Leita í fréttum mbl.is

Er almenningur fífl?

að láta kramarana skikka sig í ólaunaða vinnu við að stimpla sjálfir í samræmdum okurbúllum íslenskra stórmarkaða? Og til viðbótar taka áhættu af kærum til lögreglu fyrir þjófnað ef mistök verða? Enginn afsláttur fyrir að stimpla sjálfir?

Hverslags idjótar halda kaupmennirnir að við séum?

Erum við almenningur bara fífl?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Einar Hansen

Erum við fífl?

Áður fór ég út í búð, til að kaupa ... en á undan mér við kassan var hún Gunna. Sigga vinkona hennar var að vinna við kassan og þær fóru að spjalla, og ég ásamt öllum öðrum í röðinni þurftum að bíða meðan Gunnu fannst hún vera ægilega sniðug að láta mig bíða í röðinni.

Núna, stimpla ég sjálfur og þarf ekkert að bíða í röð ... verzlunarstjórinn, getur sagt Gunnu og sparað sér launakostnað.

Fífl, hvað?

Örn Einar Hansen, 14.1.2019 kl. 19:44

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Stór munur eftir að sjálfsafgreiðslan kom í Hagkaup í Skeifunni. Áður þurfti maður að hanga endalaust í röð. Nú tekur þetta enga stund. Fer alltaf í sjálfsafgreiðsluna ef hún er í boði. Minn ávinningur er tímasparnaður. Verslunin sparar pening. Kemur báðum til góða.

Þorsteinn Siglaugsson, 14.1.2019 kl. 23:06

3 identicon

Hvað er sérstakt við sjálfafgreiðslukassana. Vafalaust eru sumir ánægðir, sem nota ávalt kort. Margir nota eingöngu aurana sína. Ég sé ekki sparnaðnn þar sem standlaust er afgreiðslumaður, sem fylgist með og vera til aðstoðar.

Mín skoðun er að fjarlægja færibandið framan við gamla peninga kassann og afgreiðslumaðurinn taki vörurnar og verðleggi beint frá kerrunni og setji á endaborðið. þannig þarf kaupandinn ekki að tæma kerruna á afgreiðsluborðið og síðan fylla körfuna aftur á útleið. Skapar þægindi og aukinn hraða við afgreiðsluna.  

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 15.1.2019 kl. 00:28

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Já.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 15.1.2019 kl. 00:57

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Aldrei ent í svona Bjarne.

Eitthvað til í þessu hjá Gísla þó ég sjái þetta eki alveg fyrir mér.

Halldór Jónsson, 15.1.2019 kl. 03:03

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað ef þú klikkar í stimpluninni Þorsteinn og allt fer að pípa á þig?

Halldór Jónsson, 15.1.2019 kl. 03:05

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Alltaf finna þeir eitthvað upp sem ég var búin að hugsa.Að stympill sé í körfunni og botninn útbúinn eins og í fiskvinnslu,lækkar eftir þyngd vörunnar svo það þarf ekki að steypa sér oní botn til að ná í restarnar.   

Helga Kristjánsdóttir, 15.1.2019 kl. 03:21

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hækkar auðvitað við tínsluna úr körfunni afturí poka. 

Helga Kristjánsdóttir, 15.1.2019 kl. 03:23

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Snjöll hugmynd Helga.

Hvernig eru mistök afgreidd af hálfu verslunarinnar Þorsteinn?

Halldór Jónsson, 15.1.2019 kl. 10:20

10 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þú verður að spyrja verslanirnar að því hvernig þær meðhöndla mistök af hálfu viðskiptavinarins. Þær hafa eflaust ágætar leiðir til þess að gera það og lítil ástæða til að ætla annað en að þau mál verði í góðu lagi, þótt vitanlega geti komið upp hnökrar í fáeinum tilfellum í byrjun. Það er líka alltaf starfsmaður við kassana sem getur aðstoðað þegar þess þarf. En munurinn er að í stað þess að það þurfi einn starfsmann við hvern kassa dugar einn á 4-6 kassa.

Vinnan verður væntanlega einnig þægilegri fyrir þessa starfsmenn en að sitja og skanna strikamerki.

Viðskiptavinurinn á hægara með að fylgjast með verði og er eflaust oft fljótari að afgreiða sig sjálfur, t.d. þeir sem eru að kaupa exotíska ávexti sem oft rugla kassafræðingana í ríminu.

Allt jákvætt við þetta

Þorsteinn Siglaugsson, 15.1.2019 kl. 14:11

11 identicon

Það er eitt annað atriði í þessu sem vert er að hafa í huga. Starfsfólk á kassa er oft að flýta sér mikið sem veldur tveimur vandamálum:

    • Vörur eru skannaðar í röngum fjölda.

    • Vörum er kastað til í tilraun til að hraða afgreiðslu.

    Fyrra atriðið skilar sér í rangri innheimtu sem oft kemur ekki í ljós fyrr en heim er komið og ég þykist vita að margir vita ekki hvort eða hvernig þeir eigi að snúa sér með það. Á að fara aftur í sama útsölustað verslunar? Á að fara á næsta útsölustað? Á að hafa samband við skrifstofu? Hvernig er sönnunarbyrði háttað? Það er einfalt ef viðskiptavinur er enn í versluninni, en erfiðara ef hann er kominnn heim og þarf að snúa aftur.

    Seinna atriðið endar gjarnan í skemmdum vörum, (brotið kexx, marið grænmeti o.sv.frv.) enda matvara viðkvæm og ekki ætluð til þess að kasta henni. Ég efast um að margir geri kröfu um að kassastarfsmaðurinn fari og sæki nýja pakningu af kexi ef innihaldið brotnar í hans meðförum.

    hvorugt þessara vandamála eru til staðar þegar viðskiptavinurinn skannar vöruna sjálfur. Fyrir utan að afgreiðslan tekur mun skemmri tíma þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af þessum vandamálum. Ef ég skanna óvart inn rangan fjölda (sem krefst frekar mikillar vandvirkni þar sem kassinn gerir kröfu um að skönnuð vara sé sett á pokasvæði og því mjög erfitt að skanna hana aftur) þá er starfsmaður ávallt við kassana til að aðstoða.

    Einn viðbótarkostur við að skanna svona sjálfur er að maður getur raðað beint í pokann og skannað vörurnar þannig að þær raðist best í pokana og fari best.

    Fyrir mér er ekki spurning að ég vel að skanna sjálfur þegar það er hægt.

    Kjartan Þór Kjartansson (IP-tala skráð) 15.1.2019 kl. 17:21

    12 identicon

    Ef þú hefur ekki áhuga á málefninu, þá er líklegt að viðruð skoðun um málið verði ekki mjög djúp. Þá er nú betra heima setið.

    En, þar sem þú virðist starfa við að hafa skoðanir, þá er um tómt mál að tala.

    Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 16.1.2019 kl. 00:39

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Halldór Jónsson
    Halldór Jónsson

    verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

    -ekki góður í neinu af þessu-

    Heimsóknir

    Flettingar

    • Í dag (24.4.): 4
    • Sl. sólarhring: 15
    • Sl. viku: 52
    • Frá upphafi: 3418203

    Annað

    • Innlit í dag: 4
    • Innlit sl. viku: 52
    • Gestir í dag: 4
    • IP-tölur í dag: 4

    Uppfært á 3 mín. fresti.
    Skýringar

    Eldri færslur

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband