Leita í fréttum mbl.is

Lög á ljósmæður

eru líklega  eina leiðin út úr vandanum sem við blasir.

Ef skrifað er undir við Ljósmæður og gengið að þeirra þvingunum þá blasir við hvað kemur næst.Sömu hækkanir verða látnar ganga yfir alla kröfugerðarhópa í haust og óspart vitnað í kauphækkanir hjá forystustéttunum í hópi opinberra starfsmanna eins og þær feli í sér einhverja röksemdafærslu.

Taxtamálin á Íslandi eru komin í öngþveiti sem ekki verður séð að komist verði út úr. Það væri því biðleikur að taka frest í málið og freista þess hvort einhver leið sé að koma heildarböndum á þessi mál.

En bæði eru sjálfsagt ekki margir bjartsýnir  á að hægt verði að ræða málin af einhverri skynsemi við svo einbeittan harðlínuhóp sem ljósmæður eru og svo hitt að einhver pólitísk samstaða náist meðal þingmanna, þar sem líklega helmingur þeirra eru efnahagslegir vanvitar og  reiðubúnir að skrifa undir hvað sem er fyrir stundarvinsældir. Mótbárur og skynsemi eiga sér formælendur fáa og hafa lítinn pólitískan styrk meðal þjóðarinnar vegna rógsdælu fjölmiðlanna  sem gengur dag og nátt. 

RÚV og hinir "víðsýnu" fjölmiðlar  kynda undir ófriðinn með sínum fréttaflutningi. Nýir verkalýðsforingjar þrá að fá að setja verkföll á svið og láta taka eftir sér.

Útflutningsfyrirtæki  þrá upphátt  ekkert heitar en duglegt gengisfall. Allir segjast vera komnir að þolmörkum og ríflega það þó almenn velsæld hafi sjaldan verið sýnilegri en nú öðrum en Flokki Fólksins.

Kindakjötsframleiðslan virðist vera búin að vera vegna offramleiðslunnar og bændur að gefast upp. Fátt virðist borga sig lengur á þessu landi nema bréfaútgáfa og vaxtareikningur vegna samruna í atvinnulífinu.

Nýjar kosningar myndu ekki leysa eitt né neitt, þær munu aðeins auka á glundroðann eins og tískuþingmennirnir og allsherjarspekingarnir um allt þjóðfélagið   bera órækast vitni.

Er ekki bara lýðræðið á Íslandi að komast að fótum fram í þessu landi á fullveldisafmælinu þrátt fyrir skrautsýningar á Þingvöllum meðan þessi hrunadansinn dunar?

Getur ekki verið að tími allsherjar stjórnleysis og upplausnar í efnahagsmálum sé framundan á þessu landi?  Að dollarinn verði kominn í 200 krónur innan skamms ef þá ekki  Venezúeliskt ástand muni halda innreið sína hérlendis? Er ekki nægt framboð er af íslenskum stjórnmálamönnum sem passa inn í það hlutverk?

Er ekki einna líkast því að helmingur þjóðarinnar hatist við alla hófsemi eða skynsemi? Vilji þjóðin endilega fremja efnahagslegt sjálfsmorð er þá eitthvað sem getur aftrað því?

Lög á Ljósmæður væru tilraun til undirbúnings undir næstu hópa.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það væri heppilegt ef unnt væri að að sneiða hjá klúðri.  En því miður þá er fjármálaráðherrann sérfróður um ískalt klúður sem og launamál mál æðri stétta en undir þann flokk heyra ljósmæður ljóslega ekki. 

Forsætisráðherrann  veit ekkert hvað klúður er frekar en lærimeistari hennar svo ekki er við miklu að búast, öðru en að látið verði reka á reiðanum.

Hrólfur Þ Hraundal, 18.7.2018 kl. 13:26

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Líklegra en ekki Hrólfur minn

Halldór Jónsson, 18.7.2018 kl. 14:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband