Leita í fréttum mbl.is

Veggjöld sem fyrst!

Endurbætur á vegakerfinu þola enga bið eða endalaust japl og jaml og fuður eins og nú fer fram.

Það má vissulega má færa rök fyrir skattaíhaldi stjórnvalda og tregðu við að skila því sem þau taka á breytilegum forsendum og mörgum úreltum  og tregða þeirra í að gefa eftir eins og til dæmis tryggingagjaldið. En það þýðir ekki að neita gjaldahugmyndum vegna nauðsynlegra samgöngumannvirkja.

Tökum sem dæmi veginn yfir Hellisheiði. Við erum ekki að leggja nýjan veg þar heldur breikka og bæta þann sem fyrir er. Fyrir það eiga allir vegfarendur að borga. Lítið gjald sjálfvirkt fyrir hverja bunu eins og á Tollvegum í USA. Er það ekki sanngjarnt að notendur borgi meira en þeir sem heima sitja. Rútur og trukkar borgi meira en smábíll?  Gjaldið renni beint til endurbóta og viðhalds á veginum yfir Hellisheiði.

Sama fyrirkomulag sé á öðrum meginstofnæðum vegakerfisins. Aðskildar akreinar spara mörg mannslíf. Hvers virði er það ekki?

Af hverju er þetta verkleysi við að hrinda þessu sjálfsagða réttlætismáli í framkvæmd?

Og gangnagjald sé á öllum jarðgöngum, Vestfjarðagöngum, Héðinsfjarðargöngum osfrv. Engin ókeypis notkun vegfarenda á dýrum mannvirkjum.

Það er gamaldags fjárveitingaafturhald sem leiðir bara til óbreytts ástands að vera á móti veggjöldum. Leiðin liggur annaðhvort upp á við eða afturábak. Hvort vilja menn kyrrstöðu í vegamálum eða framfarir og að túristarnir og þeir sem nota borgi meira fyrir vegaslitið eða bara við öll með sköttunum okkar án tillits til notkunar?

Fríkeypis notkun er óásættanleg mismunun þegnanna sem verður að ljúka. 

Veggjöld sem fyrst!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er þér algerlega ósammála nafni, ég vil ekki sjá veggjöld á meðan við greiðum formúgu í skatta á eldsneyti, biðfreiðagjöld, háann vsk á verkstæðum og varahlutum. Við bifreiðareigendur erum að greiða nóg til að halda þessu vegakerfi uppi, ég vil að stjórnsýslan fari að eyða þessum aurum á réttum stað í staðin fyrir gæluverkefni. Eigum við þá kannski sömuleiðis að setja vegatolla á hjóla og göngubrautir? Og hvernig væri nú að fara rukka hjólreiðafólk aðeins meira fyrir það sem það fólk notar!! Förum beint í að krefjast þess að hjól noti nú kílómetramæla og borgi fyrir hjólaða kílómetra ásamt því að þurfa fara í skoðun á hverju ári og væntanlega að greiða hjólreiðagjöld. Festum flögur á gangandi og rukkum þá fyrir hvern meter genginn ásamt því að rukka aukalega mannverugjöld ofan á allt hitt.

Halldór (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 13:18

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Við borgum nóg í gjöld sem hverfa i annað.

 undecided

Erla Magna Alexandersdóttir, 20.8.2018 kl. 13:24

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það hlýtur að vera réttlátt að

þeir sem nota þeir borgi

frekar en þeir sem að sitja heima.

Jón Þórhallsson, 20.8.2018 kl. 13:28

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Nafni, þetta eru bara útúrsnúningar hjá þér og ekki svaraverðir þar sem engin rök fylgja heldur bara slagorð.

Halldór Jónsson, 20.8.2018 kl. 13:41

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það hlýtur að vera réttlátt að

þeir  bifreiðaeigendur sem nota þeir borgi

frekar en þeir sem að sitja heima.

=Þannig ætti að vera hægt að lækka hina almennu skatta.

Jón Þórhallsson, 20.8.2018 kl. 13:53

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Í þá átt myndi þetta stefna Jón

Halldór Jónsson, 20.8.2018 kl. 13:56

7 identicon

Hvers vegna var strandsiglingum hætt?

Væri ekki betra að endurvekjs þær?

Stórflutningar hæfa sjávarleiðum og höfnum

og þannig minnkar álagið á vegum landsins.

Af hverju var strandsiglingum hætt?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 14:24

8 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Nei takk, ekki fleiri gjöld.

Þeir ættu heldur að sjá sóma sinn, þeir sem halda utanum þetta, að nota þá peninga sem teknir eru af okkur í formi bensíngjalda, tolla og bifreiðagjalda í þetta. 

Ásgrímur Hartmannsson, 20.8.2018 kl. 14:29

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Strandsiglingar koma þessu ekkert við Símon.

Ásgrimur, þú ert með gamaldags fjárveitingaafturhald sem leiðir bara til óbreytts ástands framkvæmdaleysis. Leiðin liggur annaðhvort upp á við eða afturábak. Hvort viltu kyrrstöðu eða framfarir og túristarnir borgi meira fyrir vegaslitið ewða bara þú með sköttunum þínum?

Halldór Jónsson, 20.8.2018 kl. 14:56

10 identicon

Rökin eru góð og mætti útvíkka á fleiri framkvæmdir og starfsemi. Það er óþarfi að taka aðeins bíla til skattlagningar þegar nóg er af öðrum sem nær engan skatt greiða. Er það ekki sanngjarnt að notendur borgi meira en þeir sem ekki nota? Að sjúklingar, aldraðir og öryrkjar borgi meira en þeir sem ekki nýta sér þá þjónustu sem sjúklingar, aldraðir og öryrkjar nota? Gjaldið renni beint til endurbóta, reksturs og viðhalds á sjúkrahúsum, elliheimilum, heilsugæslum o.s.frv. öllum til hinnar mestu gleði.

Af hverju er þetta verkleysi við að hrinda þessu sjálfsagða réttlætismáli í framkvæmd?

Fríkeypis notkun er óásættanleg mismunun þegnanna sem verður að ljúka.

Gjöld á gamlingja sem fyrst!

Gústi (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 16:10

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Æ ertu enn á lífi 

Halldór Jónsson, 20.8.2018 kl. 16:33

12 identicon

Æ ertu eitthvað ósáttur við það að þeir borgi sem noti?

Gústi (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 16:38

13 Smámynd: Starbuck

Halldór  "framkvæmdaleysið" er einfaldlega stjórnvöldum að kenna - og hverjir eru búnir að stjórna langmest síðustu 25 árin - Sjálfstæðisflokkurinn.  Það er sama í gangi í vegamálunum og heilbrigðismálunum - allt látið drabbast niður til að réttlæta einkavæðingu - svo þeir sjálfir, frændur og vinir geti grætt meira. 

Starbuck, 20.8.2018 kl. 16:45

14 identicon

Er það virkilega skoðun síðuhafa að leggja eigi enn meiri gjöld

en nú þegar eru lögð á bifreiðaeigendur hér á landi?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 16:54

15 identicon

Skattar á bíla nálgast 80 milljarða en aðeins 25 millj. fara í málaflokkinn – Sjálfstæðisflokkurinn vill fleiri og hærri skatta á bílaeigendur

Samgönguráðherrann Sigurður Ingi Jóhannsson, (Framsókn), fær aðeins brot af skatttekjum sem varla hrökkva til viðhalds vega

 

Skattar á bíla nálgast 80 milljarða en aðeins 25 millj. fara í málaflokkinn – Sjálfstæðisflokkurinn vill fleiri og hærri skatta á bílaeigendur

400

Deilt

 

 

 

Bjarni Ben boðar aukna bílaskatta

Bjarni Ben boðar aukna bílaskatta

Fjármögnun stærri framkvæmda í vegakerfinu með gjaldtöku hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu.

Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur áhyggjur af sköttum og gjöldum sem að á bíleigendur eru lagðir og blöskrar að skattarnir eru að nálgast 80 milljarða en aðeins 25 fara í viðhald og framkvæmdir og enn stendur til að auka álögur. Bjarni Benediktsson hefur lýst því yfir opinberlega að auka þurfi skatta enn frekar.

Þrátt fyrir það, fær samgönguráðherrann Sigurður Ingi Jóhannsson, (Framsókn),  aðeins brot af skatttekjum sem varla hrökkva til viðhalds vega en fyrr í sumar var rætt um holufyllingar sem helstu vegamál.

 

 

,, Í vor bárust fregnir af því að innheimtu veggjalds í Hvalfjarðargöngum á vegum Spalar verði hætt í september. Upphaflega var áætlað að göngin yrðu greidd að fullu 20 ár frá opnun. Þann 11. júlí sl. voru 20 ár liðin frá því að Hvalfjarðargöngin voru opnuð fyrir bílaumferð.  Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa verið tvísaga undanfarið varðandi það hvort standa eigi við fyrirheitin um að göngin verði gjaldfrjáls eftir að Vegagerðin tekur yfir nú á haustmánuðum.

Fram kom í viðtali í RÚV við Bjarna Benediksson, fjármálaráðherra, á dögunum að halda verði umræðunni áfram um stærri framkvæmdir í vegakerfinu. Valið standi einfaldlega um að láta þær bíða eða taka upp gjaldtöku. Ráherra sagði brýnt að verja meiri fjármunum í vegi landsins og að ríkisstjórnin hafi lagt á það áherslu. Fé sé að skornum skammti og því þurfi að leita allra leiða.

Fjármálaráðherra sagði að fjárframlög ríkisins til vegamála væru að aukast en að bæta þurfi enn frekar í fjármögnunina. Hann sagði stöðuna það alvarlega að taka verði pólítíska afstöðu um það hvort flýta eigi tilteknum mikilvægum stórum samgöngubótum með sérstakri gjaldtöku eða vegatollum.

Skattar á bíleigendur á áttunda tug milljarða króna árlega

Stjórn FÍB er mjög gagnrýnin á hugmyndir um nýja bílaskatta í formi vegtolla. Því miður er það svo að allt of lítið hlutfall skatta af bílum rennur til vegamála. Þegar er verið er að innheimta á áttunda tug milljarða króna í ríkissjóð árlega í formi skatta á bíla og umferð.  Af þessum sköttum renna innan við 25 milljarðar króna til nýframkvæmda og viðhalds vega. Við þessar aðstæður er það einkennilegt að stjórnmálamenn sem stunda atkvæðaveiðar með lækkun skatta á vörunum boði nýja bílaskatta í formi vegtolla.

590 milljarðar króna

Árið 2016 greiddu vegfarendur 1.560 milljónir króna í vegtoll undir Hvalfjörð en þar af fóru 590 milljónir í arð til eigenda, tekjuskatt, virðisaukaskatt og rekstur vegna yfirstjórnar og skrifstofu. Þetta þýddi að af hverjum 1000 krónum sem bíleigandi greiddi fyrir staka ferð undir fjörð runnu tæplega 400 krónur í annað en fjármögnun mannvirkisins og viðhald ganganna. Það myndi muna um það að hafa þessar 590 milljónir króna aukalega til vegagerðar árlega.

Góðar samgöngur eru forsenda búsetu og öflugs athafnalífs hér á landi og nauðsynlegt að vegirnir séu góðir og öruggir. Skattar sem eiga að renna til vegamála gera það ekki. Erlendar rannsóknir sýna mikla þjóðhagslega arðsemi vegabóta.

Hækkun skatta

Hærri álögur á bíleigendur standa fyrir dyrum. Ekkert hefur komið frá fjármálaráðherra varðandi mögulegar mótvægisaðgerðir vegna breytinga á stöðlum um eyðslu og mengun ökutækja í september.  Þessar breytingar munu að óbreyttu hækka verulega gjöld af nýjum bílum og síðan áfram árleg bifreiðagjöld. Nokkur Evrópulönd hafa þegar tekið ákvörðun um aðgerðir til að tryggja það að endurbættur staðall auki ekki skatta af bílum. Í fjárlögum fyrir 2018 voru skattar ríkisins af eldsneyti hækkaðir og jafnframt boðað að álögur yrðu enn auknar á næsta ári m.a. með hækkun á svokölluðu kolefnisgjaldi. Skattaálögur íslenska ríkisins á eldsneyti eru með þeim hæstu í Evrópu.” Segir á vef FÍB.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 17:37

16 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Halldór, ef við eigum að fara að borga veggjald, þá eigum við að heimta í leiðinni að bensíngjaldið og bifreiðagjöldin verði aflögð á móti.  Annars erum við þrírukkuð fyrir það sama.

Alveg finnst mér nóg að borga 15.000 kall + fyrir mjólkina, og vera svo rukkaður um 170 á lítrann ef ég vil drekka hana.

Gjaldheimtan er þegar alltof mikil, og fer þegar í ekki neitt.

Ásgrímur Hartmannsson, 20.8.2018 kl. 18:11

17 identicon

Hverju svararðu Halldór minn?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 18:13

18 Smámynd: Halldór Jónsson

Fyrir mér er verið að ræða tvo kosti. Að vegakerfið sé eins og það er hálf ónýtt og áratugi taki að bæta það. Eða taka upp veggjöld á völdum stöðum og fá vegabætur strax. Hvort viljið þið?

Halldór Jónsson, 21.8.2018 kl. 03:25

19 identicon

Fyrir mér er verið að ræða tvo kosti. Að heilbrigðiskerfið sé eins og það er hálf ónýtt og áratugi taki að bæta það. Eða taka upp full gjöld á stórnotendur og fá kerfisbætur strax. Þeir borgi sem noti. Hvort vill Halldór?

Gústi (IP-tala skráð) 21.8.2018 kl. 08:42

20 identicon

Að nú þegar séu neysluskattar kerfiskratanna í hinum svokallaða Sjálfstæðisflokki svo háir og miklir að þeir ættu að duga fyrir góðri almennri heilbrigðisþjónustu, samgöngum og menntakerfi (einka, bland og ríkis).  Að allar hækkanir umfram fari einungis í kerfið sjálft og hirðina.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.8.2018 kl. 09:58

21 Smámynd: Halldór Jónsson

Skyldi  Gústi hafa verið að losna í þessu?

Halldór Jónsson, 21.8.2018 kl. 12:48

22 identicon

Nei, mér er bara sama hvað þú heldur að sé að ske í Svíþjóð og hvers vegna þú telur sannleikann vera að finna á Amerískum rasistasíðum og í Útvarpi Sögu. Það er þegar þú ferð að heimta að aðrir en þú séu skattlagðir sem ég sé ástæðu til að ýta lítillega við elliæru gamalmenninu.

Gústi (IP-tala skráð) 21.8.2018 kl. 13:53

23 Smámynd: Halldór Jónsson

Gústi er greinilega úti núna

Halldór Jónsson, 21.8.2018 kl. 14:35

24 identicon

Ísland í 1.sæti í heimi í okri á eldsneyti – Tryggingafélög okra á bíleigendum upp á hundruð prósenta og greiða háan arð

 

Ísland í 1.sæti í heimi í okri á eldsneyti – Tryggingafélög okra á bíleigendum upp á hundruð prósenta og greiða háan arð

2.6k

Deilt

 

 

 

Ísland í 1.sæti í heimi í okri á eldsneyti

Hægt að tryggja tvær til þrjár bifreiðar í nágrannalöndum á verði einnar á Íslandi

Íslendingar halda enn sem áður sínu 1.sæti í veröldinni þegar að kemur að okri á eldsneyti. Eins og neytendur hafa fundið glöggt hafa verið tíðar, miklar og örar hækkanir að undanförnu á eldsneyti. Á sama tíma eru Tryggingafélög einnig að okra á bíleigendum upp á hundruð prósenta m.v. nágrannalöndin og greiða út háan arð á sama tíma og tryggingar hafa verið að hækka langt umfram verðlag. Slíkt getur komið niður á kjarasamningum.

Hækkanirnar hafa jafnframt tryggt okkur áfram það sæti sem að íslendingar hafa haft þegar að kemur að hæsta eldsneytisverði í heimi, þ.e. 1.sætið sem hefur verið hefðbundið sæti fyrir íslendinga um áratuga skeið.

Hægt er að skoða töfluna yfir verð á eldsneyti um allan heim á vefnum www.globalpetrolprices.com

 

 

Fréttatíminn kynnti sér einnig verðmun á bíla tryggingum á Íslandi og á norðurlöndunum og þar er algengur munur svo mikill að í nágrannalöndunum er hægt að tryggja 2 til 3 bíla fyrir sömu fjárhæð og fyrir einn á Íslandi.

Það virðist vera þannig þegar að kemur að þessum málum að endalaust er hægt að láta bifreiðaeigendur á Íslandi greiða margfalt meira þegar að kemur að kostnaði varðandi bifreiðar en þekkist annarsstaðar í veröldinni.

Bensín- og tryggingasalar eru mjög samstíga á Íslandi þegar að kemur að okri gagnvart bíleigendum þegar að verð eru borin saman og líta verður til þess í þeim kjaraviðræðum sem að nú standa yfir, þar sem að verðhækkanir hafa ekki verið í neinum takti við launavísitölu. En mikil ólga er í samfélaginu vegna kjaramála og búast má við verkföllum og átökum á vinnumarkaði eins og boðað hefur verið.

Þetta er okur Halldór!  Okur á ekkert skylt við heiðarlega samkeppni.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.8.2018 kl. 16:36

25 identicon

Hvort viljið þið?  Veggjöld eða ekki ? Við þjóðin fáum ekki að tjá vilja okkar.  Svona spurning á því ekki við á Íslandi, þar sem ráðstjórn ríkir  Háa skatta eða ekki. Við erum ekki spurð aðeins skipað af ráðstjórninni. 

Frábærar umræður um veggjöld sem þjóðin vill ekki sjá frekar en B.B. skattmann.

Bestu þakkir. 

Eðvarð L. Árnason (IP-tala skráð) 21.8.2018 kl. 21:04

26 identicon

Það getur ekki verið eðlilegt að rukka fyrir notkun á vegunum og nota síðan það fé sem þannig innheimtist í eitthvað allt annað....og ætla svo að rukka veggjöld af því að það vantar fé í vegina.  Fé sem búið er að rukka og innheimta en eyða í allt annað.

Skúli Sigurðss (IP-tala skráð) 22.8.2018 kl. 11:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418162

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband