Leita í fréttum mbl.is

Umhverfisráðherra sem enginn kaus

skrifar í Mogga sem handhafi stórasannleikans í loftslagsmálum.

Hann segir:

" Aðgerðaáætlun Ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum var nýverið kynnt af sjö ráðherrum.

Ríkisstjórnin hefur metnaðarfull áform í loftslagsmálum og hyggst verja um 6,8 milljörðum króna til þeirra á næstu fimm árum. Mikil og góð umræða hefur skapast í kjölfar kynningarinnar. Umræðan hefur að mestu verið jákvæð og lausnamiðuð, en auðvitað er deilt um leiðir og gagnrýnisraddir heyrast. Á þær þarf að hlusta, því loftslagsmál eru margbrotið og brýnt viðfangsefni.

Sumum finnst lítið gert varðandi stórar uppsprettur losunar, eins og frá alþjóðaflugi og framræstum mýrum. Ákvæði um hvort tveggja er þó að finna í aðgerðaáætluninni. Ísland mun þannig taka þátt í alþjóðlegu kerfi um losunarheimildir í flugi, CORSIA, sem sett verður upp á vegum Alþjóða flugmálastofnunarinnar og eftirlit og vöktun með framræslu votlendis verður bætt.

Einnig verður verulegu fjármagni veitt til átaks í endurheimt votlendis. Raunar er það, ásamt átaki í skógrækt og landgræðslu, önnur af tveimur megináherslum í áætluninni. Þessar áherslur eru lykilatriði til að ná markmiðum íslenskra stjórnvalda um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040. Losun frá ofangreindum uppsprettum fellur ekki beint undir svokallaðar tölulegar skuldbindingar Íslands en aðgerðaáætlunin tekur að sjálfsögðu á þeim.

Mikilvægt er að draga úr losun og efla kolefnisbindingu þar sem það er hægt, óháð regluverki og ábyrgðarskiptingu ríkja og alþjóðastofnana. Sjálfstæði í orkumálum Meirihluti þeirrar losunar sem fellur undir tölulegar skuldbindingar á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda samkvæmt Parísarsamkomulaginu er til kominn vegna bruna jarðefnaeldsneytis – um 60%.

Útfösun jarðefnaeldsneytis er þannig veigamesti þátturinn við að ná markmiðum samningsins fyrir 2030. Svo vel vill til að hér á landi búum við yfir loftslagvænni, innlendri orku sem getur komið í stað mengandi, innfluttra orkugjafa. Því er hin megináhersla ríkisstjórnarinnar í aðgerðaáætluninni sú að hraða umskiptum í hreina orku, einkum í samgöngum. Rafbílabylting borgar sig hreinlega fyrir þjóðarbúið, samkvæmt útreikningum hagfræðinga.

Aðrar hliðarafurðir hennar eru síðan heilnæmara andrúmsloft og meira öryggi og sjálfstæði í orkumálum, auk loftslagsávinningsins. Loftslagsmál snúast ekki bara um töluleg markmið og flóknar skuldbindingar, heldur um betra líf og tryggari framtíð.

Íslendingar sýndu á 20. öld framsýni og stórhug og skiptu úr kolakyndingu í að nýta varmalindir landsins sjálfs til upphitunar.

Sama tækifæri blasir nú við okkur á 21. öld í samgöngum. Eini munurinn er sá að nú er ákall frá heimsbyggðinni um að við snúum öll frá olíu og kolum til hreinni orku. Það er því kominn tími á aðra byltingu í notkun endurnýjanlegrar orku á Íslandi – nú í samgöngum."

Hvaðan kemur þessum manni sú viska að endurheimt votlendis skipti einhverju máli í útlosun CO2. Magn CO2 heldur ekki verið lægra í andrúmslofti jarðar í 600 milljón ár.Til hvers á að þvinga þjóðina í afturför í landbúnaði sem felst í framleiðslu mýra í stað ræktunarlands? Hvað er að þessu fólki sem við höfum lyft til áhrifa á stjórnmálasviðinu? Vill það setja landbúnaðinn aftur um aldir til engjaheyskapar? 

Enn grátlegra er að horfa á þessar fullyrðingar um kolefnishlutlaust Ísland í ljós árið 2040. Svona álíka trúverðugt og eiturlyfjalaust Ísland Framsóknarmanna árið 2000.Finnst þessu fólki ekkert athugavert við gengdarlausan útblástur milljarðasamfélög iðnaðarþjóðanna?

Til hvers er þetta ráðafólk okkar að leggja byrðar á smáþjóð sína sem engu máli skiptir í þeim samanburði? Skipa henni að valda hungursneyð í vanþróuðum ríkjum með því að láta framleiða ethanol úr maís og gera bensínið verra og dýrar hjá okkar smælingjum? Láta okkur hlaupa eftir fjörtíuþúsund fíflum olíufjárfestisins AlGore sem Trump Bandaríkjaforseti strikaði yfir hið snarasta.

Hvar fann þessi Guðmundur umhverfisráðherra sem enginn kaus allan þennan stórasannleika?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þetta eru stórfréttir, að co2 í andrúmsloftinu hafi ekki verið minna í 600 milljónir ára. Hvaðan kemur þessi byltingarkennda nýja "staðreynd." 

Ómar Ragnarsson, 2.10.2018 kl. 18:21

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein Halldór. Þegar menn vilja ekki sjá lausnirnar þá þýðir ekkert að reina að kristna þá. Reynum að nota heilan og stilla hitastigið á öllu svæðinu frá Nýfundnalandi alveg hringinn og norður niður 4°frost og sama á suður hveli. Ekkert metan mest allt metan hverfur. Hvað skeður.Ég spyr. Setjum svo hitastigið upp eins og það var. Metan kemur aftur.

Það ræður engin við náttúrulegar sveiflur og að kenna mönnum um uppgufun úr freðmýrum er hlægilegt og lýsir forheimsku sem bara lygarar geta logið upp á fólkið. Já logið.       

Valdimar Samúelsson, 2.10.2018 kl. 19:36

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Rétt valdimar.

Ómar ég hef birt mynd á þessu bloggi sem sýnir þetta svart á hvítu

Halldór Jónsson, 2.10.2018 kl. 21:42

4 identicon

Gvöndur skurðamokari situr í skjóli Bjarna fallanda,

Steingríms oflýsta og Sigurðar maddömu 6,6%. 

Er þetta ekki þín ríkisstjórn Halldór?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.10.2018 kl. 22:05

5 identicon

Og gáðu að því, að það er engin tilviljun að Gvöndur og Bjarni eru alltaf eins klæddir, í ljósbláum jakkafötum, þeim svipar saman í skatta- og gjaldagleðinni.  Og innleiðingu reglugerðanna frá ESB.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.10.2018 kl. 22:08

6 identicon

Í stuttu máli sagt:  Ræsum mýrarnar.  Mokum skurði mikæu hraðar en þeir moka ofan í.  Ræktum og stækkum túnin.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.10.2018 kl. 22:29

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Áttu möguleika að senda mér þessa mynd í tölvupósti eða í gegnum Wetransfer á   omarr@ruv.is?  Ég var að koma af enn einum fundinum um þessi mál og sjá enn eitt grafið sem sýnir hraðan vöxt co2 á síðustu áratugum og er því í algerlegu ósamræmi við fullyrðinguna um það að nú sé minna co2 í lofthjúpnum en hefur nokkurn tíma verið síðustu 600 milljón árin. 

Það eru ca 850 milljónir bíla í heiminum sem blása líkast til um kílói af koldíoxýði hver um sig út í andrúmsloftið á hverja 5 ekna kílómetra. 

Þessir 850 milljón bílar voru ekki til fyrir 100 árum og hvernig getur magnið af útblæstrinum hafa minnkað úr engu?

Ómar Ragnarsson, 2.10.2018 kl. 23:45

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Getur verið einhver sé að gleyma eldfjöllum? Bara spyr.

 Það er undarlegur andskoti að stjórnmálamenn á Íslandi telji loftslagi jarðar helst til björgunar að leggja aukinn skatt á almenning. Jafna sem ég fæ ekki með nokkru móti skilið. Gjöld, gjöld, gjöld, gjöld, gjöld og veröldin verður hrein á ný! 

 Þvílíkir hlandhausar.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 3.10.2018 kl. 01:51

9 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ómar varst þú á Andra Snæ fund. horfðu núna á artic ice hjá NASA vor og haust 2018. Frúin mín var svo fornumin af Andra sínum móðir hans og mín eru tvíburasystur. Auðvita trúði hún öllu. 

Ómar sjórinn er að kólna hér og hefti í nokkur ár. Heimskauta ísinn er að aukast síðustu árin. Hvar er feillin í þessu mælingum.?

Valdimar Samúelsson, 3.10.2018 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418154

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband