Leita í fréttum mbl.is

Geta aðstoðarmennirnir ekki bara séð um þetta?

Þegar maður horfir yfir þingsalinn á Alþingi þá spyr maður sjálfan sig stundum hversu háttað sé með andlegt atgervi ýmissa þingmanna? 

Hvort þeim sé vel treystandi til þess að vera þarna með atkvæðisrétt? Hvort þeir yfirleitt skilji það sem fram fer eða geti dregið ályktanir af atburðarásinni? 

Það virðist vera svo komið að hinir greindari meðal þingmanni efist um þetta. Því eru þeir sammála um nauðsyn þess að ráða 17 nýja aðstoðarmenn til að hafa vit fyrir þingmönnunum og leiðbeina, svo þeir ekki fari sér að voða, ýti á rétta takka eða rati yfirleitt rétta leið um þingstiguna, hafi þeir endur og sinnum eitthvað til málanna að leggja.

Þarna er sköpuð atvinna fyrir menntað fólk, jafnvel með gráður í stærðfræði eða öðrum vísindagreinum frá Háskólasamfélaginu. Aðstoðarfólk sem þjóðin getur treyst fyrir málum sínum. Kostnaður skiptir auðvitað engu máli þegar allir eru sammála um nauðsynina. Það mátti lesa glöggt úr andliti þingforsetans í sjónvarpinu að hann er búinn að reikna út þjóðhagkvæmnina fyrir þessar ráðningar og ekki reyndu fréttamenn að leita frekara álits. 

Það skiptir þá núna minna máli hvernig þingmennirnir eru sjálfir innréttaðir, sem ýmsir hafa vissulega haft áhyggjur af. Fólkið getur eftirleiðis sett traust sitt á aðstoðarmennina sem jafnvel geta bara séð um þetta sjálfir ef þörf krefur. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er allt á sokkaleistunum, þó í skínandi stígs blankskóm sé þetta þingmannastóð, en ekki batnar það þegar kratastóðið úr úrkynjuðum mela og dags þekkingarþorps háskólunum bætist við líka.  Þar hafa nútildags allir bara eina skoðun, skoðun pólitísks rétttrúnaðar.  Nei, Halldór, slembiúrtak úr símaskránni væri betra til að setja hér lög og hafa fjárveitingarvaldið ... og ráðherravaldið einnig ... og dómsvaldið einnig.  Ekki að ég sé svo frumlegur að hafa dottið þetta í hug, heldur er ég þar algjörlega sammála síkagó töffaranum aliber hagfræðingi sem sagði þetta þegar hann kom hingað til lands í annað sinnið, eftir hrunið í það sinnið.  Í fyrra sinnið taldi hann kranana og sagði að þetta myndi hrynja innan tveggja ára, sem það gerði.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.11.2018 kl. 20:42

2 identicon

Aliber hafði einnig rétt fyrir sér að landinu hefði átt að loka eftir hrunið og við prentað bara krónur eins og okkur sýndist og haft hér bara lokað hagkerfi og lifað öll eins og kóngar og drottningar. Vantar þig lán Halldór minn, ekkert mál við prentum bara það sem þú þarft.  Næsti gjöriði svo vel.

Umheimurinn?  Skítt með hann, leyfið herskipunum að koma, gordon is brown as pooh, alistair his mistress, já, bretarnir fyrirlitu eineygða skoska kratafíflið hans darling.  Þetta er að kunna að spila á styrkleika hins smáa.

Allt þetta vissi Aliber, hví skyldi það þá ekki gagnast okkur, sem hann ráðlagði, þar sem hér hrundi allt og landinu ætíð illa stjórnað af stóði sem almenningur fyrirlítur.  Gjörumst splunkunýir nýjungamenn, slembiúrtak úr símaskránni, það gæti ekki orðið verra en það er og heldur ekki verra en það var. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.11.2018 kl. 23:10

3 identicon

Það væri ráð að fá viðtal við hana Þórhildi danadrottningu þegar hún kemur í heimsókn á fullveldisdaginn 1 des. Með nægum Gammel dansk þá er hugsanlegt að hægt sé að fá hana til að endurnýta gamla hugmynd og flytja alla þingmenn Pírata og útvalda bossasveiflara í Samfylkingunni að flytja á Jótlandsheiðar.

Borgari (IP-tala skráð) 13.11.2018 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband