Leita í fréttum mbl.is

Þingskandall

er meðferðin við fyrirspurn Þorsteins Sæmundssonar vegna hrunsmála fjölskyldnanna.

Þingglópar á borð við Björn Leví Gunnarsson Pírata sem drekkja þinginu með fábjánalegu fyrirspurnaflóði um lítilsverða hluti tefja fyrir afgreiðslu svona grundvallarspurninga.

"Ég hef verið kurt­eis hingað til en nú krefst ég þess að þess­ari van­v­irðingu við þing og þjóð verði hætt og að ég fái svar við þess­um rétt­mætu spurn­ing­um mín­um,“ sagði Þor­steinn Sæ­munds­son, þingmaður Miðflokks­ins, und­ir dag­skrárliðnum störf þings­ins.

Hann sagðist hafa að minnsta kosti fjór­um sinn­um komið í pontu og óskað eft­ir svari við fyr­ir­spurn sinni frá 26. fe­brú­ar um hverj­ir keyptu 3.600 íbúðir af Íbúðalána­sjóði og greiddu fyr­ir það 57 millj­arða króna. Hvaða ein­stak­ling­ar, hvaða fyr­ir­tæki og hverj­ir áttu fyr­ir­tæk­in.

Þor­steinn sagðist ekki hafa orðið þess var að fé­lags­málaráðherra hafi óskað eft­ir fresti til að svara fyr­ir­spurn­inni. Hann sagði ástandið vera þannig að ráðherra og hans fólk að sé greini­lega að „reyna að kreista út úr Per­sónu­vernd þókn­an­lega af­stöðu til þess­ar­ar fyr­ir­spurn­ar“. Bætti hann við að Per­sónu­vernd sé þegar búin að lýsa yfir hlut­leysi sínu og að það megi birta upp­lýs­ing­arn­ar.

Jón Þór Þorvaldsson.
Jón Þór Þor­valds­son. mbl.is/​Eggert

Fleiri þing­menn Miðflokks­ins stigu í pontu á eft­ir Þor­steini og tóku und­ir orð hans. „Á bak við þetta eru 3.600 íbúðir og 3.600 fjöl­skyld­ur sem misstu heim­ili sín,“ sagði Jón Þór Þor­valds­son og benti á að sam­kvæmt regl­um eigi svarið að ber­ast inn­an 15 daga. Birg­ir Þór­ar­ins­son bætti við: „Það er ekki hægt að álykta annað en hér sé verið að fela eitt­hvað.“

Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra, sagði rétt­ast að tek­in yrði afstaða vegna máls­ins í for­sæt­is­nefnd. Birg­ir Þór­ar­ins­son, þingmaður Miðflokks­ins, sagði þá að búið að væri að taka málið upp í nefnd­inni og þess vegna hafi verið leitað aðstoðar for­seta í mál­inu. „Þetta mál er ekki eins­dæmi þegar kem­ur að upp­lýs­inga­öfl­un.“

Ekki er að efa að hér á bak við leynist ljót saga sem þarf að upplýsa. Hyglun, Þöggun, Klíkuskapur, Subbuskapur.

Hér er þingskandall á ferð um ólíðandi afgreiðsluleysi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Góðan dag Halldór.

Ég heyri á þér að þú ert að verða langþreyttur á styðja Sjálfstæðisflokkinn og hina kerlinga flokkana á Alþingi og er ég þér algjörlega sammála.

Það má eflaust margt setja út á Miðflokkinn, en þar fara þó að því virðist karlar í krapi, en eins og ég hef sagt allt frá glæpsamlegu viðskiptabanninu gegn Rússum og hagsmunum okkar sjálfra, þá gæti ég þó aldrei stutt nokkurn þann flokk sem Gunnar Bragi Sveinsson stæði að.

Nú lítur út fyrir að utanríkisráðherranum fyrrverandi sé ekki við bjargandi og því mögulegt að setja x við Sigmund Davíð og félaga í næstu kosningum, sem verða líklega fyrr en varir.

Jónatan Karlsson, 14.12.2018 kl. 07:16

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Hvað ætli Sigurður Ingi meini með þessum orðum sínum.

Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra, sagði rétt­ast að tek­in yrði afstaða vegna máls­ins í for­sæt­is­nefnd.

Mín ályktun er sú að hér sé eitthvað að fela, eitthvað sem ekki má koma fyrir almenningssjónir. Eru menn á fulla að reyna að hylja subbuskapinn?? Á forseti ekki að þrýsta á að þingmaðurinn fá svar við spurningum sínum??? 

Er það að sannast að við stjórn landsins er fólk sem hefur engan áhuga á því sem kemur landsmönnum til góða???? Á að fela það hversu illa stjórnvöld komu fram við fjölda einstaklinga og heimila????? Getur verið að ríkið sé í skuld við 3600 heimili þeirra sem misstu sitt þegar ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms forseta Alþingis slógu upp skjaldborg um fjármagns"eigendur".??????

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.12.2018 kl. 11:27

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Sjálfstæðisflokkurinn hefur heilbrigða heimspekistefnu sem grunn. Forystumenn flytja hana af leið tímabundið.

Flokkurinn er sjálfur skoðanalega heilbrigður undir niðri og mun aftur upp rísa.

Það er engin bót af nýjum flokkum eins og Pírötum eða Miðflokknum, Flokki Fóilksins eða hvað þeir heita allir. Það þarf bara heilbrigði í stefnuna.

Halldór Jónsson, 14.12.2018 kl. 12:00

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það er lítið gagn í flokki Halldór sem þorir ekki að skipta forystunni út þegar hún sýnir sig óhæfa til að framfylgja stefnu flokksins og hundsar landsfundarsamþykktir hans. Þá er ekki einvörðungu forustan búin að missa fótanna heldur grasrót flokksins einnig.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.12.2018 kl. 12:17

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Hver á að gera það ef ekki þú sem flokksmaður Tibsen?

Halldór Jónsson, 14.12.2018 kl. 13:36

6 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég sagði mig úr flokknum þegar ég sá hvert stefndi, hef ekki kosið hann síðan, en farm að því inngróinn íhaldsmaður, sem ég tel mig enn vera, en Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn að krataflokki.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.12.2018 kl. 14:53

7 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Ég vil blanda mér aðeins í umræðuna. Ég er einnig sjálfstæðismaður en ég er búinn að sjá það undanfarin ár að flokkurinn þorir ekki að standa með alþýðu þessa lands og verja hagsmuni þess- því miður

Eggert Guðmundsson, 14.12.2018 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband