Leita í fréttum mbl.is

Kjaftaskarnir koma aftur

sem betur fer.

Það væri skömm að því að láta þennan spíon og fyrirlitlega karatér  Báru Halldórsdóttur binda enda á störf sem þeir Bergþór og Gunnar Bragi eru réttkjörnir til fyrir land og þjóð. Þeir svara  fyrir þetta i næstu kosningum.

Meðfram öðrum orðum, á þessi Bára virkilega að komast upp með þetta athæfi? Á ekki að lögreglurannsaka svona persónunjósnir til enda? Var hún ein eða er þetta samsæri? Vill enginn vita sannleikann? Er þetta leyfilegt að lögum sem hún gerði?

Það er góð byrjun að kjaftaskarnir koma aftur til að gegna skyldum sínum þó móralskir séu kannski fyrst í stað.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Laukrétt. Hvaða skoðanir sem menn kunna að hafa á Bergþóri og Gunnari Braga, þá eru þeir réttkjörnir þingmenn þjóðarinnar, og skipulagður bloggher vinstrimanna með fulltyngi lygamiðlanna hafa þar engin áhrif á.

Bára er hinsvegar vera hluti af skipulagðri aðför vinstrimanna að kjörnum fulltrúum. Bára er bara eitt púsl í því spili. Enginn heilvita maður trúir því að hún hafi óáreitt fengið að sötra á kaffibolla í 4-5 klukkustundir á bar, og getað tekið upp gallalitlar upptökur, með gamlan síma einan að vopni. Síma sem virðist vera búið að farga, og engin leið til að sannreyna lengur samhengi í upptökunum.

Ef við byggjum í raunverulegu lýðræðisríki, þá væri þessi glæpur rannsakaður. Í stað þess, skipuleggja vinstrimenn pólitísk réttarhöld yfir kjörnum andstæðingum. 
Stalín ER hér.

Hilmar (IP-tala skráð) 24.1.2019 kl. 14:08

2 identicon

Sæll Halldór.

Ég gleðst heilshugar yfir því
að þeir Bergþór og Gunnar eru
komnir aftur til starfa og óska
þeim alls velfarnaðar.

Hvað varðar annað sem þú nefnir þá dettur
mér einhverra hluta vegna í hug setning sem ég
las á dögunum en kemur fyrir í bók þeirri er fjallaði
um Admatóvu er stundaði snjómokstur í Moskvuborg.
Hún skellti sér inn þar sem grafhýsi Leníns er
til að orna sér þá frostið fór öllu neðar en þessi 40 stig.

Einn dag sér hún félaga Anton koma inn og rýkur upp svolátandi:

Ertu kominn helvítið þitt, félagi Anton."

Við skulum vona að hvorki Stalín né helvítið hann
félagi Anton séu viðloðandi Alþingi!

Réttarúrræði standa til boða í þessu máli ef menn
svo kjósa.

Eftir tukthúsvist er talið að einstaklingur hafi afplánað
sinn dóm og skuli tekinn í sátt við samfélagið.

En athyglisvert er að einstaklingar virðast á þingi
sem telji jafnvel að sá sem engan dóm hefur hlotið
skuli aldrei ná sátt við samfélagið og því heimilt
aukinheldur að "pönkast" á viðkomandi til eilífðarnóns.

Húsari. (IP-tala skráð) 24.1.2019 kl. 14:47

3 Smámynd: Hörður Þormar

Það er eins gott að gæta orða sinna. Aldrei er að vita hvar snjallsími er falinn.

Þetta fer nú að minna óþægilega á Stasi eða "1984".

Hörður Þormar, 24.1.2019 kl. 16:51

4 identicon

Það er greinilega til eineltisstefna á Alþingi

Óttaleg fyriferð er á þessari Lilju ef hún er ekki sátt við vinnustaðinn þá skal hún bara hætta

Grímur (IP-tala skráð) 24.1.2019 kl. 19:06

5 identicon

Það er rétt hjá Gunnari Braga að hann er á þingi vegna þess að hluti þjóðarinnar ( hans kjósendur) kusu hann til þess að framfylgja stefnumálum sem voru sameiginleg . En það er eitt sem hann athugar ekki. Til þess að þau frumörp sem hann setur fram þarf hann hann að hafa stuðning annarra til að þau hafi fram að gang. Ég get ekki séð að það gangi eftir eftir þennan klausturslifnað. Er hann þá ekki gjörsamlega gagnslaus sem þingmaður fyrirnsína umbjóðendur?

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 24.1.2019 kl. 20:13

6 identicon

Sæll Halldór.

Athugunarefni hvort ekki þurfi
lögfræðiálit á þeirri gjörð að
forseti sem hefur sjálfur lýst sig vanhæfan
að fjalla um mál skuli deila og drottna um
hvernig farið skuli með það sama mál sem fyrir liggur.

Í framhaldi af lögfræðiáliti kynni sá forseti
að standa frammi fyrir því að vera settur af.

Fyrst forsetar voru vanhæfir að fjalla um málið
þá er vandséð hvernig í veröldinni þeir geta kallað
til og kosið um varaforseta.

Málið var þegar ónýtt og menn áttu
að láta þar við sitja.

Húsari. (IP-tala skráð) 24.1.2019 kl. 22:41

7 Smámynd: Ívar Ottósson

Virkilega Halldor....er það ekki frekar þeirra eigin orð á klaustri sem munu binda enda á glæstan ferilinn...nema kannski einhver þeirra fær "sendiherrann" þegar rykið sest, kæmi manni ekki á óvart.

Bára hélt í hljóðneman en það gat nú verið hver sem er, orðin og skömminn eru þeirra ekku "upptakarans".

Finnst þér sjálfum að þeir séu verðugir þingmenn lands og þjóðar eftir þetta? 

Ívar Ottósson, 24.1.2019 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband