Leita í fréttum mbl.is

Hvert erum við komin?

ef fólkið er að lesa miðil eins og Miðjuna.is, miðil Gunnars Smára Egilssonar, þar sem Guðbjörg Jónina skrifar svo:

 

"Til að þakka fyrir að börn efnalítilla foreldra fela götin á skósólunum sínum með pappa og stela áleggi í Bónus af því þau eru svöng?

Til að hrósa fyrir margra daga bið eftir símatíma hjá lækni og tveggja til þriggja vikna bið eftir tíma hjá lækni?

Til að gleðjast yfir flótta fjölda Íslendinga til annarra landa?

Til að hrópa húrra yfir rándýrri leigu og fyrir fimm þúsund manns í húsnæði sem ekki er ætlað til búsetu?

Til að fagna því að fá að greiða síðustu krónurnar okkar í vexti og verðbætur meðan bankarnir velta sér upp úr arðgreiðslum og dreifa hagnaði sínum með ofurlaunakerfi til stjórna og stjóra?

Til að klappa eldri borgurum á bakið af því þeir hafa ekki efni á tannlækni og glíma við elliglöp og aðra erfiða sjúkdóma í einangrun úti í bæ af því hvergi er pláss fyrir þá og kerfið sinnir þeim ekki?

Í Þýskalandi fór fram helför þar sem fólk var tekið af lífi án dóms og laga, eldri borgarar, geðsjúklingar, gyðingar, fötluð börn meira að segja. Löngu fyrir stríð skrifaði Hitler undir svokallað T4 skjal þar sem hann gaf leyfi til að slátra fólki sem hann taldi að væri byrði á ríkinu.

Hér á Íslandi fer fram hljóð helför. Fjármálaráðherra sem aldrei hefur þurft að loka götum á sínum skósólum með pappa, sem aldrei hefur þurft að stela áleggsbréfum í Hagkaup til að seðja sárasta hungrið, sem aldrei hefur þurft að leggja á sig erfiðisvinnu árum saman af því foreldrar hans höfðu ekki efni á að kosta hann til náms, þessi fjármálaráðherra fremur hljóða helför að illa stöddu fólki á Íslandi.

Hann bíður með glott á vör eftir því að heil kynslóð ellilífeyrisþega andist. Kynslóðin sem hefur ekki greitt alla sína ævi í lífeyrissjóð en greiddi í almannatryggingar í góðri trú og taldi víst að það yrði hlúð að þeim í ellinni. Kynslóðin þar sem mömmurnar hugsuðu um börn og bú og greiddu ekki í lífeyrissjóð á meðan en gáfu alla sína vinnu til ríkisins.

Kynslóðin sem hefur tapað stórfé á fjölda gengisfellinga, horft á launin sínn brenna upp á verðbólgubáli og tapað húsunum sínum í svikamyllu útrásarvíkinga. Kynslóðin sem lagði sig fram af heilindum fyrir land og þjóð. Hún er nú stödd í miðri helför Bjarna Benediktssonar sem opnar ekki ríkisbudduna fyrr en við erum dauð"

Eru einhverjir ekki að tala um að forðast hatursumræðu? Hvert erum við komin með Gunnar Smára Egilsson sem umræðustjóra?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því miður er það svo Halldór, að ég kannast við hluta af þeim lýsingum sem þú vitnar hér í.

Og því miður mun eymd margra verða enn almennari þegar þjófræði yfirstéttar djúpríkisins nær til fleiri grunnviða samfélagsins, m.a. með innleiðingu þriðja orkupakkans, enn meiri umferðarskatta, klósettskatta, gjalda og enn meiri skatta.  

Hvað þýðir stétt með stétt, þegar yfirstéttin skammtar sér margfalt á við aðra og nýtir sér ríkisvaldið til þess eins að sölsa enn meira undir sig? 

Jók það á samhygð þjóðar þegar þingið, stimpilstofnun Brusselvaldsins, leit svo á að 100 ára fullveldisafmælið væri ekki þjóðarinnar, heldur einkasamkoma á Þingvöllum?  Enda skýrt gefið í skyn að nærveru þjóðarinnar væri ekki óskað.

Í þannig ástandi, þegar svo virðist sem sitt hvor lögin gildi hér á landi, er hætta á að sundur slitni friðurinn.  Og þá er létt verk, en mjög svo þynnildislegt að kenna Gunnari Smára um að svo er komið. En hann er ekki orsökin, heldur afleiðingin af þjófræði yfirstéttar djúpríkisins.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.2.2019 kl. 08:33

2 Smámynd: Þórir Kjartansson

Við erum komin á þann stað, Halldór, að þeir sem hafa stjórnað þessu landi síðastliðinn tuttugu ár hafa ekki skilning,getu eða vilja til að tryggja nema hluta þjóðfélagsþegnanna mannsæmandi lífskjör. Því til viðbótar misstu þúsundir allt sitt í Hruninu og hrekjast nú á ómanneskjulegum leigumarkaðiog sjá enga leið til að sleppa úr þeirri krísu. Enn aðrir rétt náðu að halda sínum eignum en eru lítið betur settir og sjá ekkert framundan annað áframhaldandi baráttu við okurvexti og verðtryggingu allt fram á grafarbakkann. Fjórflokkurinn gamli hefur algerlega brugðist í þessu og er þar enginn undanskilinn. Nú er komið að þeim tímapunkti að langlundargeð Jóns og Gunnu er þrotið og þá fer fólk að horfa til einhverra sem virðist tala þeirra máli. Og miðað við það litla sem heyrist frá núverandi ríkisstjórn við þeim kröfum verkalýðsforystunnar að fara að vinda ofan af óréttlætinu er ég ekki bjartsýnn. Svo koma sprenglærðir stjórnmálafræðingar og aðrir álitsgjafar í fjölmiðla og skilja ekkert í uppgangi einhverra vondra "populista" bæði hér og í öðrum vestrænum löndum

Þórir Kjartansson, 19.2.2019 kl. 10:47

3 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Gott hjá ykkur piltar. Stjórnmálamenn verða að fara að hugsa.  En erum við allir komnir í klausrtið, og búið að taka sjónvarpsmynd af okkur?  Við samþykkjum allt sem kemur frá stjórn stórheimsfyrirtækjana, og hljótum allir að vera í tjóðrinu.  Hann Símon Pétur frá Hákoti er hér með góða kennslu eins og Halldór Jónsson.  Við verðum að frelsa pólitíkusana frá KLAUSTUR TJÓÐURBANDINU.  En, hvernig.  Verða allir að játa syndir sínar, svo að ekki sé hægt að hóta með syndabirtingu? Það verður súpa í lagi.  Jesú sagði, hafir þú hugsað það, þá hefur þú gert það.  Og svo sagði hann.  Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum.  Synd er að gera eitthvað rangt, og við mannfólkið erum nokkuð óþroskuð, og getum varla farið eftir reglum sem eru nokkuð langt frá eðlinu.  Þakka fyrir góð skrif.  Gangi ykkur allt í haginn.

Egilsstaðir, 19.02.2019  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 19.2.2019 kl. 11:19

4 identicon

Í gær var mbl.is nú með stórfrétt af "mótmælum" Gunnars Smára fyrir framan Landsbankann og sló því upp sem að þar hefði hópur fólks mótmælt. Sannleikurinn var sá að þetta voru átta manns, góður hluti þeirra víðfrægir vitleysingar og óeirðaseggir eins og sjá má af myndum. En þegar menn komast með svona í alvöru miðla sem stórfrétt um "hóp fólks við mótmæli" þá er ekki að undra þó Gunnar Smári sópi að sér fylginu. Moggin hjálpar til við að gefa þessu trúverðugleika í augum almennings. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/02/18/motmaela_vid_landsbankann/

Albert Viðarsson (IP-tala skráð) 19.2.2019 kl. 11:24

5 identicon

Já, hvert erum við komin?

Þeim mæta sjálfstæðismanni, Halldóri Jónssyni verkfræðing,

var meinað að spyrja spurninga um þriðja orkupakka EES/ESB

á fundi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.

Já, hvert erum við komin á leið Samfylkingar, VG, Framsóknar

og Sjálfstæðisflokksins ... til Berlínar, í helferðinni.

Á sama tíma kemur hingað til lands Mike Pompeo og býður okkur

að eiga samleið með Bandaríkjunum.

Skiljanlegt að Mike hafi ekki rætt við Bjarna Ben yngri,

því hann veit líkast til að Bjarni er upptekinn við

að innleiða þriðja orkupakka EES/ESB/Berlínar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.2.2019 kl. 11:48

6 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Koma með falsfréttir, til að við séum alltaf fullir af rusli, eins og full tölva.

Þá virkar heilinn ekki, eins og tölvan virkar ekki.

Það á að láta fólkið fá íbúðirnar sínar aftur strax.

Íbúðin fjölskyldu íbúðin er fyrir fjölskyldur en ekki fyrir fjárfesta. 

Reyndar má hver og einn safna, en +ibúðin sé fjölskyldunnar, og greiðist til æmis sem 20 % af tekjum. 

Það er enginn vandi að láta fjármálakerfið skila öllu.

Það er aðeins bókhald. 

 Egilsstaðir, 19.02.2019  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 19.2.2019 kl. 12:09

7 identicon

Og þar sem Mike Pompeo veit líkast til

af hinum mikla áhuga Björns Bjarnasonar

á innleiðingu 3. ríkis orkupakka EES/ESB/Berlínar

sleppti hann því alveg að ræða við slíkan,

því vart er að treysta slíkum manni

sem sveiflast sitt á hvað

og gerir nú helst hosur sínar vinstri grænar 

í samfylktri marseringu með Berlínar Merkel.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.2.2019 kl. 12:15

8 identicon

Við lifum á breyttu ÍSLANDI. Landið okkar er eigu erlendra auðkýfinga og valdsmanna. Þeir leigja ekki, þeir vilja kaupa Landið og hreina ORKUNA. Þeir finna að hlutirnir eru stjórn lausir frá ALÞINGI. Gömlu þjóðernissinnarnir eru horfnir. "ANDVANA"sósialistar hafa lifnað að nýju og hrópa til ESB ringulreiðar. ÍSLANDI vantar LEIÐTOGA,sem vinnur fyrir Landið OKKAR og ÍSLENDINGA.

Við höfnum stjórnlausri fjölmenningu fyrir fámenni íslendinga.Loftslagsdraumar,rafbílar og skattlagt vegakerfi er dauði hvers Alþingismanns. Endurnýið vegina fyrir ÍSLENDINGA og erlendir ferðamenn fá að njóta þess með okkur  

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 19.2.2019 kl. 16:23

9 identicon

Optische illusies en gezichtsbedrog: Visueel bedrog en optische illusies

Húsari. (IP-tala skráð) 19.2.2019 kl. 16:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband