Leita í fréttum mbl.is

Rétt verð á bragga?

hefur ekki komið fram ennþá. En hneykslunaröldur hafa risið jafnháar Esjunni að manni finnst.

Þessi braggi sem Flugmálastjórn notaði á sínum tíma sem samkomusal fyrir smærri partí er orðinn mönnum gríðarlegt áhugamál. það er búið að gera hann bara fallegan með fögrum stráum utanhúss. Hvað er eiginlega að þessu öllu? Hvað á hann að kosta að réttu?

Er bragginn orðinn allt of dýr? Gamlar sögulegar stríðsminjar?  Hvað mætti hann kosta? Væri helmingur ásættanlegur og undir sársaukamörkum.

Eða skiptir talan kannski engu máli ef hægt er að kenna einhverjum ákveðnum um eftirlitsleysi. Nú þarf að endurskoða allan byggingarferilinn að manni skilst. 

Heldur einhver að það muni ekki kosta neitt? Ég giska á milljónatugi til viðbótar sem kannski væru betur komnir í að klára klósettið svo hægt sé að leigja húsið út? Ef bara ekki á að afhenda það til brottrekstrarfólksins í H.R. ókeypis?

Svo geta menn talað um Orkuveituhús Alfreðs Þorsteinssonar í framhaldi. Það þarf að skipta um útveggi þar. Hvað skyldi það nú kosta?  Og hvað skyldi nú eftirlitið og endurskoðun á eftirlitinu með því koma til með að kosta? 

Hver veit hvað er rétt verð á bragga og Orkuveituveggjum? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Bragginn í Nauthólsvík kostar Reykjavíkurborg ekki eina krónu þegar upp er staðið, þar sem Háskólinn í Reykjavík leigir braggann af borginni fyrir margar milljónir króna á ári hverju.

Sjálfstæðisflokkurinn lét reisa bragga í Tjörninni, ráðhúsið í Reykjavík, og flutti inn grjót í stórum stíl til að prýða umhverfi braggans. cool

Þar að auki lét Sjálfstæðisflokkurinn smíða heljarmikla hringekju ofan á hitaveitutanka í Öskuhlíðinni og kallaði Perlu.

Allt var þetta hins vegar í góðu lagi vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir þessum grjótinnflutningi í Tjörnina, braggabyggingunni þar og gríðarlegum taprekstri á Perlunni í áratugi. cool

Þorsteinn Briem, 14.10.2018 kl. 14:44

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Eyjan.dv.is 7.9.2018:

"Háskólinn í Reykjavík (HR) hyggst leigja braggann af Reykjavíkurborg og reka þar frumkvöðlasetur en HR átti einnig fulltrúa í byggingarnefnd braggans og voru hinar kostnaðarsömu breytingar unnar í fullu samráði við háskólann.

Í leigusamningnum er kveðið á um að grunnleiguverð braggans sé 450 þúsund krónur á mánuði en það taki mið af upphaflegum framkvæmdakostnaði sem var 158 milljónir króna.

Í samningnum er einnig ákvæði um að fari framkvæmdakostnaður fram úr áætlun greiði HR þriðjungshlut þess kostnaðar og reiknist leiguverðið með sama hætti og grunnleigan.

Þar sem framkvæmdakostnaður er þegar kominn 257 milljónir fram úr áætlun er þriðjungshluti HR um 86 milljónir, eða 244 þúsund á mánuði.

Samtals er því leigan í heildina 694 þúsund krónur á mánuði fyrir afnot af bragganum. Leigan er vísitölutryggð og gildir samningurinn til 10 ára.

Leigutekjur Reykjavíkurborgar af bragganum eru því 8,3 milljónir á ári en munu hækka í samræmi við við endanlegan framkvæmdakostnað."

Og eftir þessa tíu ára leigu mun Háskólinn í Reykjavík eða einhver annar leigja braggann í Nauthólsvíkinni. cool

Þorsteinn Briem, 14.10.2018 kl. 14:57

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Kosti bragginn hálfan milljarð í lánsfé hlýtur að vera hægt að reina út vaxtakostnaðinn af bragganum og athuga hvort leiguverðið nægir til að greiða hann.

Halldór Jónsson, 14.10.2018 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418139

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband