Leita í fréttum mbl.is

Á ég að trúa því?

að nú sé Björn Leví farinn að leiðbeina mér í pólitík?

Hann segir í Mogga að nú ætli ríkisstjórnin að leggja veggjöld á allt í kring um Reykjavík fyrir miklu meiri peninga en eigi að nota í uppbyggingu vegakerfisins. Sem sagt að hefja hefðbundinn stuld á vegafé strax eins og alltaf hefur verið gert?  Og því til undirbúnings sé samgönguáætlun frestað fram á næsta ár?

Ég sem var bláeygður og trúði Jóni Gunnarssyni að þetta væri einfalt. Menn fengju framkvæmdir strax ef þeir borguðu veggjöld sem rynnu beint til verkefnisins. Annars fengju þeir einfaldlega ekki framkvæmdina strax.

Nei, þetta verður ekki svona segir  Björn Leví. Hann  segir að þeir ætli að svíkja þetta og nota veggjöldin einfaldlega til að hækka skatta á almenningi.

Virðist ekki Furstinn hans Machiavellis ráða ríkjum á Alþingi og blekkja bláeygða heimskingja eins og mig þegar honum sýnist svo?

Verð ég ekki bara að hætta að trúa því að eitthvað heiðarlegt geti nokkurn tímann komið frá Alþingi? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór.

Getur nokkuð gott komið frá Nazaret
var sagt fyrir 2000 árum svo þú
ert í góðum félagsskap, óhætt um það(!)

Birni Leví er margt til lista lagt, -
og þessi greining hans á stöðunni
er skotheld með öllu.

Húsari. (IP-tala skráð) 20.12.2018 kl. 13:31

2 identicon

Hugsaðu málið á þennan hátt, hvað eru margir alþingismenn að ræða hugsanlegan niðurskurð í ríkisrekstrinum?

Já, rétt hjá þér, enginn.
Ástæðan er náttúrulega augljós, alþingismenn eru kosnir út á loforð, allt fyrir alla. Enginn kýs alþingismann sem er svo skelfilega innréttaður að vilja ekki dæla út ókeypis peningum.

Ef einhverjum alþingismanni myndi detta til hugar að leggja til samdrátt og uppsagnir hjá ríkinu, þá rísa allir ríkisstarfsmenn á fætur arfaillir og ásaka aumingja þingmanninn um tilræði við sjúka og aldraða. Með dyggum stuðningi ríkisstarfsmanna og vinstrimanna á Rúv og sósísalistablöðunum, þá er sá þingmaður búinn að vera. Það má ekki einu sinni velta því fyrir sér hvort nauðsynlegt sé að Vegagerðin sé með yfir 300 starfsmenn, þar sem tveir eru á skóflu, og restin á skrifstofum.

Og auðvitað er sá þingmaður réttdræpur sem minnist á, að ríkið greiðir tuttugu og tvö þúsund miljónir í lífeyrisskuldbindingar, þrettán þúsund miljónir í söfn, tónlistarhús, listamannalaun og annan óþarfa hjá Mentamálaráðuneytinu. Fjögur þúsund og eitthvað miljónir fara í rekstur á áróðursútvarpi sósíalista, þúsundir miljóna í umhverfisráðuneytið, sem var ekki til fyrir nokkrum árum, þúsundir miljóna fyrir flóttamenn frá Albaníu og Georgíu, auk tug þúsunda miljóna hér og hvar í ríkisrekstrinum, sem hafa ekkert með veik börn að gera.

Kerfið er sjálfala, og það eru ekki alþingismenn sem sitja sveittir yfir heimilisbókhaldi landsmanna. Nei, það eru ríkisstarfsmenn hjá fjármálaráðuneytinu, sem halda reglulega hittinga með öðrum ráðuneytum, hvernig best sé að skattpína alþjóð.

Það eina sem alþingismenn geta gert, er að segja úpps, þegar þeir sjá fjárlagafrumvarp hvers árs. Og í framhaldinu leita þeir logandi ljósi að nýjum sköttum til að borga fyrir útreikninga ríkisstarfsmanna á alþingismannaloforðum. Kolefnisgjöld koma eins og himnasending, en þegar loforðin verða sífellt svakalegri með hverjum kosningum, þá endar með því að meira að segja kolefnisgjöldin duga ekki til, og þá er bara að finna ný.

Ég sé núna að þetta er dálítið langt hjá mér, afsakið það.

Hilmar (IP-tala skráð) 20.12.2018 kl. 13:40

3 identicon

Þrátt fyrir langlokuna að ofan, þá verð ég að bæta í.

Í rekstri eigin bifreiðar, greiði ég ríkissjóði tæplega sex þúsund krónur á mánuði, og það áður en ég hreyfi bílinn.
Og á núgildandi verðlagi, þá greiði ég um tuttugu og fimm þúsund krónur á mánuði til ríkisins.

Með sköttum og tollum, þ.m.t. innflutningsgjöldum bifreiðar, greiði ég tæplega sjö fokking miljónir til ríkisins á 10 árum, og þá er annar rekstrarkostnaður eftir. 

Það er ekki laust við að maður sé hugsi yfir frönskum gulvestum, þó svo að ábyrgðarlaus verkalýðshreyfing sé að hugsa sér að stela hugmyndinni af franskri alþýðu, sem er búin að fá nóg af skattpíningu, sérstaklega á bifreiðar.

Hilmar (IP-tala skráð) 20.12.2018 kl. 13:51

4 identicon

Góð grein Hilmar. Það eru bara kommúnistar á alþingi og enginn veit af því. Risastórt ríkisvald og pínulitlir þjófélagsþegnar.

Sá sem hegðar sér eins og kommúnisti er kommúnisti.

Það skrítnasta af öllu er að fólk virðist ekki gera sér grein fyrir ástæðum lélegra lífskjara. Besta leiðin til að bæta lífskjör á Íslandi er að skera niður hjá hinu opinbera. Á meðan fólk áttar sig ekki á því þá breytist ekkert. Það verður að stöðva gengdarlausa eyðslu opinberra aðila. Það þarf að byrja á því að fækka þessu fólki sem er ofan í vösum landsmanna. Ein af fátækragildrum þjóðfélagsins er skattur upp á 15.5% sem er kallaður lífeyrissjóður. Er ekki annars samtryggingarsjóður sem hverfur við andlát skattur?

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 20.12.2018 kl. 19:33

5 identicon

Heyr, heyr Hilmar!

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.12.2018 kl. 02:58

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Og hvernig fóru 17 nýir aðstoðarmenn í ykkur? Og svo stuldur stjórnmálaflokkanna úr ríkissjóði ? Grímulaus sjálftaka á almannafé var það eina sem þeir voru allir sammála um í fjárlögunum. Án þessa fjár væru allir þessir litlu skítaflokkar um ekki neitt ekki til.Alvörufólk myndi þá sameinast um stjórnmálastarf á sinn eigin kostnað en rumpulíðurinn sem Bjarni Guðna kallaði svo  sem aðeins vill heimta allt af öðrum myndi gefast upp. Það þarf frekar að hækka þröskuldinn inn á þing úr 5 % en að lækka hann eins og góðafólkið vill til að losna við litlu óþarfa flokkana.

Halldór Jónsson, 22.12.2018 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband