Leita í fréttum mbl.is

Fákænska

finnst mér aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar sem hún boðar til að draga úr hnattrænni hlýnun.

Fréttin í Mbl segir svo:

"Með nýrri aðgerðaáætl­un í lofts­lags­mál­um mark­ar rík­is­stjórn­in þá stefnu að ný­skrán­ing­ar bens­ín- og dísil­bíla verði al­mennt óheim­il­ar eft­ir árið 2030. Þessi aðgerð og fleiri eru hluti af átaki í orku­skipt­um í vega­sam­göng­um, sem hef­ur það mark­mið að notk­un jarðefna­eldsneyt­is legg­ist á end­an­um af.

Raun­hæft er talið að stefna að því að hætta notk­un jarðefna­eldsneyt­is al­farið á Íslandi fyr­ir miðja þessa öld, sam­kvæmt því sem fram kem­ur í aðgerðaáætl­un­inni.

Í aðgerðaáætl­un stjórn­valda seg­ir að sam­fara þessu banni við ný­skrán­ing­um bíla sem ein­ung­is ganga fyr­ir jarðefna­eldsneyti verði þó gætt sér­stak­lega að hugs­an­leg­um und­anþágum. Mögu­lega verði þannig gerðar und­anþágur, með vís­an til byggðasjón­ar­miða, á þeim svæðum þar sem erfitt væri að nota aðra bíla en þá sem ganga fyr­ir bens­íni og dísi­lol­íu.

Með því að stefna að þessu banni við sölu bíla sem ganga ein­ung­is fyr­ir bens­íni og dísi­lol­íu myndi Ísland feta í fót­spor ríkja á borð við Frakk­land  og Bret­land, en rík­is­stjórn­ir beggja til­kynntu í fyrra að stefnt yrði að hinu sama frá ár­inu 2040.

Skoða að úr­elda eldri bíla

Í aðgerðaáætl­un­inni seg­ir einnig að gerð verði út­tekt á mögu­leg­um ávinn­ingi þess að ráðast í tíma­bundið átak við „úr­eld­ingu“ bif­reiða sem ganga fyr­ir jarðefna­eldsneyti í því skyni að flýta fyr­ir orku­skipt­um í sam­göng­um.

„Við úr­eld­ing­una yrði horft til ald­urs og eyðslu bíl­anna. Metið verður hvort tíma­bundið átak sé lík­legt til að skila sama eða meiri ár­angri en ef sömu upp­hæð yrði varið til styrk­ing­ar innviða fyr­ir lofts­lagsvæna bíla. Horft verður til reynslu annarra sem sett hafa upp slík stuðnings­verk­efni,“ seg­ir í aðgerðaáætl­un stjórn­valda.

Þar kem­ur einnig fram að ríkið ætli að verða leiðandi í að sam­fé­lag­inu þegar kem­ur að hlut­falli vist­hæfra bíla og að þeim verði fjölgað „eins hratt og mögu­legt er“, með kröf­um um að ríkið kaupi ætíð raf­bíl eða annað vist­hæft öku­tæki er bíla­flot­inn er end­ur­nýjaður.

Minnka los­un frá vega­sam­göng­um um helm­ing

Stefnt er að því að los­un kolt­ví­sýr­ings frá vega­sam­göng­um á Íslandi verði árið 2030 um það bil helm­ingi minni en nú er, eða 500.000 tonn árið 2030 í stað nærri millj­ón tonna nú.

„Reiknað er með að þessu mark­miði verði náð einkum með stór­auknu hlut­falli raf­bíla og annarra vist­vænna öku­tækja í bíla­flot­an­um,“ seg­ir í aðgerðaáætl­un stjórn­valda, sem stefna að því að hlut­fall end­ur­nýj­an­legr­ar orku í vega­sam­göng­um verði orðið 40% árið 2030.

Markmiðið er að losun frá vegasamgöngum árið 2030 verði um ...
Mark­miðið er að los­un frá vega­sam­göng­um árið 2030 verði um helm­ingi minni en hún er nú. Graf/​Um­hverf­is­ráðuneytið

Það eru þó ekki bara orku­skipt­in sem ætlað er að minnka los­un gróður­húsaloft­teg­unda. Efl­ing al­menn­ings­sam­gangna, hjól­reiða og göngu sem sam­göngu­máta er einnig sögð mik­il­væg­ur þátt­ur í að draga úr los­un­inni.

„Huga þarf að sam­göngumiðuðu skipu­lagi sem ger­ir aðra ferðamáta en ein­stak­lings­bíla að raun­hæf­um val­kost­um. Sam­tím­is er mik­il­vægt að breyta ferðavenj­um, gera þær fjöl­breytt­ari með öfl­ug­um al­menn­ings­sam­göng­um, deili­hag­kerf­is­lausn­um og styrk­ingu innviða fyr­ir gang­andi og hjólandi,“ seg­ir í aðgerðaáætl­un stjórn­valda."

Hvað með flugsamgöngurnar? Ætlar ríkisstjórnin að leggja hömlur á flugið sem mengar margfalt kröftugar en landsamgöngurnar.? Á Ísland sem  mengar brot af því sem stórþjóðirnar gera að gera sér lífið svona erfitt? Á það að neita sér um vörubíla og jarðvinnuvélar 2030?

 Hverskyns utópíu fyrir Ísland  sér þetta fólk fyrir sér? 

Aðgerðaáætlun ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks  og Vinstri Grænna  er byggð á ósönnuðum vísindum sem margir vísindamenn færa gild rök gegn. Magn CO2 í andrúmsloftinu hefur ekki verið lægra í 600 milljón ár

Á ég að styðja þessa fákænu aðgerðaáætlun í loftslagsmálum  bara af því að ég er í Sjálfstæðisflokknum sem hefur ekki rætt þetta á landsfundi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Hefðum við verið í vandræðum með mengun í einhverri borg þá væri þetta réttlætanlegt bara vegna þess en ekki hnattrænni hlýnun. 

Aðstæður hér réttlæta þessar aðgerðir ekki. 

Valdimar Samúelsson, 10.9.2018 kl. 19:51

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er vel mögulegt að þessi áætlun sé ekki raunhæf. En hvaðan í ósköpunum færðu þá hugmynd að magn CO2 hafi ekki verið lægra í 600 milljón ár, fyrir nú utan hvaða máli slíkt skiptir þegar það liggur fyrir að það er nú um 50% hærra en það var síðustu þúsund árin og meginbreytingin hefur átt sér stað frá því um miðja síðustu öld?

Þorsteinn Siglaugsson, 10.9.2018 kl. 20:19

3 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir þennan pistil Halldór. Mér satt að segja brá í brún við að heyra það að Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn flokkur boða og banna og beygir kné og krýpur fyrir hinum nýju trúarbrögðum páfans Al Gore. Það var ömurlegt að hlusta á formann flokksins tala um það hvað við mundum græða mikið á þessu. Hvar og hvenær hefur nokkur grænt á svonefndu "grænu hagkerfi"?

Svo á að moka ofan í skurði sem á sínum tíma voru grafnir til að gera landið byggilegt. Hefur eitthvað breyst í því efni? Jú það á að endurheimta votlendi? Skortir eitthvað á að það sé nóg af því? Svo má engin keyra um á bensínbíl eftir 1930 nema hafa undanþágu. Hvenær var það liður í stefnu Sjálfstæðisflokksins að takmarka valfrelsi fólks?

En mér sýnist þetta í raun vera ýkt útfærsla á stefnu ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms sem byggði á grænni atvinnuuppbyggingu, en það kostaði ríkið marga milljarða og ekkert ávannst. Nú ætlar forusta Sjálfstæðisflokksins að taka þessa stefnu upp enda skammtímaminnið lítið hjá þessu fólki.

Fannst satt að segja dapurlegt að horfa upp á þessa hringavitleysu sem forusta Sjálfstæðisflokksins ætlar að leiða yfir þjóðina.

Jón Magnússon, 10.9.2018 kl. 21:54

4 Smámynd: Jón Magnússon

Átti að sjálfsögðu að vera grætt á grænu hagkerfi.

Jón Magnússon, 10.9.2018 kl. 22:04

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Síðast var svipað gert af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks (hluta af þingflokknum), Alþýðubandalags og Framsóknarflokks 1980-1983 þegar horfið var frá húsahitun með orku frá jarðefnaeldsneyti og lagt í mikinn kostnað við hitaveitur út um allt land. 

Ómar Ragnarsson, 10.9.2018 kl. 23:34

6 identicon

Æ, ég held að við ættum að slappa af og anda með nefinu. Það er engin vá fyrir dyrum þó að dregið verði úr olíueyðslu og bílvélar verði gerðar einfaldari og viðhaldsminni. Ég get reyndar skilið að olíuframleiðendur og aðrir sem missa spón úr aski sínum séu óhressir. Ég get hins vegar ómögulega skilið hvers vegna sumir menn, sem engra hagsmuna þurfa að gæta, skuli berjast af slíkri hörku gegn olíusparnaði og rafvæðingu bílaflotans.

Þróun rafbílsins er enn í fullum gangi. Lithium rafgeymarnir eru orðnir ódýrari og draga lengra. Og auðvitað verða þeir settir í endurvinnslu að lokinni notkun. Hitt er verra ef hráefni í þessa rafgeyma eru unnin í þrælavinnu, slíkt verður að koma í veg fyrir, sem og þrælavinnu við framleiðslu á tískufatnaði.

En þróunin heldur áfram. M.a. ríkir mikil bjartsýni um að "ofurþéttar" (superkapasitorar) muni, áður en langt um líður, koma í stað hefðubndinna rafgeyma. Þá munu ýmis vandamál, svo sem þyngd geymisins og tíminn við að hlaða, heyra sögunni til. 

Olía eru auðæfi sem ættu að endast mannkyninu alla tíð. Taka mætti undir með eðlisfræðingnum Harald Lesch, prófessor í München, sam sagði að jarðolía væri svo dýrmæt að hana ætti einungis að nota í lyfjaiðnað.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 10.9.2018 kl. 23:50

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ómar Ragnarsson.

Af hverju hélstu þá ekki bara kyrru fyrir í hitaveitu híbýli þíns og fórst á íbúðinni þinni í vinnuna. Þú hefðir líka getað flogið um Ísland á íbúðinni, fyrst að þetta sem þú kallar "þvinguð orkuskipti" hentar þér svona vel.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.9.2018 kl. 01:13

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Þorsteinn

     average-global-temperature                     ætlum við Íslendingar enn að rýra lífskjör okkar verst settu með þ´vi að elta mýrarljós Algore og hinna fjörtíuþúsund fífla í París með CO2 drauginn?

Af hverju fylgjum við ekki Donald Trump og skynseminni varðandi loftslagsmálin?

Á Íslandi þar sem allri mengun er sópað á haf út í næsta roki sem kemur örugglega innan viku verður allt vitlaust yfir einstakri svifryksmælingu í Kvosinni? Það er rokið til og kallað eftir banni á nagladekk í miðri snjókomunni í stað þess að hætta að nota ónýtt malbik í stað steyptra slitlaga. 

CO2 hefur ekki verið lægra í andrúmsloftinu í 600 milljón ár. CO2 er undirstaða lífsins. Við þurfum að auka það en ekki minnka til að auka gróður jarðar.

Að skattleggja okkar minnstu bræður til að elta þessa vitleysu Evrópusambandsins og EES samningsins er dæmi um fákænsku okkar stjórnmálamanna og skorts á sjálfstæðri þjóðarhugsun.

 

Af hverju?                                 

Halldór Jónsson, 11.9.2018 kl. 02:04

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og hvað skyldi svo Sjálfstæðisflokkurinn bannfæra og banna þegar það kólnar á ný á okkar slóðum. Hvað á þá að bjóða íslenskri þjóð upp á af þvinguðum sovéskum hernaði Sjálfstæðisflokksins á fólkið í landinu?

Ekki nóg með það að formaðurinn virðist vera svo dómgreindarskertur að hann skildi ekki þjóðina í Icesave, þó svo að hann skildi bankabox í skattaskjóli, þá skilur hann heldur ekkert í því hvað Sjálfstæðisflokkurinn á að standa fyrir núna, eins og hann átti að standa fyrir þá. Þessi maður er ekki hæfur sem formaður flokksins lengur. Hann er úti að aka. Úti að aka! Syndandi í rugli!

Maður bókstaflega froðufellir af bræði vegna þessa aumingjaskapar. Ég hef greinilega fjárfest hér í tapara.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.9.2018 kl. 02:21

10 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Er ekki frekar málið og spurning fyrir hvaða minnihlutahóp er ríkisstjórnin að tilkynna Íslendungum að þeir megi nú ekki aka mikið lengur á bílum sem eru enn framleiddir á heimsvísu og munu verða framleiddir næstu í hið minnsta 100 ár.

Er það kannski til að þjóna ESB já eða borgarbúa í Reykjavík.?

Er það kannski litli hópurinn sem gekk með Co2 spjöld niður laugaveginn fyrir helgi.

Það skildi þó ekki vera að hann hafi verið sviðsettur af Katrínu sjálfri svona til þess að undirbúa jarðvegin 

Valdimar Samúelsson, 11.9.2018 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband