Leita í fréttum mbl.is

Assgoti eru allir orðnir andaktugir?

sem eru að hneykslast á þingmannaræflunum. Það lekur helgislepjan út úr röðunum af fólki.

Venjulegum dónum eins og mér eiginlega ofbýður þegar ég hugsa um eigin hegðun á stundum í löngu lífi. Það er eins gott að Bára eða Logi  hafi ekki komist að öllu um mann.

Samdónar mínir í fylkingu af þeim drullusokkum og kjaftöskum sem ég fylli höfum samt betur vit á að þegja og vera ekki að auglýsa okkar verstu stundir. Við höfum heldur ekki ráð á að hneykslast mikið í þessu tilefni þar sem einhver gæti kjaftað að við værum bara ekkert betri og því erum við frekar hógværir og látum aðra um að passa siðferðið á Þinginu.Er

Það er eiginlega magnað hvað allir eru orðnir assgoti heilagir og andaktugir eða hvað?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Sammála þér, þvílík hræsni. "bara aldrei heyrt annað eins".

Haukur Árnason, 10.12.2018 kl. 20:22

2 Smámynd: Ívar Ottósson

Á maður að trúa þér Halldór að þú og þínir hafi haft alveg svona mikinn ruddaskap um menn, konur og málefni...því á ég bágt með að trúa.

Hefur þú hlustað á alla upptökuna sem komin er fram?

Veistu það versta sem þeir sögðu?

Hefurðu hlustað á viðtalið við Lilju?

Gerir þú þér ljóst að þetta mál er orðið alþjóða blaðamál og landinu til mikillar skammar? 

Ég er nú aðeins yngi en þú og hef sjálfur látið margt flakka en hef nú ekki komist með tærnar sem þessir herramenn hafa hælana og engin af mínum vinahóp í mín eyru. Og þessir herramenn eru á svipuðum aldri og ég flestir.

Getur maður svo ekki gert aðeins hærri kröfur á Þingmenn Lýveldisins en til venjulegra barróna og dóna?...Maður þarf nú ekkert að vera heilagur en fyrr má maður rota en dauðrota. 

Svo er hér einnig um lögbrot að ræða, áhugaverð grein frá lögfræðingi um þetta sem frv. utanríkisráðherra sagði: https://mannlif.is/heimurinn/innlent/gerdist-gunnar-bragi-sekur-um-mututhaegni/

Svo ætla ég að ljúka þessu með smá upptalningu um siðareglur Alþingis, þessir 6 þingmenn eru berlega brotlegir við þær:

Meginreglur um hátterni.
5. gr.
Alþingismenn skulu sem þjóðkjörnir fulltrúar:
a. rækja störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika,
b. taka ákvarðanir í almannaþágu,
c. ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með framkomu sinni,
d. nýta þá aðstöðu sem þeim er veitt við störf sín með ábyrgum hætti,
e. ekki nýta opinbera stöðu sína til persónulegs ávinnings fyrir sig eða aðra,
f. greina frá öllum hagsmunum sem máli skipta og varða opinbert starf þeirra
og leggja sig fram um að leysa úr árekstrum sem upp kunna að koma með
almannahag að leiðarljósi,
g. efla og styðja grundvallarreglur þessar með því að sýna frumkvæði og fordæmi.

Hátternisskyldur. 7. gr. Þingmenn skulu í öllu hátterni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virðingu.“

Ívar Ottósson, 10.12.2018 kl. 22:57

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú kastar þá fyrsta steininum Ívar að boði meistarans

Halldór Jónsson, 11.12.2018 kl. 15:57

4 Smámynd: Ívar Ottósson

Sérð þú þetta þannig Halldór?

Ég hélt einmitt að það væru Klaustursmenn sem köstuðu fyrsta steininum og þá ekki fáum heldur var þetta fleiri tíma grjótkast á þá sem kannski ættu það minnst skilið.

Engin meistari kom nálægt hvað ég veit..... 

Ívar Ottósson, 11.12.2018 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418201

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband