Leita í fréttum mbl.is

Bindi ég von við eitthvað

í pólitík þá er það við þann fund sem nú fer fram í Helsinki.

Mannkynið allt á mikið undir því að þeir tveir alvörupólitíkusar sem þar sitja á fundi nái góðu sambandi.Það er nóg af allskyns minni spámönnum í heiminum sem tala mikið um minni hluti en þessir tveir geta rætt.

Við bindum vonir okkar við þessa tvo menn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Tja Halldór.

Þar sem Pútín hefur framleitt öll þau vandamál sem um verður rætt, nema Sýrland, því það vandamál framleiddu fyrirrennarar hans, þá verður hann að gefa eftir, en ekki Trump. En það mun Pútín ekki gera, nema kannski eitthvað smávegis í sambandi við eitthvað minniháttar mál. Pútín getur ekki gefið eftir, því þá þarf hann ganga út og hengja sig. Í hnakka hans andar öll Kreml og bíður eftir að hann misstigi sig, og ef hann gerir það, þá er honum sparkað öfugum út. Þjóð Pútíns þolir ekki undanslátt, því þetta sem hann hefur gert, var gert til að beiða yfir vangetu Pútíns við að umbylta rússneska hagkerfinu í velmegunarríki. Það hefur honum ekki tekist, með allar auðlindir landsins upp í háls. Hann er að drukkna í náttúruauðlindum eins og Sovétríkin.

Það sem kemur út úr þessu verður eitthvað til að fóðra pressuna á, og svo nánari kynni. Í mesta lagi smá greiði á báða bóga.

En auðvitað get ég haft rangt fyrir mér.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.7.2018 kl. 14:13

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hverjar ættu að vera 5 aðal spurningarnar sem að þessir kappar ættu að keppast við  að svara og ná sátt um?

Jón Þórhallsson, 16.7.2018 kl. 14:28

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

1. Að Bandaríkin hyggjast setja Þýskaland í bann og

2. Hvort að Rússland muni koma því til bjargar

3. Ef já, þá: Intermarium

4. Skilaðu Krím (munu ekki ræða það)

5. Komdu þér út úr Úkraínu (munu ekki ræða það)

Gunnar Rögnvaldsson, 16.7.2018 kl. 15:04

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Trump er andskotans sama um Ukrainu. Hún á að vera rússnesk hvort sem er. Núverandi valdamenn eru valdaræningjar. Krímskaginn er rússneskt svæði og verður það um aldir alda AMEN

Halldór Jónsson, 16.7.2018 kl. 15:12

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Hverjum er ekki sama u Ukraínu? Hefur Merkel eitthvað að segja um það eða Makron?

Halldór Jónsson, 16.7.2018 kl. 15:15

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað ætlar Merkel að rífa sig við His Gas-Masters Voice ?Pútín?

Halldór Jónsson, 16.7.2018 kl. 15:17

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Sjáið ef Trump getur fóðrað vináttu við Rússa og gefið þeim viðskiptasamning svipaðan og þeir munu gefa Bretum sem þeir svo gætu þá boðið Ukraníumönnum þá er lausnin fundin. Úkraínumenn vilja ekkert frekar en aðrar þjóðir með ESB að gera sem er hvort sem er í dauðateygjunum. Júnker málið á líka eftir að sína að þessir Brussels menn eru ekki í sínki við hinar þjóðir ESB hvað þá utan ESB.    

Valdimar Samúelsson, 16.7.2018 kl. 18:06

8 identicon

Hvernig var það mættu ekki allir þjóðaleiðtogar á HM nema frá Englandi og Íslandi?

Það er kominn tími til að Ísland reki sjálfstæða utanríkisstefnu og hlaupi ekki bara með hjörðinni einsog rollur

Grímur (IP-tala skráð) 16.7.2018 kl. 18:35

9 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Tek undir þetta Grímur og viss um að aðrir geri.

Valdimar Samúelsson, 16.7.2018 kl. 18:58

10 Smámynd: Haukur Árnason

Hvernig fanns ykkur frétt um fundinn enda hjá RUV ? Þeir líta greinilega á fundinn sem djók. 

Haukur Árnason, 16.7.2018 kl. 19:48

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Jæja Halldór, þá er fundi lokið

Ekkert kom út úr honum annað en vilji tveggja ríkja um að standa vörð um hagsmuni sína.

Flest sem talað var um hefur þegar farið fram:

1. Herstjórnir beggja landa hafa unnið saman að ýmsum málum svo árum skiptir og munu gera svo áfram.

2. Samvinna um heftun á útbreiðslu kjarnorkuvopna var undirstrikuð.

3. Ríkin eru sammála um að vera áfram ósammaála um Krím og Úkraínu.

4. Bandaríkin tilkynntu komu sína inn á gas- afhendingarsvæði Pútíns.

5. Viðskipta-höftum á Rússland verður ekki aflétt, nema kannski í álgeiranum.

6. Blaðrið um afskipti Rússa af kosningunum í Bandaríkjunum heldur áfram í besta Seð og Heyrt stíl og mun gera svo um aldir alda.

En hins vegar er vegurinn ef til vill ruddur fyrir áframhaldandi samskiptum ríkjanna. Þau þurfa ekki lengur að fara fram með aðstoð hvíslara, enda gengur það ekki upp ef nota á hið diplómatíska korps landanna eins og til er ætlast. 

Summa: lönd hafa hagsmuni, en ekki útópískan vinskap. Járn verður áfram í járn. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.7.2018 kl. 21:26

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Gunnar, allar ferðir byrja með einu skrefi áfram sagði Maó formaður.

Halldór Jónsson, 17.7.2018 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418140

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband