Leita í fréttum mbl.is

Er hann ruglaður?

þessi formaður minn í mínu verkalýðsfélagi Ragnar  Þór Ingólfsson?

Hann lætur þetta frá sér fara:

" Ef ekki verður látið af gegndarlausu vaxtaokri á íslenska alþýðu og endalausum hótunum um að hækka vexti og verðlag eða fækka störfum, verði kröfum verkalýðshreyfingarinnar mætt um mannsæmandi lífskjör,

munum við svara með aðgerðum og hörku sem ekki hafa sést áður á íslenskum vinnumarkaði.

Ég verð að segja fyrir mig persónulega að ég er gjörsamlega búinn að fá upp í kok af endalausum hótunum í garð verkalýðshreyfingarinnar og hér fari allt á hliðina ef við gerum kröfu um að geta lifað með mannlegri reisn af dagvinnulaunum.

Ég vil spyrja og vinsamlega svarið, er ekki komið nóg af þessum gegndarlausa áróðri og hótunum? Ætlum við virkilega að láta í minni pokann fyrir hagstjórn aukinnar misskiptingar lífsgæða og auðsöfnun fárra.

Ætlum við að gefa eftir landið okkar og þjóðarauð átakalaust með því að samþykkja að hlaupa hraðar og hraðar á hamstrahjóli auðvaldsins til þess eins að enda sem öreigar á lífeyri?"

Órökstuddar fullyrðingar og slagorð. Vaxtaokur á peningum sem hann sjálfur varðveitir fyrir umbjóðendur sína. Hvað eru mannsæmandi lífskjör? Hvernig eru þau skilgreind fyrir aldraða og öryrkja, einstæðar mæður, atvinnuleysingja?

Hann er búinn að fá upp í kok. Hann ætlar hiklaust að setja styrjaldarástand á í þjóðfélaginu af því að hann er í fýlu? 

Hverskonar maður er þetta eiginlega? Er hann bara kexruglaður?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór jafnan - sem ogv aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Nei: Ragnar Þór Ingólfsson er ekki ruglaðri, fremur en ég og þú, Verkfræðingur snjalli.

Hann er einungis einn - FJÖLMARGRA, sem vilja stinga á þeim eitur- kýlum, sem fengið hafa að vaxa og dafna, í skjóli Engeyjar- Mafíunnar, sem:: með FLEST alla hluti hefur fengið að ráðskazt í samfélaginu, allar götur frá hinni hörmulegu Lýðveldisstofnun á Þingvöllum. í Júní 1944, fornvinur ágætur.

Viðurstyggð Engeyinganna: er sízt minni í okkar samtíma, sem undanfarna áratugi, fremur en Sturlunga hyskisins og Gissurar Þorvaldssonar og hans nóta:: lungann af 13. öld inni, forðum.

Og við sáum - hvernig fór, á árunum 1262/164, Halldór minn.

Öngþveiti: sjúklegrar uppivöðzlu Sjálfstæðisflokksins (lesizt Engeyinganna) og attaníossa hans / úr hinum ýmsu flokkum öðrum, sem og stjórnlaus ofur- græðgi á kostnað almanna hagsmuna, mun steypa þessu landi í enn dýpri forir, en þeirri sem varð, á 13. öldinni, að öllu óbreyttu !

Svo góðan samanburð - höfum við upp á að hlaupa frá Síð- Miðöldunum, Halldór minn !!!

Með hinum beztu kveðjum: engu að síður, af Suðurlandi / 

     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.10.2018 kl. 14:24

2 identicon

Sem ein af mörgum sem kusum ekki Ragnar Þór til forystu í VR finnst mér hann full herskár og finnur sér augljóslega allt til að steyta hnefann og upphefja sjálfan sig. 

Er láglaunakona innan VR og finn sárlega til stéttaskiptingar innan þess félags þar sem þeir launahærri hirða alla sjóði og varasjóður hvers og eins lækkar í prósentum ár frá ári, augljóslega mest hjá þeim lægst launuðu.

Held hann ætti fyrst og fremst að líta sér nær áður en blæs í herlúðrana. 

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 7.10.2018 kl. 20:40

3 identicon

Sigrún Guðmundsdóttir ef þú ert láglaunakona þá hefði maður haldið að þú værir frekar ánægð með baráttu formanns VR fyrir bættum kjörum þínum og þeirra sem lifa við sult og seyru í þessu krummaskuði sem við búum í, eða ertu kannski ein af þeim sem kjósa alltaf sjálfstæðisflokkinn sem í gegnum áratugina hafa stundað hryðjuverk og stöðugar árásir á veikt fólk lífeyrisþega og eldri borgara þessa lands? Láglaunastefna og brauðmolaskömmtun elítunnar með hryðjuverkaleiðtoga nn Bjarna Erdogan Ben er liðin undir lok auk sveltistefnunnar, þessvegna verður ekki komið í veg fyrir hörku og alvöru hins almenna láglaunamanns, það er löngu komin tími til þess að lemja ærlega á elítunni og arðræningjum landsins öðruvísi verður réttlætinu ekki fullnægt.

kermit (IP-tala skráð) 7.10.2018 kl. 21:40

4 identicon

Komið þið sæl - að nýju !

Sigrún !

Það er FULLKOMIN innistæða: fyrir bræði Ragnars Þórs, eftir það sem á undan er gengið, í þessu görótta samfélagi, þó hvergi örli á nokkurri sjálfs upphafningu af neinu tagi, í hans ranni.

Og þess þá heldur - sért þú á lágum launum, sem félagsmaður í Verzlunarmannfélagi Reykjavíkur:: því ríkari er ástæðan til,að þú gangir keik til liðs við Ragnar og hans fólk / ekki hvað sízt, í ljósi starfshátta ýmissa fyrirennara hans, eins og Ólafíu Rafnsdóttur nú síðast (2013), og þar áður Stefán Einar Stefánsson:: hvorutveggju luðrur, og prívat hagsmuna potarar bæði tvö, því miður.

Reyndar Sigrún: má þakka eiginlega fyrir, að ekki kynni að skapast algjört upplausnar ástand hér á landi, eins og suður í Frakklandi forðum (1789) t.d., þó ekki væri nema vegna Þingvalla scandalans 18. Júlí s.l., þó aðeins það eina dæmi um Miljóna og Milljarða sukkið í dæmafárri stjórnsýslunni hérna, væri til tekið.

Sömu kveðjur: sem seinustu /

Óskar Helgi Helgason

fyrrum félagsmaður Verzlunarmannafélags Árnesssýslu / og síðar hins samnefnda, suður í Reykjavík, þó austan fjalls búi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.10.2018 kl. 22:04

5 identicon

Æ góðu herramenn verið ekki með þessar hrútskýringar við mig sem henta ykkar beiskju. Ég veit alveg hvar ég stend og hvað ég fæ í laun - og hvað ég ætlast til að mitt verkalýðsfélag geri fyrir mig. 

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 7.10.2018 kl. 22:31

6 identicon

.... sem ærlegur og vel meinandi Eyrbekkingur, vildi ég einungis vekja þér þrótt og áræðni til, að ganga í raðir Ragnars Þórs, miðað við kringumstæður, allar.

Og - svona þér að segja Sigrún, kann ég lítt að meta eitt hinna nýjustu skrípa yrða 21. aldar íslenzkunnar, sem hið óþjála og villandi ambögu orð, sem  hrútskýringar má kalla.

Sértu beiskjulaus aukinheldur: í ljósi atburðarásar síðustu ára og áratuga, er kannski ekki að undra, að þú kjósir jafnvel, að ganga svipugöng Engeyjar ættar ömurleikans / og alls þess, sem honum fylgir, Sigrún mín.

Væri svo - mætti sannarlega kalla þig aumkvunarverða, þó svo ég voni reyndar, að mér skjöplizt þar um, að nokkru.

ÓHH 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.10.2018 kl. 22:59

7 Smámynd: Haukur Árnason

"Ég vil spyrja og vinsamlega svarið, er ekki komið nóg af þessum gegndarlausa áróðri og hótunum? Ætlum við virkilega að láta í minni pokann fyrir hagstjórn aukinnar misskiptingar lífsgæða og auðsöfnun fárra."

Þú, Halldór ert búinn að svara þessu. Ég get ekki séð annað en að þetta sé allt rétt sem Ragnar Þór segir.

Haukur Árnason, 8.10.2018 kl. 01:04

8 Smámynd: Halldór Jónsson

"Ætlum við virkilega að láta í minni pokann fyrir hagstjórn aukinnar misskiptingar lífsgæða og auðsöfnun fárra."

Svar þitt Haukur er að hagkerfið beri stórhækkun launa, örorkubóta og hverskyns annarrar hækkunar á tekjum allra. 

Það er ekki auðsöfnun fárra heldur allra.

Ef það kostar margra vikna verkfall að ná þessu fram þá hefur það heldur engar afleiðingar eða kostar fórnir þeirra sem færa þær fyrir Rag nar Þór?

Halldór Jónsson, 8.10.2018 kl. 06:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband