Leita í fréttum mbl.is

Styrjöld fólksins gegn fólkinu

er að hefjast.

Hinn nýi hershöfðingi fólksins í stríðinu við fólkið er Drífa Snæbjörnsdóttir. Hún segir við þetta tækifæri:

" „Veturinn leggst vel í mig. Þetta verður stuð og þetta verður barátta. Við þurfum á allri okkar samstöðu að halda. Við þurfum að hugsa í lausnum og vera svolítið skapandi til að þetta gangi eftir. Vonandi munum við á vormánuðum standa uppi með betri kjör og betra samfélag,“ sagði Drífa um þau verkefni sem fram undan eru en kjaraviðræður hefjast á næstunni."

Hver skyldi nú vinna orrustuna við krónuna sem framundan er.

Fyndið ef ekki sorglega gamaldags rétt eina ferðina enn. Er einhver þjóðarsátt í augsýn að afloknu ASÍ þingi?

Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu styrjaldarinnar þar sem fólkið tekst á við sama fólkið með óhjákvæmilegan langtíma ósigur allra sem líklegustu niðurstöðuna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ósköp er umræðan vansköpuð hjá nýja fólkinu á fararbroddinum.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 28.10.2018 kl. 19:00

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Er nepótíski plottarinn Ögmundur Jónasson kominn með þreföld ófarsældaráhrif á ýmsa meginþætti komandi atburða hér í vinnudeilna- og þjóðmálum?

Jón Valur Jensson, 29.10.2018 kl. 06:04

3 identicon

Sæll Halldór.

Reyndur maður í pólitík hlýtur að sjá
að einungis er verið að hrista apabúrið:
Styrjöld! Fjandinn fjarri mér og VG í stjórn!

Í besta falli að brúðurnar fái að slást aðeins 
til í spottunum síðan verður auðvitað sæst á þá 
uppskrift sem mjög sennilega liggur þegar fyrir.

Lifi byltingin!

 

Húsari. (IP-tala skráð) 29.10.2018 kl. 06:27

4 identicon

10% flatur skattur skilar sömu upphæð í ríkiskassann. Ef ríkið hættir að sjá fólki fyrir afþreyingu og eyða fjármunum út um allar trissur þá væri hægt að auka kaupmátt með skattalækkunum. Þá væri aftur hagstætt að vera duglegur. Húsnæðisvandamál væru úr sögunni ef lífeyrissjóðir skiluðu peningunum til fólkssins.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 29.10.2018 kl. 08:11

5 identicon

STYRJÖLD FÓLKSINS GEGN FÓLKINU ????

Hvaða fólk er að stríða gegn fólki? Gæti það verið að einhverjir púkar sem ætla að fara að hrekkja ofurlaunaforstjóra sem  af andakt eru að stjórna bensín og olíudælum og pylsusölu og fá feita bónusa.

Getur það verið að sömu púkarnir fari að ybbast upp á forstjóra tryggingafélaganna sem hafa kverkatak á viðskiptamönnum, sem eru knúnir til þess að borga þeim sjálftöku ofurlaun, og bónusa.

Það er mikill voði í vændum ef þessir púkar fara nú að  nöldra eitthvað utan í ráðstjórninni hennar kommaKötu, sem var svo ofur væn við lýðinn, að hún tók ómakið af púkunum og afmarkaði fyrir þá af góðmennsku 45% launahækkun yfir línuna væntanlega fyrir landslýð, og það gert  af miklum kærleik og var það einnig afturvirkt. 

Hver er í styrjöld við hvern ?

Eðvarð L. Árnason (IP-tala skráð) 29.10.2018 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband