Leita í fréttum mbl.is

Tíu ára gamalt blogg

er þetta:

"Ég hef áður sett fram pí lögmál Halldórs. En það segir að allir hlutir á Íslandi eru yfirleitt pí sinnum dýrari en einhversstaðar gerist erlendis. Nema brennivín, það kostar tvöpí sinnum meira.

Okkur finnst þetta ágætt og við vinnum bara meira til þess að geta borgað þetta. Svo vælum við gamlingjarnir síknt og heilagt að þeir ungu vilji ekki láta okkur fá meiri peninga. Við látum eins og við eigum ekkert og höfum ekkert nema strípaðar bæturnar. Höfum þá drukkið og étið allar ævitekjurnar út fram að því að við vorum rekin heim af vinnumarkaðinum. Mikið er ég orðinn leiður á þessari þvælu allri.

 

Gamlingjarnir eiga hundruðir milljarða á bánkabókum. Sumir af þeim svikust um að borga í lífeyrissjóðina og hirtu bæði 4 og 6 prósentin og eyddu þeim. Þeir fá ekkert úr lífeyrisisjóðum í dag auðvitað fyrr en að Geir ætlar að senda þeim tuttuguogfimmþúsundkall . Að vísu fyrir skatta og skerðingar sem skilja í beztu tilvikum eftir sig mínus hjá viðtakendum.

Auðvitað hafa sumir, sjúklingar, rónar  og dópistar á öllum aldri   ekkert fyrir sig að leggja.  Velferðarfélagið verður auðvitað að að reyna að hjálpa þeim. En ríkisstýrð velferð færir þeim virkilega þurfandi yfirleitt minna heldur en þeir myndu frá ef velferðarmálin væru einkarekin svo skítt sem það nú er.   Af hverju fyrirskipum við ekki öðrum þjóðum að taka upp okkar velferðarþjóðfélag. Ég er ekkert viss um að sá skilnigur sé útbreiddur meðal Kínverja til dæmis eða fátækra þjóða,  að þeim beri að sjá skilyrðislaust um sína minnstu bræður.

 

Ég var að að hlusta á frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins núna í morgun sem er glæsilegur hópur ungs og miðaldra fólks. Á fundinum töluðu menn um að við gætum auðvitað ekki gert allt fyrir alla alltaf. Sjálfstæðisflokkurinn gæfi ekki út óábyrga loforðalista sem ekki yrði svo staðið við. Flokkurinn væri hinsvegar lélegur í því að auglýsa að margt sem hinir væru að lofa núna væri þegar búið að gera eða setja í gang.

Þanar bar líka útflöggun íslenzka kaupskipaflotans á góma. En ekkert kaupskip siglir nú undir íslenzkum fána.. Frambjóðandi sagði að þingið  væri búið að breyta skattumhverfinu svo  að þessvegna þyrftu þau ekki að fara.  Skaðinn væri hinsvegar skeður, fyrirtækin væru farin. Og við skyldum átta okkur á því, að það væri ekkert sjálfsagt að Actavis, Marel, Kaupthing osfrv. borguðu sína skatta hér á landi, fyrirtæki sem hefðu meiripart tekna sinna erlendis. Reyni einhver að skýra þetta fyrir vinstrigræna liðinu og evruspekingunum.

 

Þetta tal um skatta  segir ekki alla söguna. Gamall skipstjóri lýsti því þarna hvernig að hann tók við nýju og  tæknivæddu skipi 1966. Verkalýðsfélögin kúguðu 17 manna áhöfn um borð. Rekstur skipsins sligaðist smám saman og félögin daufheyrðust við öllum tilmælum um fækkun á mannskap. Eigandinn gafst upp og seldi skipið. Þá vildu verkalýðsforyngjarnir semja en það var um seint. Þetta skip siglir ennþá um heimsins höf með  7 manna áhöfn.

 

Það er ekki bara skattaumhverfið á Íslandi sem skiptir máli. Við getum verðlagt okkur sjálf útaf markanum. Hvernig ætla til dæmis kennar næst að kúga af okkur kjarabætur umfram þanþol efnahagslífsins  nema stjórnvöld eigi gengisfellingarleiðina á krónunni uppí erminni ? Hvað ætla þessir Evruspekingar eins og Jón Baldvin að gera þegar þeir standa frammi fyrir leiðréttingu kjara umönnunarstéttanna sem eru þegar með alþjóðlegt kaup ?  

 

Ég hef heyrt að á kaupskipi fái hver maður þau laun sem gilda í heimalandi hans. Kínverskur stýrimaður fá kínversk laun osfrv. Þessvegna séu  engir íslenzkir menn lengur um borð í dalli eins og   Wilson Mugabe. Bísness er bara bísness hvort sem eigandinn er íslenzkur ekða ekki. íslenzkum verkalýðsrekendum. Hvað heldur þetta kerfi lengi ?

 

Koma ekki útlendir verkfræðingar hingað og teikna fyrir minna en ég ? Koma ekki ekki útlend byggingafélög og fara að lækka fermetrann í íbúðum til dæmis ?  Pí lögmálið er raunhæf viðmiðun um marga hluti.

 

Miðað við bandarísk verðlag á öllum hlutum og pílögmálið þá er ýmsilegt hægt að gera hér á landi. Það er ekki víst að þeir í Alþjóðahúsi og jafnvel niður á Alþingi átti sig á því, að það verður hægt að fá hæft fólk til að gera hlutina fyrir minna. Skyldi fögnuðurinn yfir innflytjendaflaumnum ekki dvína einhverntímann hjá einhverjum þegar allt kemur til alls . En þá verður bara búið að selja skipið eins og skipstjórinn lýsti.

 Mér datt í hug í framhaldinu hvað óheft aðstreymi útlendinga inná þennan íslenzka vinnumarkað muni leiða til. Hver segir að þeir sætti sig ekki við að fá minna kaup heldur en Íslendingar ? Af hverju verðum við að borga þeim eftir forskrift frá íslenzkum einokunarfélögum, sem við köllum stéttarfélög eða samtök vinnveitenda ? Á samkeppnin og frjáls markaður bara að ríkja á afmörkuðum sviðum ?"

Hefur eitthvað breyst síðan í apríl 2007 þegar þetta tíu ára gamla blogg var skrifað?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór. Þetta var vel skrifað og vel í gildi núna en hér er allt látið dánka þar til aðgerðir virka ekki lengur. Menn bara ná sínum pening út úr fyrirtækjum og leggja á bankabók.

Valdimar Samúelsson, 9.7.2018 kl. 19:19

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir Valdimar, þetta var svona til gamans gert-og þó

Halldór Jónsson, 9.7.2018 kl. 19:23

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka sömuleiðis Halldór það er einmitt gaman að rifja upp svona gömul blogg og oft sér maður betur en þegar þau voru skrifuð að þau eru 110% rétt.

Valdimar Samúelsson, 9.7.2018 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband