Leita í fréttum mbl.is

Fegursta hús Reykjavíkur

stílhreint og látlaust er Bragginn í Nauthólsvík.

fegursta húsiðHann er minning um hvernig húsnæðisvandamál Reykvíkinga voru leyst árum saman. Fólk átti öruggt húsaskjól í vandræðum og enginn þurfti að liggja úti í  Laugardal. Bráðum hýsir hann öldurhús Háskólans í Reykjavík sem greiðir hann niður örugglega með hundraðþúsund kalli á mánuði. 

Nú eru engin húsnæðisvandamál lengur á höfuðborgarsvæðinu. Þó að íbúðir séu auglýstar til leigu koma engar fyrirspurnir.Skynsemin og Hótel Mamma leysa vandann. Engar lóðir þarf heldur þar sem enginn vill byggja. Nóg framboð er á íbúðarhúsnæði til sölu á undir milljón krónum á fermetrann. Hvað þarf meira?

Alveg er stórskemmtilegt að fylgjast með rifrildinu um það hvort einhver beri ábyrgð á því að opinberar framkvæmdir fari fram úr áætlun. Það er nefnilega lögmál til sem heitir pí-lögmál Halldórs. Það segir að endanlegur kostnaður opinberra framkvæmda verði ávallt pí-sinnum upphaflega áætlun stjórnmálamannsins. Sama hvort er Harpan, Gröndalshús, Bragginn eða Borgarlínan. 

Fór ekki Perlan fram úr áætlun hjá honum Davíð? Hvaða máli skiptir það núna? Hún er falleg. Og Bragginn er fallegur.Er  til eitthvað rétt verð á Bragga?

Ólafur Daníelsson stærðfræðingur var hrifinn þegar hann sá fyrstu herbraggana rísa og sá að þeir rúmuðu mikið miðað við efnið sem í þá fór. 

Hvað er fólkið í minnihlutanum rexa í honum Degi B?

Hann er með réttkjörinn meirihluta sem verður líklega endurkjörinn með einhverju ráðum í fyllingu tímans.

Njótum fegurstu húsanna í  Reykjavík sem geyma söguna.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Því  eru ekki reystir braggar- eða innflutt hús sem kosta litið til að hjálpa þeim sem eru ekki að sækjast eftir luxusíbúðum okrara aðeins þaki yfir höfuðið ?

 Þegar gosið var í Vestmanneyjum vöru pöntuð hús frá Kanada mynnir mig og sett upp á örskömmum tíma- það er hægt enn. Ef vilji ert til.

Erla Magna Alexandersdóttir, 23.12.2018 kl. 19:53

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég held að það vanti ekkert húsnæði nema ef einhver vill skaffa slíkt ókeypis þá vill einhver þiggja. Vísa til reynslu minnar af að reyna að leigja út íbúð sem enginn einu sinni spyr um.

Halldór Jónsson, 24.12.2018 kl. 08:08

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þannig að verðið fékk ekki tækifæri á að fæla frá

Halldór Jónsson, 24.12.2018 kl. 08:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418205

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband