Leita í fréttum mbl.is

Framtíð nýkommúnistans

Gunnars Smára Egilssonar, nýkomins úr fallíttþjónustu stærsta glæfrakapítalista Íslandssögunnar Jón Ásgeirs, er þessi:

"Okei, er fólk að tala sig inn á einhvern veginn svona söguþráð? Fyrst fer WOW á hausinn og framboði á flugsætum til Íslands fellur um 30%. Ferðamenn verða ekki 2,3 milljónir á ári heldur 1,6 milljónir.

Þegar það liggur fyrir flýja hin auðugu út með fé sitt og gengið fellur um 35% sem veldur kaupmáttarskerðingu upp á 15% sem kippir fótunum undan heimilisrekstri tug þúsunda hinna lægst launuðu.

Byggingaframkvæmdir hótela og túristaíbúða stöðvast, verktakafyrirtæki fara á hausinn og fasteignaverð fellur svo þær fjölskyldur sem hafa keypt húsnæði á síðustu tveimur árum skulda meira en sem nemur kaupverði. Engu hefur verið breytt í regluverkinu svo heimili þessa fólks verða boðin upp og fjölskyldur reknar út á götu. Fjöldi fólks í byggingaiðnaði og ferðaþjónustu missir vinnuna. Lítil og meðalstór fyrirtæki í ferðaþjónustu fara á hausinn, hin stærri yfirtaka reksturinn eða gleypa markaðshlutdeild. Hinir stóru stækka, hin smærri hverfa.

Vegna falls krónunnar munu hundruð eftirlaunafólks og öryrkja snúa heim þar sem lífeyririnn dugar ekki lengur fyrir framfærslu á Spáni og víðar. Hafnartorg og nærliggjandi svæði verður að einskonar draugaborg, verslunar- og veitingarými leigist ekki út. Húsnæðislausir setjast að í hálfköruðum hótelum.

Fyrirsjáanlegt að tap lífeyrissjóða vegna verðhruns á hluta- og skuldabréfum verði um 500 milljarðar. Ríkissjóður leggur bönkunum til aukið eigið fé til að mæta fyrirsjáanlegu tapi þeirra. Tekjur ríkissjóðs dragast saman um tugi milljarða vegna minni veltu, aukins atvinnuleysis og minni neyslu.

Þegar samningar verða lausir um áramót segjast stjórnvöld ekkert geta lagt til; ekkert í skattamálum, ekkert í húsnæðismálum og ekkert í vaxtamálum. Verkföll eru boðuð. Lög sett á verkföll.

Uppreisn innan Vg, Katrín og forystunni steypt en þingmennirnir vilja halda áfram stjórnarsamstarfinu. Það gengur í nokkrar vikur en svo brestur meirihlutinn að baki ríkisstjórnarinnar og boðað er til kosninga í mars. Minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar með stuðningi Miðflokks og Flokks fólksins. Kosningabaráttan fer fram undir skæruverkföllum og loforðum forystu Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks um að banna verkföll, afnema skylduaðild að verkalýðsfélögum og draga úr völdum hreyfingarinnar eftir kosningar.

Vopnuð lögregla stöðvar mótmæli, ríkisstjórnin segist ætla að kæfa aðra búsáhaldabyltingu í fæðingu. Kosið undir mótmælum og átökum. Lögbann á umfjöllun um fjármál Bjarna Benediktssonar enn í gildi, fram yfir kosningar."

Mikið lifandi er gott að vita til þess að svona innrétting skuli finnast í nýkommúnista meðal okkar þjóðar. Maður sem myndi hafa Maduró sem hagfræðilegan leiðtoga ef hann ætti þess kost. Úr því að Nyhedsavisen gekk ekki og kreditkortinu var lokað þá er um að gera að hatast við allt þjóðfélagið og vilja það feigt í núverandi mynd.

Vindhanar snúast auðveldlega.  Þvílíkur spámaður er ekki þessi nýkommúnisti og fyrrum kapítalisti í eigin föðurlandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Þessi framtíðarspá ykkar Gunnars Smára er nokkuð skuggaleg, en þó engin útópía, því hún er að stórum hluta byggð á þekktri atburðarás úr síðasta hruni.

Það er líklega rétt hjá ykkur báðum að án róttækra aðgerða, þá mun blaðran springa fyrr en varir, með hrikalegum hvelli.

Jónatan Karlsson, 26.8.2018 kl. 07:30

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég hlustaði á þá Egilsbræður og verkalýðsvitring frá Húsavík áðan á útvarpi Sögu.

Ég held að framtíð íslensku þjóðarinnar sé í stórhættu ef svona fólk rís til vaxandi áhrifa.

Verkföll í maí en ekki í janúar þegar þarf að borga Visað. Skæruverkföll þangað til.  Hækka kaupið í 500 þúsund hjá öllum vesalingum landsinsw. Kosningar í mars og nýja ríkistjórn.

Alræði öreiganna.

Halldór Jónsson, 26.8.2018 kl. 18:23

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Er það ekki alveg augljóst, að það voru stórfelldar kauphækkanir Kjararáðs, sem komu þessari óánægju bylgju af stað?

Það er nú frekar klént að kenna þeim Egilssonum, eða einhverjum verkalýðsforingjum um afleiðingarnar.

Jónatan Karlsson, 26.8.2018 kl. 22:05

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er laukrétt Jónatan, heimskulegri aðferð var ekki hægt að hafa. Og það sem er verra er að þeir skilja varla að það hafi verið neitt að  þessu hjá sér, eða hvað?.

Halldór Jónsson, 27.8.2018 kl. 06:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband