Leita í fréttum mbl.is

Lawrence Lessig

var á Silfri Egils sem bregst ekki í því að leiða fram vinstri sinna til að rakka niður vestræn gildi.

Herra Lessig brást ekki í því. Aukinheldur er langt síðan ég hef heyrt eins óþjóðhollt tal Bandaríkjamanns. Hann bókstaflega rakkaði niður lýðræðið í Bandaríkjunum, sakaði yfirvöld um að flytja kjördæmamörk í pólitískum tilgangi. Þegar maður hafði haldið að það væri gert til að jafna atkvæðavægið í lýðræðisríki þá heitir það hjá Lessig að það sé gert í þágu Repúblikana sem reyni allt til að eyðileggja fyrir meirihlutanum sem séu Demókratar eins og hann.

Hann skellti skuldinni á dræma þáttölu kjósenda á aldinum 18-35 ára sem hefði orðið til þess að George Bush og Íraksstríðið hefi átt sér stað og núna að Trump hefði komist að sem væri sýndist manni í hans augum álíka slys.

Að leggja þessa tvo forseta að jöfnu er mikil blinda hjá þessum manni. Hann strikar yfir það sem Trump hefur gert til að gera heiminn friðvænlegri og allt annað auðvitað svo staurblindur Demókrati sem þessi maður er og illyrmislegur gagnvart þjóð sinni að honum virðist fjandans sama um framtíðina meðan til eru Republikanar við völd.Hann gleymir því líka að Trump var Demókrati en þroskaðist frá því sem Mr.Lessig á hugsanlega eftir að gera.

Margt athyglisvert sagði hann samt um þróun menningarinnar í Bandaríkjunum sem á líka við hér á Íslandi eins og útbreiðsla Facebook og vald auglýsendanna og tölvuleikjanna yfir fólkinu og hnignun bóklestrarins. Hann var samt ekki alveg trúaður á gildi beina lýðræðisins sem Pétur á Sögu klifar á og Egill tekur greinilega undir með tali sínum um nauðsyn nýrrar stjórnarskrár. Lessig var ekki bjartsýnn að okkur væri að takast endurbótavinnan en við yrðum að halda fram að reyna þó hann væri ekki endilega sigurviss.

Ef RÚV er talið hlutdrægt í stjórnmálaskoðunum þá er Egill Helgason ekki að draga úr því áliti með sínum silfurpeningum. Viðtalið við Mr.Lawrence lessig skar sig ekki úr með hið venjulega Trump-hatur sem okkar vinstri elíta stendur fyrir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband