Leita í fréttum mbl.is

Enn einn kolefnispostulinn

fimbulfambar í Fréttablaðinu. Ari Trausti segir:

"Okkur jarðarbúum gengur of hægt við að efla viðbrögð gegn hraðri hlýnun loftslags á heimsvísu. Þau snúast um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og samtímis að binda sem mest af kolefni.

Breyttur landbúnaður, minni flutningar, minni skógvinnsla í stórum stíl en meiri skógrækt eru meðal lykilverkefna. Enn eitt lykilverkefnið er sjálfbærari orkuframleiðsla en nú tíðkast og tæknilegri stóriðja sem minnkar losun frá verksmiðjum.

Rýrnun jökla og hafíss er verulegt áhyggjuefni. Við það minnkar endurvarp sólgeislunar og dökkt land og haf drekkur í sig æ meiri varma. Margt af þessu og skyldum efnum enduróma á ráðstefnum og fundum, t.d. skoðana- og fræðslutorginu sem opið er í Hörpu ár hvert: Arctic Circle. Þar kemur líka oft fram að rannsóknir eru orðnar nægar til þess að við getum aðhafst af skynsemi – að verkin eigi að tala án þess að rannsóknir minnki. Markmið íslenskra stjórnvalda eru metnaðarfull.

Að standa við skuldbindingar Parísarsamkomulagsins og gera auk þess Ísland kolefnishlutlaust fyrir árið 2040. Bæði eiga þau að hljóta þverpólitískt fulltingi þó svo menn greini á um leiðir. Þær finnum við með umræðum og virðingu fyrir staðreyndum. Fjármögnun aðgerða sem til þarf til þess að ná markmiðunum verður að ganga fyrir sumu af því sem við erum vön að vilja fjármagna. Neyslumynstur verður að breytast að ýmsu leyti. Norðurslóðir eru lykilsvæði í andófinu gegn loftslagsbreytingum og við hér á landi í miðri hringiðunni.

Á norðurslóðum verður að hægja á vinnslu jarðefnaeldsneytis og takmarka hana við 20% þekktra birgða í jörðu. Á heimsvísu verður að láta â…” þekktra birgða liggja kyrrar. Um leið er afar brýnt að Norður-Íshafið og aðliggjandi haf- og strandsvæði verði virt sem vopnlaust svæði með alþjóðlegum samningum – svæði þar sem öryggi, leit og björgun er tryggð en hernaðaruppbygging látin eiga sig.

Hafsvæði utan 200 mílna lögsögu verði undir alþjóðlegri stjórn og auðlindanýting þar sömuleiðis. Norðurskautsráðið verður undir íslenskri stjórn frá 2019-2021 og þá hægt að koma mörgu góðu til leiðar eins og um verður búið í verkefnaskrá sem unnið hefur verið að."

 

Ekki stendur á fullyrðingum þessa kolefnispostula sem eru gersamlega órökstuddar. Hver segir að rýrnun jökla og hafsíss séu óæskilegar.? Hefur hafíssinn ekki bara staðið í stað eða aukist? Eða hvrsvegna má þetta ekki sveiflast með útgeislun sólar?

Hvar var Klofajökull til forna? Hver sá um að hann stækkaði og hvarf sem slíkur?

CO2 hefur ekki verið minni í andrúmsloftinu í 600 milljón ár. Hvernig veit Ari Trausti hvað er rétt koltvísýringsinnihald í lofthjúpnum eða hvað sé rétt hitastig hans?

Hver gefur þessum Ara Trausta  heimild til að fyrirskipa minnkun hagvaxtar og að rýra lífskjör alls almennings með svona röklausu bulli?:

"Á norðurslóðum verður að hægja á vinnslu jarðefnaeldsneytis og takmarka hana við 20% þekktra birgða í jörðu.  Á heimsvísu verður að láta â…” þekktra birgða liggja kyrrar."

Það er ábyrgðarhluti gagnvart mannkyninu  að láta svona ósönnuðum fullyrðingum ofstækisfullra kolefnispostula ómótmælt.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Furðulegt er að sjá, að áfram sé haldið hjá þér að fullyrða að Co2 hafi ekki verið minna í andrúmsloftinu í 600 milljón ár. 

Til þess að "sanna" þetta hefur verið notað graf, sem er svo gróft, að vöxturinn á síðustu öld sést alls ekki, af því að hann hverfur inn í línuna í grafinu.

Breiddin á þessar línu er minnst 200 þúsund ár, eða þúsund sinnum meiri breidd en síðustu 200 ár.  

Það er lágmarkskrafa, að þegar sýnt er svona línurit, sýni það þær aldir sem um er að ræða. 

Eða hvert hefur allt það mikla og nýja magn af Co2 sem jarðarbúar hafa dælt út í loftið, farið?

Ómar Ragnarsson, 6.11.2018 kl. 12:56

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú ert að tala um graf sem er ekki til. Annars myndirðu bara leggja það fram .Mitt graf er hárrétt og sybni raunveruleikann og þar er enga anómalíu a finna.

Halldór Jónsson, 6.11.2018 kl. 19:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 3418159

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband