Leita í fréttum mbl.is

18.október

var dagur sem samferðamaður minn, Sveinn B. Valfells, sagði mér á ferðum okkar erlendis sem sumar báru upp á þennan dag, að hann reyni ávallt að muna hvar hann væri á þessum degi. Það væri vegna þess að þá hefði orrustan við Leipzig  verið útkljáð. "Volkerschlact" sem kostaði 200.000 manns lífið og endaði með ósigri Napóleons.

Jæja sagði hann í New York eitt sinn kl.17:00. Nú er orrustan búin og Napóleon flúinn. Hér sólin gengin í Vodkamerkið. Látum okkur fagna því. Og það gerðum við.

Hann var aldar þriðjungi aldar eldri en ég. Einhver,ef ekki algáfaðasti maður sem ég hef kynnst. Maður sem lagði sig eftir hverskyns lífsspeki, fólósófíu, eins og hann kallaði það og meinti þá líklega lífsleikni eins og það er kallað í dag.

Hann kunni ekki færri dæmisögur úr sínu lífi en góði dátinn Sveijk. Hann gerði sitt ýtrasta til að kenna mér skapstillingu  og yfirvegun. Sum tókst en annað ekki.

En samræðum okkar gleymi ég aldrei og margt sem hann sagði innprentaðist í minn of trega haus. Hann var síkátur félagi og uppátektarsamur.

Eitt sinn í New York sagði hann mér að sjá muninn á New York búum og Íslendingum. Til dæmis líta þeir ekki við þó að við stillum okkur upp hér á götuhorni í Rockefeller Center og syngjum " Hvað er svo glatt" Sjáðu ég skal sanna það fyrir þér. Við syngjum það hér. Og svo gekk sólin aftur í Vodkamerkið og við heldum áfram að tala um fílósófíur.

Hann sagði eitt sinn þegar mér fannst við í vanda staddir." O, blessaður ekki hafa áhyggjur. Þetta fer einhvern veginn."

Það hefur verið mér ómetanlegt veganesti að hafa kynnst þessum manni Sveini B. Valfells. Tryggur og traustur maður og  vinur vina sinna, maður skapstillingar og yfirvegunar. Kátur og lífsglaður maður sem þótti vænt um fólk og vildi kynnast sem flestum og vita um líf þeirra. Eiginlega það versta sem hann sagði um menn sem honum fannst ekki vera merkilegir: "Hann er nú eiginlega hálfgerður skarfur þessi."

Hann var jafnt heima að tala við mann um viðskipti með notuð drifsköft fyrir Steypustöðina sem lifði djúpt miðri innan um glæpamennina í Bronx sem sagði að hér dræpu þeir menn fyrir dollar og að tala við Frank Costello á árum áður á Waldorf Astoria en hann hafði verið i Bandaríkjunum oft síðan á stríðsárunum og þekkti þar margt.

Hann lagði mikið upp úr því að skyggnast inn í framtíðina og reyna að vera forspár. Hugsanlega eins og Snorri Goði.  Eina sögu sagði hann mér af Gyðingi sem hann þekkti í New York á árum áður, Isac Sternin.

Sá hugsaði 1941 þegar fyrirséð var að Bandaríkin myndi lenda í stríði Hvað myndi gerast spurði Sternin sjálfan sig. Jú, hergagnaiðnaðurinn fer á fullt. Menn verða að mæta í vinnuna. Og konurnar byrja líka að vinna.

Hvað þarf maður til að mæta í vinnuna? Vekjaraklukku. Og Isac keypti upp allar vekjaraklukkur sem hann gat höndum yfir komið. Stríðið kom og Isac varð milljóneri.

Það er þetta sem menn þurfa að tileinka sér sagði Sveinn. Að hugsa rökrétt en akki láta stjórnast af skapsmunum sem menn mega aldrei láta eftir sér. Ég hafði sjálfur ógurlegt skap sem strákur sagði hann. En mér tókst að temja það.

Ég gleymi aldrei þeim góðu stundum sem við áttum saman í blíðu og stríðu þó hann væri af léttasta skeiði þegar ég fór að vinna fyrir hann. Og það var óbætanlegt skarð fyrir skildi hjá mér þegar hann kvaddi skyndilega 1981. Ég minnst hans oft og spyr mig í vanda: Hvað hefði hann gert? Og stundum vitrast mér svar en stundum ekki.

Í dag er 18. október og orrustan við Leipzig er búin, Napóleon búinn að tapa öllu og sólin er gengin í Vodkamerkið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Skemmtileg og god saga.

Skal fyrir thvi.

Sigurður Kristján Hjaltested, 19.10.2018 kl. 06:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418163

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband