Leita í fréttum mbl.is

Alþjóðlegur Evrubjálfi

Ole Anton Bieltved skrifar ákall til sósíalista í Fréttablaðið í dag um að gera kröfu um að taka upp Evru á Íslandi. Þá lækki vextirnir niður í 1.5%

Skuldar hann sjálfur svo mikið  á íslenskum vöxtum  að hann vill fá 1.5 % vexti á Evruskuldir í stað krónuskulda?

Fyrir hrun gátu allir fengið lán í hvað a mynt sem var á ca 2-5 %. Svo kom gengisfallið og allar skuldir tvöfölduðust en kaupið ekki.

Framhjá þessu öllu skautar Ole Lokbrá auðvitað. Því fyrst þarf Ísland auðvitað að ganga í ESB og svo að taka upp EVRU. Sem Íslendingar vilja ekki.  Annars gætum við trúlega auðveldar tekið upp Bandaríkjadal sem mynt ef hann endilega vill skipta út krónunni enda miklu alþjóðlegri mynt en Evran.

En hvað hefði gerst í hruninu ef við hefðum ekki haft krónuna til að fella? Hvar værum við þá miðað við Grikkland til dæmis?

Er hann að skora á Sólveigu Önnu að semja um kaup í erlendri  mynt? Er  það ekki svipað og verðtrygging? Og á hvaða gengi verður þá samið?  Á hvaða gengi ætlar hann að skipta eignum og skuldum almennings í landinu?

Af hverju ekki að leyfa öllum að taka lán í erlendri mynt eins og var hérlendis fyrir hrun? Nú er það bannað. Vill Ole það?

Eftir traustleika viðskiptamanna fá menn vexti í Þýskalandi. Meðal viðskiptabjálfi getur búist við 10-20 % vöxtum í Deutsche frekar en 1.5 % sem hugsanlega stórfyrirtæki geta fengið í stöku tilfellum. Stöku illa stödd flugfélög reyna að bjóða 9 % sem þau fá samt ekki. Hvað skyldi Ole borga sjálfur í Þýskalandi? 

Er Ole ekki frekar alþjóðlegur Evrubjálfi að skrifa svona um gersamlega óraunhæfa hluti sem innlegg í kjarasamninga á Íslandi? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ole er norskur idjót. (punktur) 

Það þarfnast ekki rökræðu.  Það er fakta.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 3.1.2019 kl. 10:59

2 identicon

Halldór,
það er ótrúlegt að þú skulir leyfa þér að fara niður á slíkt plan að uppnefna fólk og snúa út úr nafni þess. Þó við séum ekki sammála fólki þá eiga allir, skv. stjórnarskrá og almennri skynsemi, rétt á sinni skoðun. 
Vinir mínir, franskir, geta gengið inn í banka í Frakklandi, tekið lán í EUR sem jafngildir um 5 milljónum ISK til 5 ára á 2,5% - 3,5% vöxtum. Ég man ekki hvort er. Engin trygging, engin belti og axlabönd eins og verðtrygging, bara þeirra viðskipti sem venjulegir launamenn sem greiða á réttum tíma. Ekkert vesen, ekkert vaxtaokur. Bara heiðarleg viðskipti.
Íslenska krónan er barn síns tíma og að engu orðin í dag miðað við upphaflegt gildi hennar. Það þarf kannski ekki endilega að skipta henni út en fylgifiska hennar, verðtryggingu og okurvexti þurfum við að losna við svo við getum talist til siðaðra þjóða en ekki illa siðaðra þjófa.
Ekki síður þarf að losna við 3,5% vaxtagólf úr lögum um lífeyrissjóði.
Kjánaskapur verkalýðshreyfingarinnar nú er að ætla að krefjast ofurhækkunar á launataxta. Nær væri að krefjast lítillar sem engrar launahækkunar heldur vaxtalækkunar og afnáms verðtryggingar. Á þann veg væri engin leið fyrir atvinnurekendur að standa gegn verkalýðshreyfingunni heldur stæðu bæði saman hlið við hlið sem sameinuð væru enda líka mikið í húfi fyrir atvinnurekendur að vextir lækki.
Háir vextir og verðtrygging er það sem helst knýr verðbólgu hér á landi. Bæði krefjast þess að laun hækki gengdarlaust svo almenningur geti haldið áfram að lengja í snöru verðtryggðra vaxtaokurs lána sem að ástæðulausu hækka út í hið óendanlega. Til að greiða niður hækkandi lán og hærri laun þurfa fyrirtæki að hækka vöruverð. Þú sérð hvert þetta leiðir. Hringekju vitleysunnar þarf einfaldlega að stöðva.

PS
Þú spurðir um skuldir og stöðu Ole Anton Bieltved í bönkunum. Hver er þín staða, hvað skuldar þú? Eða ert þú einn af þeim sem skuldar ekkert en átt fjármunaeignir og nýtur góðs af bæði verðtryggingu og háum vöxtum? Maður spyr sig? ;-)
Njóttu dagsins.

Nonni (IP-tala skráð) 3.1.2019 kl. 11:08

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Mér hættir svoldið til að vera glannalegur í kjaftinum Nonni minn, þetta er nú samt meira meint eins og grín eins og þegar ég tala um kommatitti sem ég geri oft.

Vinir mínir, franskir, geta gengið inn í banka í Frakklandi, tekið lán í EUR sem jafngildir um 5 milljónum ISK til 5 ára á 2,5% - 3,5% vöxtum. Ég man ekki hvort er. Engin trygging, engin belti og axlabönd eins og verðtrygging, bara þeirra viðskipti sem venjulegir launamenn sem greiða á réttum tíma. Ekkert vesen, ekkert vaxtaokur. Bara heiðarleg viðskipti.

Þetta þarfnast nú frekari útskýringar. menn fá ekkert lán svona án útskýringa eða trygginga. Fasteignalán gætu borið svona vexti, ekki neyslulán.

Halldór Jónsson, 3.1.2019 kl. 11:55

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Efnahagur Grikklands er í rúst, Evrópski seðlabankinn hefur yfirtekið tíunda stærsta banka Ítalíu, þar sem allt er einnig í rúst. Nú síðast fréttist af því að Írland þurfi á fjárhagsaðstoð að halda frá esb.

 Að enn skuli finnast fólk sem trúir því að upptaka evru og innganga í bulluselsþvæluna verði til þess á Íslandi muni drjúpa smjör af hverju strái, er með hreinum ólíkindum. Varla hægt að kalla það annað en örgustu heimsku.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 3.1.2019 kl. 21:58

5 identicon

Ég hef stundum lesið pistla þessa manns. Hann gefur hvergi upp hvar hægt sé að ná í hann heldur bullar hann ýmsa hluti og kemst upp með það án þess að vera gagnrýndur. Gott dæmi er margítrekaðar fullyrðingar hans að við getum fengið undanþágur eins og Malta vegna fiskveiða. Já, kannski rétt en hvað veiða Maltverjar á ári? Svona eins og ein veiðiferð sæmilegs togara hér á landi. Sardínur á árabátum upp að 6 mílum frá strönd. Þetta er nú öll fegurðin í því sem Evrópusambandið veitir Maltverjum í fiskveiðum, skyldi hann vita þetta sjálfur?

Örn Johnson´43 (IP-tala skráð) 3.1.2019 kl. 22:46

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Getur verið að hann sé eitthvað tengdur Skeggja Skaftasyni?

Halldór Egill Guðnason, 4.1.2019 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband