kópavogur og Reykjavík hafa nú sameinast um að byggja brú yfir Fossvog sem er sérsniðin fyrir delluhugtak Dags og Hjálmars sem hljómar "gangandi og hjólandi umferð" Eitthvað sem er minna en tíundi hluti flutningaþarfar samfélagsins. Þessi brú á auðvitað að vera fyrir bílaumferð auk gangandi og hjólandi ef vill. Það veitir líka ekki af að fá tengingu yfir á Álftanes frá Kársnesi til að greiða fyrir almennri umferð um höfuðborgarsvæðið.

Að þetta bulluhugtak Dags og Hjálmars um að "gangandi og hjólandi " sé einhver bitastæður þáttur umferðar er búið að skemma nógu mikið út frá sér í skipulagi þó að ekki sé endalaust haldið áfram eins og með fyrirhugaðri smásálar-brúarframkvæmd í Fossvogi.

Spellvirkjum vinstri manna í umferðarmálum þarf að fara að ljúka og byggja mislæg gatnamót þar sem þörf krefur að hætti nútímans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Jú: ógæfulegur er sannarlega, krata hráka lýðurinn (Samfylkingin: og fylgihnettir hennar) Dagur B., Holótti- Hjálmar - Líf, undirlægja Steingríms J. og Svavars fjölskyldunnar o.fl., en, .......... yrði gatnakerfið eitthvað skaplegra, í lúkum Eyþórs Laxdal Arnalds Jónssonar, helzta liðléttings Engeyinga Mafíunnar, þó svo Ljósastaurum yrði fjölgað að mun, svo Eyþór næði að hitta betur á þá, í víðkunnum rannsóknum hans, á brotþoli þeirra, m.a. ?

Sama rassgatið - undir þessu packi flestu Halldór minn / og áttu þó Reykvíkingar fjölda annarra valkosta í Maí kosningunum, s.s. Íslenzku þjóðfylkinguna - Frelsisflokkinn - Höfuðborgarlistann:: að ógleymdu framboði Sveinbjargar Birnu, t.d.

Þessum ágætu nágrönnum okkar: ykkar í Kópavoginum, sem og okkar hér austan fjalls, er EKKI NOKKUR vorkunn á heimsku sinni 26.Maí s.l., hafandi 16 valkosti til að spila úr, en meirihluti Borgarbúa KJÓSA SAMT:: að hjakka í gömlu hjóförunum.

Bakkabræður hvað - Verkfræðingur góður ?

Allra versta þó: næðu Dags gerpin, að splundra enn frekar áframhaldandi tilveru Reykjavíkurflugvallar, til þess að geta þegið enn frekari MÚTUR, úr lúkum Valsmanna hyskisins, sem ætti að vera búið að reka úr Íþróttahreyfingunni, fyrir ALL LÖNGU, reyndar.

Þar - liggja hagsmunir ALLRA landsmanna undir / ekki bara Reykvíkinga, og glæfraglegrar meðferðar Ráðhúss liðsins, á flugvellinum.

Hvar: hefur Eyþór sýnt tilburði, til þess að afstýra frekari eyðileggingu Valsara illyrmanna, á Vatnsmýrar svæðinu þar syðra, Halldór ???

Með beztu kveðjum - engu að síður, af Suðurlandi /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.6.2018 kl. 15:35

2 identicon

Fyrst að þetta endalausa tal um að fara rukka fyrir umferð er í gangi í samgönguráðuneytinu er þá ekki kjörið að rukka gangandi og hjólandi fyrir afnot af þessari brú ef af henni verður, ég sem bílaeigandi og skattgreiðandi hef lítinn áhuga á að greiða fyrir þessi ferlegheit þar sem ég hef engin not fyrir þau?

Halldór (IP-tala skráð) 22.6.2018 kl. 16:01

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Tek  undir þetta nafni. Af hverju eiga bara bíleigendur að borga fyrir þennan örsmæðar gangandi og hjólandi minnihluta?

Halldór Jónsson, 22.6.2018 kl. 17:04

4 identicon

Sælir - á ný !

Halldór (kl. 16:01) !

Sammála þér: fokið yrði í flest skjól, tækist fíflinu frá Dalbæ (í Hrunamannahreppi):: Sigurði Inga Jóhannsyni, að koma á vegtollum // vitandi um ÓLÖGLEGU Bifreiðagjalda tökuna frá Janúarbyrjun 1991, sem Ríkissjóður skuldar landsmönnum ENNÞÁ, og er að rukka inn, af fullkominni ósvífni þrátt fyrir, að okkur var LOFAÐ á sínum tíma, að þau giltu aðeins út árið 1990: reyndar.

Í hvað - skyldu Olíu- og Benzíngjöldin svokölluðu, auk Kolefnisgjaldanna margvíslegu renna, þar sem EKKI fara þau í viðhald vegakerfisins, að minnsta kosti ?

Kannski: undir rassgötin á ráðherrunum og ráðherfunum, alltaf er gnægð fjármuna til staðar, undir það hyski, auk skrautfígúrunnar á Bessastöðum syðra, fyrir utan annan flottræfilshátt Reykjavíkur miðstýringarinnar af alls konar toga, öðrum !

Með ágætum kveðjum samt, sem áður, af Suðurlandi /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.6.2018 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3417957

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband